3.5.2015 | 21:43
Húrra fyrir hetjum Landeyjahafnar
Fyrst aðeins að grein minni í 1. maí blaði Eyjalistans.
Þar m.a. kemur fram að sé horft til næstu 30 ára með Landeyjahöfn eins og hún er í dag, þá muni hún að öllum líkindum vera búin að kosta ríkið 50-60 milljarða og samt með sömu og/eða svipuð vandamál og í dag. Varanleg lausn hins vegar á samgöngum okkar eyjamanna myndi hins vegar ekki kosta okkur nema liðlega 30 milljarða, og því til viðbótar má bæta við, að augljóslega mundi sparast miklir fjármunir í framtíðinni með því að geta tekið og endurnýjar allar lagnir milli lands og eyja í gegnum göng.
Ég las grein fyrir nokkru, skrifaða af dæmigerðum landkrabba hér í eyjum, þar sem hann gerði frekar lítið úr vinnu þeirra sem unnið hafa að undanförnu við að dýpka í Landeyjahöfn og tók eftir því að um svipað leyti kom fram tilkynning um að það væri ætlunin að reyna að fá öflugri dæluskip, til þess að vinna verkið hraðar og betur, en frétti ég síðan af því, að haft var samband við erlenda fyrirtækið sem að, á sínum tíma, bauð á móti Björgun í útboði varðandi sanddælingu úr Landeyjahöfn.
Svörin vöktu sérstaka athygli mína, því að í svari hins erlenda fyrirtækis kom fram, að það fyrirtæki hefði engan áhuga að koma frekar að þessari sanddælingu í Landeyjahöfn, vegna þess að þar væri verið að vinna við aðstæður, sem væru ekki bara fáránlegar heldur líka hættulegar, því að það væri einfaldlega þannig að sanddælingar með sanddæluskipum, væru fyrst og fremst unnar við aðstæðum þar sem boðið væri upp á ládauðann sjó og það að bjóða mönnum upp á að vinna upp í 2-3 metra ölduhæð, væri algjörlega galið og ekki bjóðandi upp á.
Þannig að um leið og ég fagna því, eins og allir eyjamenn, að Landeyjahöfn sé loksins opnuð og að veðurspá næstu vikuna sé afar hagstæð, þá er ágætt að vita það hér með að þær aðstæður sem við búum núna við í Landeyjahöfn er eitthvað sem við munum þurfa að búa við, að óbreyttu, í framtíðinni. Ég ætla því að enda þetta með því að segja:
HÚRRA FYRIR HETJUM LANDEYJAHAFNAR
eða þ.e.a.s. áhöfnunum á sanddæluskipunum, sem vinna á skipum sem eru löngu komin á tíma og við aðstæður, sem að samkv. því sem hér kemur fram, engir aðrir myndu láta bjóða sér upp á.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Auðvitað á að leggja göng milli lands og Eyja, átti að hefja þávinnu strax og áform um Landejahöfn komu á borðið.
Úrtölumenn segja að bergið sé ekki nógu gott, en um það er ekki hægt að dæma nema kanna það með tilraunaborunum og auðvitað þarf að kanna það vel, svo Vaðlaheiðagangnavandi komi ekki upp.
Ef það er svo, að tilraunaboraanir segja að bergið milli lands og Eyja sé ekki nógu gott, á einfaldlega að leggja stokk þarna á milli. Það er reyndar dýrari aðgerð en vel framkvæmanleg. Það er í raun sennileg nokkuð sama hvað slík lausn muni kosta, hún verður alltaf ódýrari en Landeyjahöfn, þegar til lengri tíma er litið.
Gunnar Heiðarsson, 4.5.2015 kl. 06:11
Gunnar Heiðarsson, við Eyjamenn stofnuðum félag sem heitir Ægisdyr með það að markmiði að bora göng, og á síðasta fundi sem ég komst á kom það fram að það eina sem stæði í vegi okkar að bora var leifi hjá stjórnvöldum til að fá að bora þrjár tilraunarborholur, eina hér í Eyjum og tvær upp við Ísland!
Það var auðvaldinu ekki þóknanlegt að bora göng, og hef ég mína kenningu um þann verknað sem Landeyjahöfn er.
Það er vilji langflestra Eyjamanna og bora göng, en við erum ekki spurð út í samgöngur, en við vorum spurð um staðsetningu hótels hér á Heimaey!
Helgi Þór Gunnarsson, 16.5.2015 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.