Landeyjahöfn og séfræðingarnir

Það er greinilega komið vor í Eyjum með föstum vorboðum. Farfuglarnir byrjaðir að koma og páskahretið á leiðinni og það nýjasta, Landeyjahöfn eins og vanalega full af sandi. 

Það hefur ótrúlega mikið verið skrifað um Landeyjahöfn að undanförnu og margt mjög athyglisvert þar. Sérstaklega þóttu mér góðar greinarnar frá skipstjóranum á Lóðsinum og skipstjóranum á Dísu, enda eru þar á ferðinni menn, sem eru að skrifa út frá þekkingu og reynslu.

Mig langar hins vegar að koma aðeins inn á ræðu bæjarstjórans frá því í bæjarstjórn fyrir rúmu ári síðan (tek það fram að ég var ekki á staðnum og þetta er ekki orðrétt), en svona var mér sagt að bæjarstjórinn hefði orðað það: "Ég hef ekkert vit á samgöngum á sjó, og það hafið þið ekki heldur. Við eigum og verðum að treysta sérfræðingunum." (Vonandi er þetta amk nálægt því að vera rétt).

Þessum orðum bæjarstjórans er ég alveg sammála, en svo skilur á milli, því þegar bæjarstjórinn talar um sérfræðinga, þá er hann að sjálfsögðu að tala um þá sem tóku ákvörðun um að gera þessa höfn á þessum stað, og um leið þá sem bera hvað mesta ábyrgð á öllu þessu klúðri sem Landeyjahöfn er. Í mínum huga, hins vegar, eru hinir einu réttu sérfræðingar á samgöngum á sjó, sjómennirnir og skipstjórarnir sem starfað hafa á svæðinu, en merkilegt nokkuð, bæjarstjórnin virðist ekki hafa nokkurn áhuga á að fara að ráðum þeirra sérfræðinga.

Reyndar finnst mér þetta orð, sérfræðingur, afar leiðinlegt og svolítið sérstakt þegar maður hugsar til baka um sumar fullyrðingar sem bæði hafa verið skrifaðar og sagðar af sérfræðingum Vegagerðarinnar og Siglingamálastofnunar í gegnum árin, eins og t.d. varðandi sandburðinn, hér hefir orðið gos sem ekki var reiknað með, óvenju harður vetur, náttúran mun taka höfnina í sátt, vandamálin eru vegna Markarfljóts og síðan í haust, vissi alltaf að útreikningar dönsku sérfræðinganna varðandi sandburð væri rangir. Aðrar fullyrðingar eins og hafðu ekki áhyggjur af austanáttinni, það kemur nánast aldrei austanátt í Eyjum, frátafir upp á 1,6%, 10 dagar, 20 dagar, 10%, 20-30 dagar, 30-70 dagar, 2-3 mánuðir, allt meira og minna ágiskanir algjörlega út í loftið. Spá mín um frátafirnar frá 2007 var, í góðum árum 4-6 mánuðir, í mjög vondum veður árum allt að 8 mánuðir (að gefnu tilefni þá hefur veturinn í vetur verið óvenju mildur).

Aðeins að grein bæjarstjórans þar sem hann orðaði þetta þannig: "Ef menn hefðu vitað um sandburðinn fyrir fram, þá hefðu menn sennilega ekki gert þessa höfn og hvar stæðum við þá." 

Ég hef nú svarað þessu áður og get svo sem endurtekið það, að sögn sumra úr stjórn Ægisdyra, sem fullyrða það að ef þeir hefðu haft stuðning bæjarstjórnarinnar á sínum tíma, þá værum við komin með göng í dag. (tek það fram að ég er ekki í stjórn Ægisdyra)

Lokaorð: Ég er á þeirri skoðun að skynsamlegast væri í dag að fá stærri og gangmeiri ferju, til þess að geta betur tekist á við þá auknu flutnings þörf sem blasir við, en auðvitað þyrfti sú ferja að geta siglt í báðar hafnirnar (með ólíkindum að það eigi að fara að smíða ferju, sem siglt verður að öllum líkindum á 12,5-13 mílna ferð og með hámarks ganghraða upp á 15 mílur, á meðan meira að segja gámaskipin sigla á þetta 15-18 mílna hraða).

Það eru í gangi gríðarlega margar og miklar kjaftasögur, bæði um þessa nýsmíði og um Landeyjahöfn og að mínu vita væri skynsamlegast í stöðunni að boða til borgarafundar, þar sem smíðanefnd og hönnuðir á ferjunni gætu þá svarað öllum þessum kjaftasögum varðandi nýju ferjuna.

Einnig væri skynsamlegt að fá á fundinn fulltrúa ríkisins, sem hefur nú þegar sett, eftir því sem mér er sagt, á fjárhagsáætlun ákveðna upphæð sem merkt er lagfæringum á Landeyjahöfn og fá þá skýr svör um það, í hverju þær lagfæringar felast.

Ég skora hér með á bæjarstjórn Vestmannaeyja að beita sér í því, að boðað verði til slíks borgarafundar, enda veitir ekki af, sérstaklega ef tekið er tillit til nýrrar skoðanakönnunar MMR þar sem klárlega kemur fram djúp gjá milli yfirgnæfandi meirihluta bæjarbúa og bæjarstjórnar um það, hvað gera eigi næst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég man nú ekki betur en að þeir sem voguðu sér að vera með einhverjar efasemdir um Landeyjahöfnina, væru svo skotnir á kaf og hraunað svo yfir þá og sagt að þeir væru óalandi  og óferjandi fólk sem væri á móti framförum og skorti nokkuð sem héti almenn skynsemi.  Nú eru þær raddir þagnaðar og bæjarstjórinn sem fór fremstur í flokki þeirra sem vildu fá þessa höfn, er orðinn sá sem gagnrýnir hana einna mest.  Eru svoleiðis menn ekki kallaðir vindhanar?

Jóhann Elíasson, 25.3.2016 kl. 22:23

2 identicon

Sælir má til að benda á Heimaey VE strandaði við Þykkvabæ í foráttu veðri1984 minnir mig, fór hátt upp með stefni í land,var snúið og grafin niður sem mest. Síðan á hverri fjöru var ýtt frá hliðum og grafin renna fyrir framan reynt að ná skipinu út á hverju flóði sem jafnframt  fyllti  rennuna  og að hliðum aftur af sandi og stundum meira en það svona gekk í hálfan mánuð þá for skipið á flot með stórstramsflóði góðu og háu dráttar skip og 5 jarðýtur og hægt að keyra vél Heimaeyjar í ca 30 min .Kjarni málsins er að allir sem vilduvita og margir vita um aldir að allt sem ferí þennan sand grefst niður á örstuttum tíma og tangi byrjar að myndast fyrir framan Sama þó kallað sé höfn.Vonandi fá Vesmeyjar sem besta lausn á sam gongum En líst ekki á að gera göng inn í eld fjall vill einhver byggja borg undir Heklurótum Kv Águst Þ

agust þ (IP-tala skráð) 27.3.2016 kl. 10:02

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, margt er nú bullið, en mig langar að leiðrétta Ágúst hér að ofan, Heimaey VE 1 strandaði í febrúar 1981.

Svo vill ég fræða þennan sama Ágúst um að það hafa verið gerðar rannsóknir á jarðlögum við Heimaey og sprungur eru engar né eldfjöll þar sem við ætluðum að bora göng!

Georg, það hefur ekkert verið minnst á bylgjusérfræðinginn sem kom fram á sjónarsviðið hérna um árið?????

Kær kveðja.

Helgi Þór Gunnarsson, 27.3.2016 kl. 14:23

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég vildi benda á nokkuð augljóst dæmi, sem á sér stað í Landeyjahöfn núna.  Þegar nýbúið var að gera hafnargarðana heyrði það til undantekningar að það gengi sjór yfir þá í slæmum veðrum en til þess þurfti að vera MJÖG mikið brim og um leið stór straumur - en nú er þetta orðið mjög algengt en ég hef hvergi séð minnst á það neins staðar að þeir hafi LÆKKAÐEkki ætla ég að sverja fyrir það e3n það er mín tilfinning að garðarnir hafi "sigið " í sandinn og hvernig hyggjast sérfræðingarnir" bregðast við því?

Jóhann Elíasson, 27.3.2016 kl. 15:57

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sælir strákar og takk fyrir kommentin. Varðandi garðana, þá held ég að þeir hafi ekki sigið, en hins vegar er sandurinn farinn að færast út með görðunum. Eins skilst mér að það hafi hrinið lítillega úr á einum stað. Varðandi strand Heimaeyjar, þá þekki ég ekki það mál. Við þekkjum hins vegar söguna á bak við strand Vikartinds. Sjálfur hef ég fjallað um strand togarans Surprise, sem strandaði í Bakkafjöru 1967, en afi minn og nafni keypti flakið og vann í 3 ár við að rífa það og lenti oft í miklum ævintýrum vegna sandburðs. Varðandi Bykgju sérfræðinginn, þá er hann bara enn einn sérfræðingurinn sem, ef ég man rétt, spilaði ekki með rétta liðinu í umfjöllun sinni um Landeyjahöfn, en klárlega eru göng það eina sem gæti komið á alvöru samgöngum á árs grundvelli, auk þess sem að gera ferðaþjónustuna að starfsemi á ársgrundvelli. Það er afskaplega dapurlegt að horfa upp á stöðu Landeyjahafnar nákvæmlega eins og fyrir tæpum 6 árum síðan, en við þessu hafði verið varað og því miður ætlar enginn greinilega að taka ábyrgð á þessari vitleysu, og þar sem Eyjamenn eru komnir á bragðið, þá er ansi erfitt að snúa við, þannig að í bili amk. verði einfaldlega að halda áfram.

Georg Eiður Arnarson, 29.3.2016 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband