Nokkuð til í þessu

Allir sem eru fæddir fyrir 1990 eiga að lesa þetta.... algör sannleikur!!!!!



Fólk sem að fæddist fyrir 1990 ætti að vera dáið!!!

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

-Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

-Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við
hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

-Sem börn sátum við í bílum án öryggisbelta og/eða púða.

-Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

-Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu
í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika

-Við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni
án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum
á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt
bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við fórum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og
komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir
daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar
talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki
fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki
heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn
var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að
kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli
og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg
augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og
margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og
létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu,
eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar
aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við
stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk.
Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í
Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í
því...


OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!


Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum
frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt
saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og
reglur um líf okkar sem þeir segja að sé 'okkur sjálfum fyrir bestu'?.Þessi
kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa
vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Goggi, það er mikið af sandsíli í Faxaflóanum núna. Fiskurinn er úttroðinn af síli, það er síli

vaðandi út um allan sjó. Eins og þú veist hryggnir sílið í nóv / des, eggin klekjast út í apríl.

Sílið festir eggin við sandbotn á 50 til 70 metra dýpi, það er mjög vandlátt á kornastærð

sandsins. Mér er að detta í hug að loðnuflotinn hefur ekkert veitt hér inní flóanumi

í nokkuð lángan tíma, þetta dýpi  50 til 70 m. er inni í flóanum. Þegar loðnuskipinn eru

að veiðum oná þessum sandbotni, þá skafa þau botninn með snurpuvírunum, jafnvel

með blýateininum. Svo þegar dælt er úr nótinni, það gæti verið að það kæmi úrgangur

frá skiljunni ( sjórinn er skilinn frá loðnuni, hrogn og svil skiljast allavega frá, og festast

á því sem fyrir verður ). Þetta gæti þýtt að það leggist teppi yfir sandbotninn,

og sandsílaeggin kafni. En þau þurfa víst að anda.

Hafðu það gott Goggi minn.

Aðalsteinn Agnarsson, 4.7.2010 kl. 17:53

2 identicon

Já það er furðulegt að maður sé enn á lífi Goggi miðað við uppskriftir nútímans að frægð og frama og við sem fórum bara út að leika og máttum varla vera að því að sofa þar sem það var svo mikið um að vera á hverjum degi í leik og starfi.

stefán geir gunnarsson (IP-tala skráð) 4.7.2010 kl. 23:08

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 5.7.2010 kl. 01:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband