Kvótinn

Landssamband smábátaeigenda

27. september 2008 :

Krókur og Farsæll vilja að kvótalausir fái geymslurétt


Á aðalfundum Króks og Farsæls sem haldnir voru í þessari viku var mikið rætt um 20% geymslurétt milli ára.


Í lögum um stjórn fiskveiða er geymsluréttur bundinn við aflamark sem úthlutað er á grundvelli aflahlutdeildar. Kvótalausir hafa því engan rétt á að geyma veiðiheimildir milli ára. Gildir þar einu hvort menn hafi leigt hundruðir tonna til sín.


Á fundunum tveim töldu menn þetta ósanngjarnt og leggja til að kvótalausir fái rétt til að geyma milli ára.


Auk núgildandi ákvæðis verði geymsluréttur miðaður við það sem veitt er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Get ekki betur séð en hér sé um sjálfsagt réttætismál að ræða í raun.

Kerfið sjálft er hins vegar ónýtt, og þarf að stokka upp og breyta.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 28.9.2008 kl. 23:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband