Málefni eldri borgara og öryrkja....

......eru mikið í umræðunni þessa dagana og hannski hvað helst slæm kjör þeirra, en ég var svolítið hugsi fyrir nokkru síðan þegar ég hlustaði á afar sérstakan og kaldhæðin pistil í Samfélaginu á RÚV (man ekki nafnið á pistlahöfundi), en í pistli höfundar kom m.a. fram að á öldum áður hefði verið til klettur sem var kallaður Stapinn og þegar þeir sem gátu ekki lengur unnið fyrir sér eða áttu ekkert lengur til að borða, þá hafi þeir einfaldlega fengið sér göngu upp á Stapann og hoppað fram af.

Pistlahöfundur hélt svo áfram með það á þennan hátt, að þar sem ríkisstjórninni fyndist allt of margir eldri borgarar og öryrkjar vera orðnir á Íslandi, hvort ekki væri ráð fyrir ríkisstjórnina að finna einhvern heppilegan klett, svipaðan og Stapann, og hugsanlega jafnvel flýta fyrir með því að setja lyftu upp.

Afar kaldhæðinn pistill, vægast sagt, en vakti mig samt til umhugsunar um þessa þrjá valkosti sem að við flest öll munum þurfa að standa frammi fyrir og þá ekki hvað kannski helst hver kosturinn er skástur, þeas. dauðinn sem bíður okkar allra, örorka sem ekki er ólíklegt að bíði sjómanns sem starfað hefur áratugum saman í miklum veltingi og í sambærilegum störfum eða það að verða eldri borgari. Þegar maður horfir á biðraðir af eldri borgurum og öryrkjum fyrir framan hjálparstofnanir um hátíðirnar, þá fara nú að renna á mann amk. þrjár grímur, því ekki er þetta spennandi staða og kjör eldri borgara og öryrkja til háborinnar skammar fyrir þjóðina.

Kannski má líka segja sem svo að þessi staða að einhverju leyti skýri niðurstöðuna í nýlegri skoðunarkönnun, þar sem 75% þjóðarinnar reyndist vera hlynntur líknardrápum, svo klárlega er ýmislegt í þessu sem þarf að skoða betur. Ekki það að ég hafi neina sérstaka skoðun á þessu, en set þetta fram kannski fyrst og fremst til umhugsunar. Reyndar er staða eldri borgara og öryrkja hér í Vestmannaeyjum bara nokkuð góða, en ég hef þó áhyggjur af því, hvort og þá hvaða afleiðingar útboð á þjónustunni á Hraunbúðum muni hafa. Er reyndar sérstaklega ánægður með það, að búið sé að eyrnarmerkja fjármuni frá Vestmannaeyjabæ til stækkunar Hraunbúða. Það er eitt að segjast vilja búa eldri borgurum áhyggjulaust ævikvöld, en stundum þurfa líka aðgerðir að fylgja orðum. 

Að lokum aðeins um áramóta grein mína, sem fékk nú aðeins meira athygli heldur en ég bjóst við. Reyndar er málinu ekki lokið alveg frá minni hendi, en mig langar að gefnu tilefni að þakka öllum þeim gífurlega mikla fjölda fólks sem haft hefur samband og lýst yfir ánægju með greinina, einnig þeim sem sent hafa skilaboð, bæði beint og óbeint, kærar þakkir allir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu ekki að grínast þegar þú segir að staða eldri borgara sé nokkuð góð hér í eyjum? Húner vægast sagt hreint ekki góð fjöldi manns bíður eftir að komast á Hraunbúðir. Heimahjúkrun er ágæt svo langt sem það nær.

Þær í heimahjúkrun koma og eru svo farnar, þá er viðkomandi eins síns liðs algjörlega ófær um það.Ástandið er bara hreint ekki ásættanlegt

Er búin að hafa systur mína og mág síðastliðin tvö ár,hreint í gæslu. Svo ég veit alveg hvað ég er að tala um  nú er hann á sjúkrahúsinu og bíður eftir að komast á Hraunbúðir en farið er að koma með fólk frá Selfossi og annarstaðar á sjúkrahúsið sem á að koma á Hraunbúðir. Systir mín lést fyrir ári.   það er eitt sem ég vil minnast á sem þú gætir komið á framfæri. Lyftan á sjúkrahúsinu er alltaf að bila var biluð í sólarhring um daginn,og sjúkraflutningarmenn báru fólk upp og niður stiganna. Bróði minn festist fyrir stuttu í lyftuni.Margir hafa lent í því Spurning hvenær lyftan bilar á krítisku augnabliki

Hulda Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 20.1.2016 kl. 23:36

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl Hulda og takk fyrir þína athugasemd.

Mér er sagt af eldri borgurum á Hraunbúðum að þeir séu mjög ánægðir með aðstöðuna og þjónustuna á Hraunbúðum. En við erum alveg sammála um það, að það þarf nauðsynlega að stækka Hraunbúðir. Ég þekki hins vegar sára lítið inn á heimahjúkrunina, en ég hef hins vegar sérstakar áhyggjur á því að þetta svokallaða útboð á þjónustunni á Hraunbúðum muni hugsanlega skerða þjónustuna og mun því fylgjast sérstaklega með því. Ég hef hins vegar ekki heyrt það að fólk frá Selfossi hafi fengið inni á Hraunbúðum, ef ég skil þig rétt? Ég er hins vegar algjörlega sammála þér með lyftuna á sjúkrahúsinu, en ég ræddi einmitt við viðgerðarmennina sem voru að gera við hana um daginn, en þeir höfðu einmitt miklar áhyggjur á því, hvernig og hversu gömul hún er orðin, og það er eitthvað sem við þurfum greinilega að setja á dagskrá.

Kveðja Georg

Georg Eiður Arnarson, 26.1.2016 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband