2.3.2008 | 10:23
Vont veður
Ég opnaði útihurðina áðan því hún snýr í vestur , en samt var snjór upp á miðja hurð svo að ég var fljótur að loka aftur, og mér sýnist bíllin vera við það að hverfa í snjóskafl.
Besta veður vetrarins var í gær en sennilega það versta í dag . Það vantar ekki öfganna í veðrinu í eyjum .
Sumir vilja meina að veðrið í vetur sé það versta í manna minnum , en ég sá það í gær í afladagbókinni að í Febrúar fór ég 6 sinnum á sjó , en man eftir því að fyrir ca 16 til 18 árum komst ég aðeins 1 sinni á sjó í Febrúar og á síðasta ári aðeins 3 sinnum í Febrúar . Snjókoman er hinsvegar meiri heldur en ég man eftir.
|
Vont veður í Vestmannaeyjum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook


gmaria
nilli
estersv
sigurjonth
maggadora
solir
heidathord
helgigunnars
tildators
katagunn
johanneliasson
fuf
gretaro
jonmagnusson
gudrunjona
hector
korntop
kjartan
brynja-hlif
eirikurgudmundsson
siggisig
valdivest
gudni-is
nafar
xfakureyri
nkosi
raftanna
thjodarsalin
gretarmar
kokkurinn
gudruntora
skulablogg
hbj
jonsnae
kolbrunerin
maggibraga
olafurjonsson
redlion
seinars
siggith
steinibriem
nautabaninn





Athugasemdir
Og manst þú nú tímanna tvenna gamli minn. En samt það er alltaf einhver svona skemmtileg stemming þegar snjóar mikið. Kannski það sé vegna þess að við erum ekki vön miklum snjó. Nú skellur þú þér út þegar hann lægir og býrð til einn snjókall eða hús. Ekki næ ég því þennan veturinn í 25°+ sól og blíðu dag eftir dag.
Kveðja frá Spáni
HJG
Halldór (IP-tala skráð) 2.3.2008 kl. 10:38
Ég segi nú ekkert annað en heitt súkkulaði og góð bók. Það væri ekki verra að vera með gott teppi - gangi þér vel að moka bílinn upp eða á ég kannski að segja frekar gangi þér vel að moka þig að bílnum? En vonandi lagast þetta nú - þar sem það var væntanlega sól hjá ykkur í gær, snjókomma í dag þá er ekki úr vegi að fá smá rigningu á morgunn, svona til þess að minnka aðeins snjóinn...
Óttarr Guðlaugsson, 2.3.2008 kl. 10:40
Væri ekki athugandi að athuga Blíðuna hvort hún sé nokkuð sokkin.kv
þorvaldur Hermannsson, 2.3.2008 kl. 11:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.