23.11.2008 | 16:24
Neikvætt og jákvætt
Svo ég byrji nú á því neikvæða fyrst, þá er það að sjálfsögðu hrun bankanna og afleiðingar þess undanfarnar vikur. Það er ljóst að botninum er ekki náð, en í mínum huga er það orðið alveg ljóst, að ég tel ekki verjandi lengur annað en að boðað verði til kosninga í vor, enda hefur þessi ríkisstjórn ekki lengur umboð þjóðarinnar, eins og nýjustu skoðanakannanir sýna. Annað neikvætt er sú staðreynd, að skyndilega eru samgöngumál eyjamanna komin 30 ár aftur í tímann og það eina sem íhaldsmenn í eyjum hafa til málanna að leggja, er eitthvað undarlegt hjal um að þetta reddist allt með Bakkafjöru og það nýjasta nýtt, að bjóða fólki að skrá sig í Gleðibankann í eyjum. Bæði undarlegt og hálf fáránlegt í sjálfu sér, en það er nú svo. Sumum finnst einfaldlega best að stinga hausnum í sandinn í von um að kreppan hverfi af sjálfu sér.
Það var ágætis fundur hjá Frjálslyndum síðasta fimmtudagskvöld, þótt mætingin hefði mátt vera betri og dapurlegast þótti mér að sjá, að þrátt fyrir áskorun mína í síðustu viku um að sjómenn og útgerðarmenn fjölmenntu á fundinn, þá hafði enginn af þeim kjark til að mæta. Fundurinn var hinsvegar mjög góður og upplýsandi, en ég get ekki neitað því, að mest af tímanum fór í umræður um bankakreppuna og að eftir allar þær upplýsingar sem komu þarna fram, þá fór svona léttur hrollur um mann.
Nýjasta nýtt í útgerðinni er að hugsanlega er búið að selja Narfa VE frá eyjum, en það jákvæða er að mér skilst að enginn kvóti fari með og að útgerðarmaðurinn sé að leita að minni og hagkvæmari bát, sem er nú bara jákvætt. Sjálfur fór ég á sjó á föstudaginn. Fiskiríið var ekkert sérstakt, eða ca. 1800 kg á 15 bala, en tíðin er afar erfið í eyjum um þessar mundir.
Það jákvæðasta í eyjum síðustu vikurnar að mínu mati, er að kannski má segja sem svo að loksins sé allt komið fram af mínum óskalista sem að ég setti fram, starfandi í atvinnumálanefnd Vestmannaeyja fyrir nokkrum árum síðan. Margar góðar hugmyndir komu fram hjá þeim nefndum, en því miður hefur lítið af þeim hugmyndum gengið fram, en ég valdi mig á sínum tíma inn í nefnd um fiskvinnslumál og setti fram þrjú atriði, sem að ég vildi sjá. Það fyrsta, að við tækjum hausana og afskurðinn sem við vorum að flytja til vinnslu í Hafnarfirði og færum að vinna þetta hérna í eyjum og er það allt komið fram (það versta að lyktin þarna er ekkert mjög spennandi). Annað atriði var að ég vildi að við færum aftur að vinna harðfisk í eyjum, það hefur gengið eftir og persónulega finnst mér harðfiskurinn í Godthaab sá besti í landinu. Þriðja og síðasta var, að ég vildi sjá fiskbúð aftur í eyjum og gekk það svo langt að ég var búin að fá vin minn, Val Andersen, til að bjóða í húsnæði með það í huga að opna slíka verslun. Ekki gekk þetta í gegn á sínum tíma, en kannski má segja sem svo, að ég hafi ekki verið hættur, vegna þess að sjálfur á ég í dag þetta húsnæði sem Valur reyndi að kaupa á sínum tíma, en hef sjálfur hvorki haft tíma né peninga til þess að starta slíku, en er þess vegna mjög ánægjulegt að sjá tvö fiskvinnslufyrirtæki í Vestmannaeyjum auglýsa margs konar fisk til sölu í eyjum og er boðið upp á heimsendingarþjónustu, sem mér finnst alveg frábær hugmynd. Þarna erum við að mínu mati á réttri leið. Vestmannaeyjar byggðust upp vegna nálægðar við fiskimiðin. Þetta er það sem við kunnum og þekkjum þ.e.a.s. veiða og vinna fisk. Það eina sem vantar upp á er að fyrirtækin hér setji meira fé í frekari fullvinnslu á afurðunum, þannig held ég að við eigum mestan möguleika á að fjölga störfum hér í eyjum, vonandi er þetta bara byrjunin.
p/s svo væri nú heldur ekkert verra, ef menn færu nú að reyna að klára þessi mál varðandi Skipalyftuna. Það er nú til háborinnar skammar að geta ekki lengur tekið upp skip í Vestmannaeyjum, en vonandi stendur það til bótar.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Spurningin er , verður framkvæmdavaldinu nokkuð skipt út nema með kosningum ? . kv .
Georg Eiður Arnarson, 23.11.2008 kl. 21:36
Fróðlegur pistill Georg eins og þín er von og venja.
Það er afskaplega ánægjulegt að vita að menn séu að horfa á þróun heima fyrir í ríkara mæli í atvinnusköpun, en eins og þú segir er þarf sannarlega að fá fé í fullvinnslu afurða.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 24.11.2008 kl. 01:06
Allt í Tölvuhassi hjá mér.
hbj (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.