26.9.2008 | 18:48
Rok, ak, bak, lund, ball.
Það hefur varla slegið niður fyrir 30 metrana s.l. sólarhring og alveg merkilegt að sjá Herjólf á áætlun. Hann er seigur sá gamli.
Nokkur umræða hefur verið meðal bæjarbúa varðandi þessar þrengingar á Skólaveginum. Ég tók fyrst eftir þessu þegar byrjað var á framkvæmdum á mótum Skólavegs og Faxastígs og fannst þetta full mikil þrenging, en síðan var það útskýrt fyrir mér, að þetta ætti líka að virka sem hraðahindrun og er það í sjálfu sér í lagi. Nú sé ég hinsvegar að það er verið að setja þessar þrengingar á öll gatnamót við Skólaveg og lenti ég í því í dag, á mínum stirða og gamla pick-up, að rétt ná beygjunni á horninu við Lífeyrissjóðin. Nú er ég enginn sérfræðingur í vegagerð, eða þrengingum, en þetta skipulag við Skólaveginn virkar hálf furðulega á mig og stór spurning hvort að bæjarfélagið hafi ekki nóg annað við peningana að gera, en að setja í þessa vitleysu, en þannig var þetta orðað við mig í dag.
Í Vaktinni er Elliði bæjarstjóri enn einu sinni með hástemmdar yfirlýsingar um Bakkafjöru, en í raun og veru finnst mér það ekki skipta nokkru máli lengur, því að allar hugsanlegar mælingar um það hvort fært sé eða ófært í Bakkafjöru, munu að sjálfsögðu mega sín lítils á móti því sem reynslan kemur til með að kenna okkur. En svona til gamans, mitt sjónarmið. Það eru tvær aðal ástæður fyrir því, að ég vill ekki Bakkafjöru. Í fyrra lagi sá möguleiki að samgöngur okkar versni verulega, t.d. ef ófært yrði í þriggja eða fjögurra metra ölduhæð, sem er að jafnaði 3-4 mánuði á ári. Hitt atriðið er að ef fært verður þarna í jafnvel 5 metra ölduhæð eða meira, þá er alveg ljóst að fyrr eða síðar verður farið að bjóða upp á löndunar þjónustu þarna, með hörmulegum afleiðingum fyrir bæði fiskvinnslufólk í eyjum og höfnina, sem og bæjarfélagið.
Á morgun er lundaball Helliseyinga í Höllinni, en við sem erum í veiðifélaginu Heimaey, ætlum að koma saman annað kvöld í Blíðu kró. Búið er að stilla upp grillunum, kaupa steikurnar og mjöðinn, einnig er allt tilbúið til tónlistar flutnings, sem og margs konar skemmtiefni sem unnið hefur verið að s.l. sólarhring.
Meira seinna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Á ég virkilega að trúa því að meðliðmir í Veiðfélaginu Heimaey hafi ekki verið boðin sjálfsögð þátttaka á Lundaballinu??
Ef ég skil þetta rétt, þá er það svo. Flott hjá ykkur að efna til eigin fagnaðar en þetta segir allt sem þarf að segja um veiðfélögin og helstu forráðamenn þeirra.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 26.9.2008 kl. 22:03
Þið getið séð ástæðurnar í greininni og athugasemdum hjá mér á undan þessari . kv .
Georg Eiður Arnarson, 26.9.2008 kl. 22:46
Alls staðar leynast leynusktturnar
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 30.9.2008 kl. 23:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.