Lundinn og eineltið

Eru þau málefni sem helst ber á góma í Vestmannaeyjum þessa dagana.

Ég sá á RÚV áðan, þar sem Erpur Snær var enn einu sinni að lýsa því yfir að engin pysja hefði verið í Vestmannaeyjum 4 ár í röð. Ég velti því fyrir mér, hvað fær manninn til að ljúga svona í fjölmiðla og þá sérstaklega varðandi 2005, þar sem engar rannsóknir voru í gangi það ár og ekki hvað síst þegar tekið er tillit til þess, að þó ekki hafi verið mikið af lundapysju í fyrrahaust, þá held ég að það detti engum öðrum en Erpi það í hug að halda því fram að það hafi engin pysja verið. Svo það er orðin stór spurning, hvort að ekki þurfi að kaupa fleiri rannsóknarmenn til Vestmannaeyja til að kanna hvað er að gerast þarna hjá þeim á setrinu.

Mikil umræða hefur verið í Vestmannaeyjum um bók Sigurgeirs, sem hann nefnir Viðurnefni í Vestmannaeyjum. Margir hafa gagnrýnt þessa bók og er ég því sammála, en mig langar að taka lítið dæmi um, hvernig uppnefni eða viðurnefni breytast oft fljótt í einelti.

Í vikunni bárust mér þær hörmungar fréttir að ágætur vinur minn og skólabróðir hefði fundist látinn. Af tillitssemi við móður hann ætla ég ekki að nafngreina hann. Ég man eftir honum úr skóla, þegar hann var að fá sín uppnefni og ég man vel eftir því, að hann var ekkert hrifinn af þeim nöfnum. Hann var sjálfur lítið fyrir að uppnefna fólk og gerði aldrei flugu mein. Það eru nokkrir mánuðir síðan ég talaði við hann síðast, en vegna umræðunnar þá rifjaðist upp fyrir mér samtal sem við áttum fyrir ca. 10 árum síðan. Eftir að hafa fengið nokkur ár í friði fyrir sínum uppnefnum, þá tóku börnin í nágrenninu upp á því að uppnefna hann með gömlu nöfnunum sem hann þoldi aldrei og sagði hann mér, að það væri alveg ljóst að þetta hefðu þau eftir foreldrum sínum. Sjálfur lenti ég í þessu á svipuðum tíma, þegar elsta dóttir mín, sem hefur verið þá 6-7 ára gömul, fór að spyrja mig út í nafngiftir um mig, sem börnin í nágrenninu höfðu eftir sínum foreldrum. Þetta er afar dapurt og alveg ljóst að ekki þola allir slík uppnefni og ég veit það, að vinur minn átti mjög erfitt síðustu árin, að hluta til vegna eineltis.

Ég ætla að enda þessa grein með orðum annars vinar míns, sem sagði við mig í vikunni þessa þekktu setningu:"Aðgát skal höfð í nærveru sálar." Ég held að við ættum öll að hafa þetta í huga í framtíðinni, því engin er saklaus, hvorki ég né aðrir, góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Baldursson

Já, þau eru ansi lífseig viðurnefnin heima. Ég hef sagt það áður með bókina að margt í henni hefði aldrei átt að setja á prent.
Þær voru hörmulegar fréttirnar að heima um atvikið í Kaplagjótu. Mér fannst alger óþarfi hjá fjölmiðlum að segja að þetta væri að öllum líkindum sjálfsvíg. Það var alveg nóg það sem fram var komið að ekkert benti til þess að neinn annar ætti hlut að máli. Hinu hefði alveg mátt sleppa.

Aðalsteinn Baldursson, 13.9.2008 kl. 20:14

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Já Aðalsteinn , sammála þér og takk fyrir að vera orðinn bloggvinur minn . kv .

Georg Eiður Arnarson, 13.9.2008 kl. 21:42

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Ég votta þér og öðrum samúð mína vegna vinarmissis.

Aðgát í nærveru sálar er eru aldrei of oft sögð orð, svo mikið er víst.

Varð annars einmitt hugsað til þín þegar ég sá fréttina um Lundann.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 14.9.2008 kl. 00:43

4 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

TEk undir með þér Georg.  Nafngifir hafa alla tíð verið einkennandi í mannlífinu í Eyjum. Sumar hverjar eru jákvæðar og endurspegla gjarnan gólátlegt grín en oftar en ekki eru viðurnefnin neikvæð og vísa í neikvæða þætti og gera ímynd viðkomandi neikvæða.  Margur hefur einmitt farið illa út af slíkum uppnefnum.

Ég votta þér samúð mína vegna vinar þíns. Tek undir orð Aðalsteins um að fréttaflutningurinn var mjög ónærgætinn og hlýtur að hafa verið mjög særandi fyrir aðstandendur. Lítil virðing gagnvart látnum manni. Það að taka líf sitt skilur eftir sig djúp sár og erfiða reynslu fyrir þá sem eftir lifa sem tekur langan tíma til að vinna sig úr. Fréttaflutningur sem þessi fyrir alþjóð eykur enn á þann sársauka  og er til háborinar skammar. Mér þætti fróðlegt að vita hver bar ábyrgð á honum.

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 14.9.2008 kl. 09:38

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

þakka ykkur fyrir samúðar kveðjur . Kær kveðja .

Georg Eiður Arnarson, 14.9.2008 kl. 12:39

6 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Heill og sæll Georg tek heilshugar undir orð þín að ;  aðgát skal höfð í nærveru sálar. Votta þér einnig samúðar vegna fráfalls vinar. Það er með ólíkindum eftir allar þessar neikvæðu umræðu, að þessi bók skuli ekki vera tekin úr sölu.

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 14.9.2008 kl. 14:19

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Simmi og takk fyrir kveðjuna. Ég bara trúi því varla að þessi bók sé ennþá til sölu og ætla mér að kanna málið. Kveðja

Georg Eiður Arnarson, 14.9.2008 kl. 19:50

8 identicon

hæ pabbi minn ég samhryggist þér innilega vegna vinar missis þíns og vonandi fer fólk bara að taka sig á í andlitinu og vera ekki að uppnefna fólk því það er frekar "lummó" að vera að uppnefna fólk sem að jafnframt hefur manni ekkert gert ! 

svavar þór georgsson (IP-tala skráð) 15.9.2008 kl. 18:43

9 identicon

Hæ kæri stóri bróðir það var mjög gott hjá þér að skrifa þetta. Ég mann vel eftir honum vini þínum og, það var mjög oft sema ég vorkendi honum

en ekki gleymist svona uppnefni ,við fengum nú okkar skamt af því og sumir eru sterkari en aðrir ,en það gleymist alldrei.

En sem betur fer er auðveldari nú í skólum er meira rætt um þetta við börn í dag , og já þess vegna veit maður að þetta kemur frá foreldrum

og það er sorglegt að svona er en við matarborðið hjá flestum ,við virðumst aldrei ættla að læra að koma fram við manneskju eins og manneskju

því að ekki erum við nokkuð betri en aðrir , þér taka það til sin sem vilja eða hafa slæma samvisku... Kveð núna litla systir

Inga (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 01:52

10 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, ég var að koma af sjó í dag og sá þessa grein hjá þér, ég var reyndar búin að frétta um slysið vestur á eyju og ég sendi þér hugheilar samúðarkveðjur, góður drengur farin þar á vit feðra sinna, ég sammála þér í þessari grein Georg, kærar kveðjur frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 17.9.2008 kl. 21:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband