1.11.2008 | 11:53
Krepputal
Það er orðið langt síðan að maður heyrði einhvern fréttatíma, þar sem ekki var talað um kreppu og sennilega er líka langt þangað til að maður heyrir einhvern fréttatíma, þar sem ekki er minnst á kreppu. það sem hinsvegar hefur vakið athygli mína sérstaklega að undanförnu eru yfirlýsingar íhaldsmanna um að nú sé svo sannarlega ekki rétti tíminn til að fara í Alþingiskosningar. Ég er enn að bíða eftir því, að einhver íhaldsmaður orði þetta bara hreint út sagt:" Það er einfaldlega ekki gott fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fara í kosningar núna, enda bera þeir að mestu leiti ábyrgðina á kreppunni" enda held ég að fáir muni eftir ríkisstjórn, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er ekki í aðalhlutverki. En einhvern tímann verður kosið, en þá er spurning, verður fólk búið að gleyma, eða verður nóg að bjóða fólki í t.d. "tuðruferðir."
Af bæjarmálunum okkar, þá hefur Elliði bæjarstjóri farið mikinn á eyjamiðlunum að undanförnu og það nýjasta nýtt eru þessar tölulegu staðreyndir, um hversu há leigan er á skólum og öðrum stofnunum, sem á sínum tíma voru seld Fasteign og ef ég skyldi grein hans rétt, að kosti okkur í dag hátt í 15 milljónir á mánuði í leigu. Við þessu höfum við í Frjálslynda flokknum varað, sem og öðrum málum eins og t.d. sölu hlutabréfanna í Hitaveitu suðurnesja, þó að hluturinn hafi vissulega verið lítill og góður peningur fengist fyrir bréfin, þá hlýtur það að gefa auga leið að það þýðir lítið að barma sér, ef hitaveitan hækkar á svipaðan hátt að það þýðir lítið að barma sér, þegar leigan á skólunum hækkar. Sama gildir að sjálfsögðu með Bakkafjöru. Ef dæmið gengur upp þar og þar rís löndunarhöfn, þá þýðir lítið að segja:" Þetta átti ekki að fara svona." Það er full seint að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í.
Af öðrum málum. Síðast liðna viku hef ég farið 4 sinnum á sjó, fiskiríið verið alveg ljómandi, eða liðlega 8 tonn, mest ýsa. Einnig er farið að sjást töluvert af fallegum þorsk, svo nú hlýtur sjávarútvegsráðherra að fara að rumska úr þyrniróssvefninum. Nú hinsvegar er komin bræla og spáir brælu nánast alla næstu viku. Unnið er á vöktum í síldinni í Ísfélaginu og Vinnslustöðin er búin að senda bát á miðin. Ekki veitir fólkinu af tekjunum í þessu kreppuástandi, en nóg um það.
Ég sagði frá því í minni síðustu grein, að Ystaklettsmenn hefðu verið fyrstir til að starta jólunum í ár, en eitthvað eru menn styggir þar á bæ, en ég sé núna að það er búið að slökkva á ljósunum. Mér þykir það nú bara dapurt og skora á þá að kveikja á ljósunum aftur, því að það er nú bara gaman að þessu, svo má kannski líka nota kofann í Ystakletti til að hefja strangar æfingar í allan vetur fyrir það lið, sem við sendum á næsta ári í næsta útsvars þátt, eftir útreiðina í gær. Ekki veitir af.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Smá innlit kv valdi
þorvaldur Hermannsson, 1.11.2008 kl. 12:46
Frábær pistill Georg.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 1.11.2008 kl. 23:17
Frábær pistill. Ekki fæ ég séð hvernig bæjatstjórn ætli sér að réttlæta þær leigutekur sem teknar eru úr bæjarsjóði, ekki það að hún hafi mikið val enda samkeppni um húsnæðið engin en það hljóta allir að sjá að fátt réttlætir þessar háu greiðslur.
Mér heyrist sem Ystaklettsmenn verði að fara gægjast ofan í strategíu sína á mörgum sviðum.
En fer ekki að styttast í kosningar annars??
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 2.11.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.