Stíft róið að undanförnu

Fór á sjó föstudag, sunnudag og mánudag. Afli tæp 5 tonn af blönduðum fiski. Stærsta vandamálið í dag er að finna kvóta, sérstaklega í keilu og löngu (tegundum sem ættu ekki að vera í kvóta). Einnig virðist hugmyndir hafró um að lítið sé af þorsk ekki eiga við rök að styðjast, enda verður víða vart við þorsk. Einnig er erfitt að eiga við ýsuna, því þrátt fyrir mikinn kvóta virðist hún vera ill fáanleg í veiðarfæri.

Veðrið var mjög gott þessa þrjá daga, logn og blíða og þegar ég horfi út um gluggann inn á Flúðir, blasir við spegilsléttur sjórinn. Á morgun fer ég annaðhvort að beita eða í lunda, kemur í ljós.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Er þetta vænn fiskur Georg ?

Níels A. Ársælsson., 2.7.2007 kl. 23:29

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Já Níels, Þorskurinn er mjög blandaður enn í gær mest 15 kg boltar, ýsan er hinsvegar nánast roð og bein.

Georg Eiður Arnarson, 2.7.2007 kl. 23:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband