20.3.2008 | 15:23
vinur
Dag einn bað kennari nemendur sína að skrifa nöfn bekkjarfélaganna á blað.
Þeir áttu að skrifa eitt nafn í hverja línu og hafa auða línu á milli. Síðan
bað hún nemendur sína að hugsa um það besta um hvern og einn og skrifa það
fyrir neðan nafnið. Þegar nemendur fóru úr tíma skiluðu þau blöðunum til
kennarans sem fór með þetta heim og bjó til lista yfir hvern nemanda og
safnaði saman því sem bekkjarfélagarnir höfðu skrifað.
Síðan fengu nemendurnir þetta í hendurnar daginn eftir. Þegar þeir lásu
þetta urðu þeir hissa á öllu því jákvæða sem bekkjarfélagarnir höfðu
skrifað. Þeir höfðu ekki gert sér grein fyrir að þeir skiptu svona miklu
máli. Kennarinn vissi ekki hve mikið nemendurnir ræddu þetta sín á milli eða
við foreldrana en þetta hafði tilætlaðan árangur. Nemendurnir urðu
ánægðari með sig og aðra í bekknum, þeim leið betur.
Lífið hélt áfram.
Mörgum árum seinna lést einn nemendanna sem hét Magnús og kennarinn ákvað að
vera viðstaddur jarðarförina. Einn vinur hins látna gekk til hennar og
spurði hvort hún hefði verið kennarinn hans og sagði að Magnús hefði talað
mikið um hana. Foreldrar hins látna komu einnig til hennar og vildu sýna
henni svolítið. Þau höfðu fundið samanbrotið blað í veski Magnúsar og var
það listinn með öllu jákvæðu atriðunum frá bekkjarfélögunum sem kennarinn
hafði fengið honum fyrir mörgum árum. "Þakka þér fyrir að gera þetta, því
eins og þú sérð þá skipti þetta hann miklu máli" sagði móðir Magnúsar.
Fyrrum bekkjarfélagar tóku undir það og sögðu að þessi listi hefði fylgt
þeim öllum gegnum lífið og skipt þá mjög miklu máli. Þetta var eitt af því
sem þeim þótti vænst um.
Þegar gamli kennarinn heyrði þetta settist hún niður og grét, bæði syrgði
hún Magnús og svo var hún hrærð yfir því að hafa snert nemendur sína með
þessu uppátæki.
Flest okkar hegðum við okkur þannig eins og að við höfum gleymt því að lífið
endar einn góðan veðurdag. Enginn okkar veit hvenær sá dagur verður.
Þess vegna bið ég þig að segja við þá sem þér þykir vænt um hvað þeir séu þér
mikilvægir og eigi sérstakan stað í hjarta þér. Gerðu það oft áður en það
verður of seint.
Eitt af því sem þú getur gert er að senda þetta áfram. Ef þú gerir það ekki
þá hefur þú misst af tækifæri til þess að gera eitthvað gott fyrir þá sem
eru þér mikilvægir.
Ef þú hefur fengið þetta bréf þá er það af því að einhverjum þykir vænt um
þig og að alla vega einni persónu finnst þú vera mikilvæg/ur.
Sendu þetta áfram. Sýndu að þér er annt um vini þína. Mundu að þú uppskerð
eins og þú sáir. Mundu að þú ert mikilvægur einhverjum.
Vona að dagurinn verði þér finn og sérstakur því þú skiptir miklu máli!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Góður boðskapur. Okkur veitir ekki af að fá smá bank á öxlina svona endrum og eins. Ekki sjálfgefið að fara áfallalaust í gegnum lífið, okkur hættir til að taka öllu sem sjálfsagðan hlut. Enginn veit fyrirfram hve löng viðdvölin er hér á jörð
Takk fyrir mig og gleðilega páska
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 20.3.2008 kl. 18:41
Sæll Georg.
Þetta er gull, því, vinátta og kærleikur eru virði gulls á jörð, gull sem mölur og ryð grandar ekki.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 21.3.2008 kl. 01:35
Heill og sæll Georg
Frábært og við getum öll lært af þessari sögu .
Það er allt þetta smáa og hversdagslega, hjálpfýsin, nærgætnin og notalegheitin, sem létta lundina í amstri dagsins ( höfundur ókunnur)
Kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 21.3.2008 kl. 17:07
Gleðilega páska
Ester Sveinbjarnardóttir, 22.3.2008 kl. 19:52
Fallegur boðskapur, takk fyrir hann.
Gleðilega páska,
Ásgerður Jóna Flosadóttir
Ásgerður Jóna Flosadóttir, 23.3.2008 kl. 00:20
Ég sá þessa sömu sögu á blogginu hjá Þorbjörgu Helgu (sem er í borgarstjórn í Reykjavík) og þar sagði hún að hún sjálf hafi upplifað þessa atburði. !!!
Gleðilega páska til þín og þinna.
Halla Rut , 23.3.2008 kl. 12:08
Kæri bloggvinur, ég óska þér og þinum gleðilegra páska.
Sigurður Þórðarson, 23.3.2008 kl. 14:01
Þakka góðar kveðjur og sömuleiðis gleðilega páska öll.
p/s Halla ég fékk þessa sögu senda, en hún er góð fyrir því.
kv.
Georg Eiður Arnarson, 23.3.2008 kl. 17:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.