15.8.2007 | 21:34
Kvótinn ( Mjög merkilegt )
Landssamband smábátaeigenda Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu Orsök lélegrar nýliðunar er ekki að finna í veiðum umfram ráðgjöfFöstudaginn 20. júlí sl. birtist í Fiskifréttum eftirfarandi grein eftir Örn Pálsson, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda:
Gagnrýnt var á heimasíðu LS að ekki væri dregið fram með áberandi hætti að á tímabilinu 1983 til 2006 síðustu 24 árin hefði hrygningarstofninn verið í vexti og í sögulegu hámarki þessa tímabils árið 2005. Meðaltalsstærð hans var 175 þús. tonn á tímabilinu. Mynd 2. Sjá nánar á http://www.smabatar.is/frettir/2007/07/11/1022.shtml). En það er fleira gagnrýnivert í kynningu Hafrannsóknastofnunar á ástandi þorskstofnsins. Lítum á nýliðunina. Eins og varðandi hrygningarstofninn nær kynningarmynd stofnunarinnar um nýliðun til árgangsins sem fæddur er 1952 og er því 3 ára nýliði 1955. Meðfylgjandi mynd um nýliðun (Mynd 3, sem fengin er úr gögnum Hafrannsóknastofnunar) er ekki síður skelfileg en myndin af þróun á stærð hrygningarstofnsins, enda hitti hún beint í mark. Menn sem sátu kynningarfundinn setti hljóða. Mynd 3: Engin nýliðun fyrir ofan meðaltalið 179 milljónir einstaklinga, utan ársins 2000, á undanförnum 22 árum, á tímabilinu 1985 til 2006. Ráðherrar, flestir alþingismenn og blaðamenn, auk formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands tóku andköf. Það verður að sýna ábyrgð og fara nú einu sinni eftir ráðgjöf Hafrannsóknasóknastofnunar! Hefðu þessir aðilar gefið sér tíma til að rýna í skýrslu stofnunarinnar og leita ráðgjafar þeirra sem eru á miðunum allan ársins hring er ég sannfærður um að þeir hefðu litið með líkum hætti til ráðgjafarinnar og stjórn Landssambands smábátaeigenda. Meðfylgjandi mynd (Mynd 4) sýnir hvernig nýliðunin hefur sveiflast á tímabilinu 1985-2006. Lárétta línan sýnir meðaltal 134 milljónir 3 ára nýliða. Er nema von að spurt sé: Hvað er að? Af þessum myndum um nýliðun er ekki hægt að draga þá ályktun að orsök lélegrar nýliðunar sé að finna í veiðum umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Auk þessarar framsetningar er rétt að taka fram að það er engin ávísun á góða nýliðun þótt farið sé að ráðgjöf Hafró um að skerða þorskkvótann um þriðjung. Því til staðfestu er rétt að líta til áranna 1983 og 1984 sem bæði skila gríðargóðri nýliðun, auk ársins 1985 þ e.a.s. nýliðun er betri en áðurnefnt 22 ára tímabil. Þau ár var veiðin langt umfram aflareglu að meðaltali 80 þús. tonn á ári 37% umfram reiknaðan afla samkvæmt aflareglu. Einnig er rétt að skoða nær í tíma. Fiskveiðiárin 1998/1999 og 1999/2000 voru veidd 165 þús. tonn umfram aflareglu eftir að endurmat á stærð veiðistofns hafði farið fram sem er 48% umfram. Það virtist ekki koma að sök því nýliðun á þessum árum var í sögulegum hæðum á hinu 22 ára tímabili. Er það nema von að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um ofsafenginn niðurskurð sé gagnrýnd? Stjórn LS telur að stærð hrygningarstofns og þróun nýliðunar undanfarinna ára sé ekki með óeðlilegum hætti og gefi því ekki tilefni til að boðaður niðurskurður komi til framkvæmda 1. september nk. Þvert á móti hafi uppbygging stofnsins gengið vel á síðastliðnum árum og hann sé afar sterkur um þessar mundir.
|
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég þekki marga sjómenn sem skilja ekkert í þessu frekar en almenningur í landinu, mér finnst ekki mjög flókið, kvótakerfið er ekki að gerasig, ég tippa á sóknakerfi!
Helgi Þór Gunnarsson, 16.8.2007 kl. 10:53
Bæta við athugasemd
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.
Þitt svar. Vinsamlega skrifið undir fullu nafni. Nafnlaus innlegg verða fjarlægð