Fór á sjó í dag

og í gær. FÉKK 2 TONN Í GÆR EN 1500 KG Í DAG. Veðrið var frábært báða dagana og spáin fyrir næstu daga er góð. Aflaverðmæti fyrir leigu er ca, 700 þúsund en eftir leigu ca, 300 þúsund og á ég þá eftir að borga olíu, beitningu, beitu og annan kostnað. Það væri nú munur að vera sá sem á kvótann og hafði eftir þessa 2 daga 400 þúsund og engan kostnað. Það væri nú munur ef að ég hefði verið byrjaður í útgerð fyrir árið 1983. Það er verst að það getur eingin tekið við enda held ég að eingvir foreldrar með fullu viti ráðleggi börnunum sínum að fara í útgerð.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða  Þórðar

ja hérna hér.

Beit enginn harðfiskur á öngulinn, settist í trollið eða reif .... ahhh, nótina....eða nótuna.... eða ....nartaði í orminn?

Klár í partýið Goggi minn annaðkvöld?

Heiða Þórðar, 9.6.2007 kl. 00:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband