Til að læra af


Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur. Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur. Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir. Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Thule-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því. Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!  

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Góður! Ekki veitti af í grámyglu hversdagsleiksins

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 13.10.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

það er bara einn galli við að það sé búið að þýða þetta yfir á íslensku.

þetta er ekki rétt.

til þess að fá 21.400 krónur út úr dósum sem að þú kaupir fyrri 100.000 þá þarf dósin að hafa kostað ca 50 krónur. 

en aftur á móti einsog ég sá þetta á ensku þá var það aftur á móti réttar tölur :) 

Árni Sigurður Pétursson, 13.10.2008 kl. 21:40

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Alveg stórkostlegt Georg.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 13.10.2008 kl. 23:55

4 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Þessi er sterkur.

Sigurjón Þórðarson, 16.10.2008 kl. 17:16

5 Smámynd: Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Þessi er góður Georg

kær kveðja

Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 16.10.2008 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband