37ára tiraun sem mistókst

37 ára tilraun sem mistókst Langafi minn kom til Eyja í upphafi síðustu aldar og gerðist útgerðamaður. Þá var allt með öðrum brag en í dag og lífsbaráttan hörð en ef maður ber saman fiskveiðar fyrir 100 árum síðan og svo aftur fiskveiðar í dag og sömuleiðis kvótakerfið, þá var veiðifyrirkomulagið mjög einfalt í gamla daga þó aðbúnaður sjómanna hafi verið skelfilegur. Á þessum tíma fengu menn að fiska eins vel og þeir mögulega gátu og góð vertíð reddaði oft málunum á erfiðum tímum og þó það sé kannski hæpið að líkja þessu saman við þessi öflugu skip sem við höfum í dag. En það má svo sannarlega bera saman afla og aflabrögð. Stærsta hluta síðustu aldar voru veidd 4-500 þúsund tonn af þorski ár eftir ár án þess að högg sæi á vatni. Til samanburðar þá erum við ekki einu sinni hálfdrættingar á við það sem þá var. Fyrir næsta fiskveiðiár er verið að úthluta 220 þúsund tonnum af þorkskvóta. Hvert fór allur þessi fiskur? Í dag búum við við afleiðingar tilraunar sem staðið hefur í 37 ár. Tilraunin hefur algjörlega mistekist, en enn er verið að berja höfðinu við steinninn. Fyrir 37 árum síðan var úthlutað 220 þúsund tonna þorskkvóta og við erum í nákvæmlega sömu stöðu í dag því núna verið að úthluta 220 þúsund tonna af þorskkvóta fyrir næsta filskveiðiár og ef tekið er mið er tekið af nýjustu útreikningum Hafró, þá er enn frekari niðurskurður fyrirsjáanlegur á næstu árum. Hvert fór allur þessi fiskur? Þetta er staðan eftir „vísindalega stjórnun“ á fiskveiðum í nær 40 ár. Er ekki ljóst að eitthvað hafi misfarist og að skoða þurfi útreikninga vísindamannanna sem oftar en ekki eru á skjön við það sem sjómenn, sem eru úti á sjó í tengslum við náttúruna, sjá og skynja. Þessi staða mála gengur ekki upp og miklir hagsmunir í húfi að rétt sé að verki staðið. Kvótinn og handfæraveiðar Ég ætla ekki djúpt í þá umræðu hér, en framsal kvóta er eitt það versta böl sem lagt hefur verið á sjómenn hér á landi. Það ætti engin að eiga kvóta sem ekki ætlar að nýta hann sjálfur. Kvótinn á að fara milliliðalaust til þeirra sem ætla að veiða, þeirra sem leggja í þann kostnað sem útgerð krefst. Útgerðarmenn eiga að kaupa kvótann fyrir sanngjarnt verð af ríkinu, þannig að þjóðin fái sitt og útgerðarmaðurinn geti vel við unað. Handfæra- og strandveiðar eiga að sjálfsögðu að vera algjörlega frjálsar enda hafa þær lítil sem engin áhrif á hið stóra samhengi hlutanna á sama tíma og þær geta gert kraftsverk fyrir afkomu sjávarbyggða og sjómanna víða um land. Þarna á fólkið í landinu að njóta vafans en ekki sérhagsmunir fárra eins og nú er. Frjálsar handfæraveiðar lykilatriði Ég verð í 2. sæti á lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi og það er ekkert leyndarmál að stefna flokksins í sjávarútvegsmálum réð úrslitum um þá ákvörðun mína að bjóða mig fram. Félagar mínir í Flokki fólksins eru einhuga um það að berjast fyrir frjálsum handfæraveiðum. Þetta er lykilatriði í stefnu flokksins og á því verður ekki gefinn neinn afsláttur. Krafa stórútgerðarinnar um óbreytt fyrirkomulag og í síðustu viku voru strandveiðar illu heilli stoppaðar, enda áhrif stórutgerðarinnar óumdeild og augljós í núverandi ríkisstjórn. Ég skrifaði í grein í byrjun ársins (trillukarlar í stórsjó) um að með óbreyttri ríkisstjórn verði smábátaveiðar smátt og smátt lagðar af og stend algjörlega við það sem ég sagði þar. Það hefði verið auðvelt fyrir núverandi ráðherra að bæta aðeins í og auka svigrúmið til handfæraveiða til þess að klára sumarið. Það er staðreynd að þúsundir tonna í hinum ýmsu tegundum eru að brenna inni m.a. ufsi, keila, blálanga, litli karfi, gullax og fleiri tegundir(?) m.a. vegna reglna um tilfærslu, en því verður að breyta. Auk þess þá vita allir sem vilja vita að frjálsar handfæraveiðar yfir vetrarmánuðina, þar sem veður og vindar stjórna því hversu mikið er hægt að róa myndu aldrei gera annað en að koma í veg fyrir að menn þurfi jafnvel að skrá sig á atvinnuleysisbætur eða leita eftir annari vinnu í því atvinnuleysis ástandi sem hér ríkir um þessar mundir. Uppsjávarveiðar Einnig þarf að fara yfir samninga okkar við norðmenn um loðnuveiðar og spurning hvort ekki sé orðið tímabært, vegna óvissu um loðnuveiðar ár eftir ár, að setja á t.d. lágmarksúthlutun til þriggja ára og tryggja þar með útgerðinni, vinnslunni og kaupendum ákveðið öryggi. Einnig er spurning vegna mikils meðafla í formi síldar í makrílveiðunum, hvort ekki væri rétt að síldin sem er afar léleg teldist aðeins til hálfs í kvóta? Lykilatriði er þó að þær veiðar, sem og aðrar, séu með verðmyndun sem er í samræmi við markaðsverð. Þetta er fullreynt og virkar ekki Núverandi sjávarútvegsstefna með öllum sínum höftum, kvótum og sérhagsmunum virkar ekki. Það er fullreynt. Kvótinn minnkar sífellt of afkoma sjómanna hefur farið stöðugt versnandi síðustu ár á meðan stórútgerðir maka krókinn. Þjóðin hefur verið svikin af auðlindum sínum og þær seldar framhjá henni til órfárra útvaldra sem fitna eins og púkinn á fjósbitanum. Það er nóg komið! Hjálpaðu okkur að breyta þessu. Settu X við F. Georg Eiður Arnarson, situr í 2. sæti Flokks fólksins í suðurkjördæmi


Pólitíkin og Hafró

Arthúr Bogason er með mjög athyglisverða grein um daginn, þar sem hann fjallar um þá staðreynd að tjón þjóðarinnar vegna núverandi kvótakerfis og ráðgjafar Hafró, í þeim efnum, nemur hundruðum milljarða frá því 1984. 

En skoðum aðeins vandamálið frá sjónarhorni Hafró, með mínum augum, en svona leit fyrsta úthlutun 1984 út, ég ætla að sleppa magninu en telja bara upp tegundirnar.

1984 er þetta svona:

Þorskur

Ýsa 

Ufsi 

Karfi

Skarkoli

Grálúða

Steinbítur 

 

En svona lítur þetta út í dag:

Þorskur

Ufsi

Ýsa

Karfi 

Djúpkarfi

Grálúða

Gulllax

Steinbítur

Skarkoli

Úthafsrækja

Þorskur-Rússlandi

Langa

Þorskur-Noregi

Keila

Þykkvalúra

Litli karfi

Rækja við Snæfellsnes

Rækja í Djúpi

Skötuselur

Blálanga

Sandkoli

Kolmunni

Arnarfjarðarrækja

Norsk-íslensk síld

Loðna

Humar 

Síld

Skrápflúra

Við þetta má síðan bæta makrílnum, augljóslega, sem og sæbjúgum. Enn fremur hefur fráfarandi ríkisstjórn beitt sér fyrir því að koma grásleppunni í kvóta og allt byggir þetta meira og minna, að mestu leyti, á þessu blessaða togararalli, en hvers vegna er þetta svona og hvers vegna er búið að kvótasetja svona margar tegundir og af hverju?

Valdimarsdómurinn

Ef ég man rétt, þá féll Valdimarsdómurinn svokallaði 1998, en með honum var ekki lengur hægt að neita neinum um veiðileyfi, en þáverandi sjávarútvegsráðherra Árni M. Matthiesen sá sér leik á borði og sló af því svokallaða þorskaflamarkskerfi (besta kvótakerfi sem smábátar hafa nokkurn sinni getað róið eftir) og kvótasetti þá um leið ma. tegundir eins og keilu og löngu, sem ma. annars fyrirtæki eins og Vísir í Grindavík hafði ítrekað óskað eftir, enda eiga þeir í dag meira og minna öll löngu og keilu mið á Íslandi, sem reyndar eru nánast algjörlega verðlaus í dag vegna aðferðarfræði Hafró við að reikna út stofnstærð á þessum tegundum, sem þeir sumir amk. gera sjálfir grín að, en um það hef ég fjallað áður. 

Síðasta stóra kvótasetning á tegundum átti sér stað, ef ég man rétt, fyrir ca. 7 árum síðan, í forsetatíð Sigmundar Davíðs, þáverandi formann Framsóknarflokksins, núverandi formann Miðflokksins og með núverandi formann Framsóknarflokksins, Sigurð Inga sem sjávarútvegsráðherra, en þá voru settar í kvóta tegundir eins og blálanga, litli karfi, gulllax, hlýri og fleiri, sem allar hafa hrunið við kvótasetningu og eru í dag fyrst og fremst notaðar í tilfærslu og til þess að búa til veð fyrir hagsmunaaðila. 

Lokaorð

Þegar maður skoðar þessar kvótasetningar frá 1998, þá er augljóst mál að eitthvað togararall mun aldrei geta reiknað út stofnstærðir á fjölmörgum að þessum tegundum. Hafró hefur því þurft að leita annarra leiða til þess að reikna út stofnstærð á fjölmörgum tegundum, sem lítið og ekkert veiðast í togararallinu. Sumar af þeim aðferðum standast svo sannarlega ekki skoðun og eiginlega alveg með ólíkindum að við séum jafnvel komin niður í það að veiða 10% af því magni af sumum tegundum sem við vorum að veiða fyrir kvótasetningu.

Það er því augljóst mál, að það besta sem við gætum gert, ekki bara fyrir okkur öll sem og lífríkið í hafinu, heldur líka fyrir Hafró, væri að fækka kvótabundnum tegundum. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband