10.11.2008 | 20:25
Kreppu kvóta jól
Það er svolítið merkilegt að skoða, hvaða áhrif kreppan hefur haft á smáauglýsingarnar í blöðunum og svo að ég taki sem dæmi; bílar hafa lækkað verulega í verði og eru margar auglýsingar, þar sem boðin er yfirtaka á láni orðaðar þannig, að með í kaupunum fylgi oft væn fúlga og jafnvel að seljandi borgi af bílnum næsta árið. Einnig tók ég eftir því að í sumar var oft auglýst undir nafninu nudd og tekið fram að ekki væri um erótískt nudd að ræða, núna hinsvegar stendur; exclusive tantra massage, for men, women or couples. Einnig er orðið mikið um auglýsingar, þar sem auglýstar eru evrur og dollarar til sölu, svo einhverjir ætla sér að græða á kreppunni.
Töluverð umræða er um áhrif kreppunnar hér í eyjum, og eru flestar sögurnar á þann veginn, að hinir og þessir útgerðarmenn hafi verið að taka allt of mikla áhættu í von um gróða, með því að taka erlend lán til kaupa á hlutabréfum, sem núna eru töpuð. Þetta er að sjálfsögðu mikið áhyggju efni og vonandi þýðir þetta ekki að skip eða aflaheimildir fari frá eyjum, því að eins og ég hef oft sagt áður, þá er útgerðin lífæð eyjamanna, því hér verður aldrei reist álver.
Fór á sjó í fyrrakvöld í frekar leiðinlegu veðri, eða eins og Dolli heitinn vinur minn kallaði það, hálfgerðu skítasjólagi, en afli var ágætur, eða tvö tonn á 15 bala, mest ýsa.
Að lokum þetta: Mér finnst oft ágætt, eins og mörgum öðrum eyjamönnum, að fá mér gönguferð í gegnum bæinn, bæði til líkamlegrar og andlegrar hressingar. Ég fékk mail um daginn, þar sem bloggarar eru að skora á hvern annan að reyna að hressa okkur við með því að setja ljós út í glugga og ég sé að margir hafa gert það. Einnig er farið að bera töluvert á jólaskreytingum hjá sumum í gluggunum og er það nú bara gaman (nema hjá Ystaklettsmönnum, en það er greinilegt að þeir hafi lent í jólakettinum fyrir að starta jólunum of snemma). Svo að ég klári þetta á jákvæðan hátt, þrátt fyrir allt krepputal, þá er ég alveg viss um það að Heimaklettur verður hérna ennþá á morgun.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg.
Já ég held maður fari bara að draga fram jólaseríur fljótlega, það er sama hér maður er farin að sjá menn lýsa upp skammdegið.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 11.11.2008 kl. 01:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.