7.12.2008 | 10:59
Algjört krútt
Eru börnin ekki yndisleg?
Mamma var ekki heima og pabbi var að passa mig. Ég var ekki nema eins og
hálfs árs gömul.
Einhver hafði gefið mér tesett sem var eitt af uppáhalds leikföngunum
mínum.
Pabbi sat inni í stofu í öðrum heimi við að lesa dagblöðin og bróðir minn
var að dunda sér í rólegheitum.
Ég færði pabba te sem auðvitað var bara vatn. Eftir fjöldan allan af
tebollum og helling af hrósi frá pabba þá kom mamma heim.
Pabbi sagði henni að bíða og kíkja og sjá hvað þetta væri sætt að sjá mig
færa honum te, ég væri bara algjört krútt.
Mamma beið og horfði þegar ég kom enn eina ferðina með tebolla handa
pabba. Hún horfði á hann drekka teið og þegar hann hafði klárað úr
bollanum varð henni á orði;
Gerir þú þér grein fyrir að eini staðurinn sem þetta litla barn getur
komist í vatn er beint út klósettinu??
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
He he he..... þessi var nokkuð góð.
kv.gmaria.
Guðrún María Óskarsdóttir., 7.12.2008 kl. 23:38
hehe, teið hefur án efa verið einstaklega ljúffengt
Brynja (IP-tala skráð) 8.12.2008 kl. 22:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.