Herjólfur, róður, fundur og Eyjabúð

Það er hálf ótrúlegt að horfa upp á allt þetta sem er að gerast með Herjólf. Stöðugt bilar meira og meira um borð og þetta nýjasta, sem skeði á laugardaginn. Ekki bara að það bilaði önnur vélin og það þurfti að fá viðgerðarmenn um borð til að vinna að viðgerðinni á ferð, heldur bilaði líka hin vélin og á tímabili var Herjólfur á reki úti fyrir suðurströnd Íslands, einhverri hættulegustu siglingaleið við Ísland. Þetta er allt saman hálf ótrúlegt og fær merkilega litla umfjöllun í landsblöðunum, fyrir utan það að enn heyrist lítið í þessum svokölluðu þingmönnum eyjamanna. Ég hef hins vegar haft samband við þingmann minn, Grétar Mar Jónsson, sett hann inn í málið og skora á aðra eyjamenn, hvar sem í flokki þeir standa, að ræða við sína þingmenn. Þetta er ekki boðlegt lengur og legg ég því til, að þeir fjármunir sem þegar er búið að setja til hliðar vegna Bakkafjöru, henni verði frestað og smíði á nýju skipi hafin strax. Eða að minnsta kosti leit að betra skipi.

Fór á sjó kl. 16 á laugardaginn, var búinn að landa kl. 2 um nóttina, en fór aftur af stað til að nýta blíðuna kl. 4 um nóttina. Fór því samtals með 22 bjóð, fiskiríið var gott, eða liðlega 3 tonn í heildina, mest ýsa.

Þar síðasta sunnudag mætti ég á ágætan fund, sem Árni Johnsen stóð fyrir. Fundurinn var svo sem ágætur og mæting góð, en aðal umræðuefnið var atvinnumál, staðan og útlitið framundan. Það sem vakti einna mesta athygli hjá mér, var sú að ekki var mikill barlómur í útgerðarmönnum, þrátt fyrir að alveg sé ljóst að gengi krónunnar hafi haft veruleg áhrif á skuldir fyrirtækjanna. Flestir voru þó á jákvæðum nótum, en dapurlegast þótti mér þó að heyra einn útgerðarmanninn lýsa því yfir, að hér væri engin kreppa, þetta væri allt saman bara kjaftæði og það á sama tíma og þúsundir manna eru að missa vinnuna, heimili sín og margir fullorðnir jafnvel ævisparnað sinn. En það er nú svo. Elliði bæjarstjóri var eins og vanalega á því að hér væri bara gull og grænir skógar og í fyrsta skipti í mörg ár væri fjölgun í Vestmannaeyjum. Ég er aljgörlega sammála því, en vandinn er hins vegar sá, að vandamálið er það (eins og Elliði hefur sjálfur minnst á einhverntímann) að hér vantar fyrst og fremst fleiri störf. Því miður er hér enga atvinnu að hafa. Annað sem Elliði minntist á og ég hef kallað eftir hér á blogginu, en ekki fengið svar áður, er hvernig staðan er á hitaveitupeningum okkar 3,6 milljörðum. Ekki fékkst reyndar upp, hvernig staðan væri í dag, en Elliði upplýsti þó það, að aðeins hefði verið tekið af þeim fjármunum til að greiða niður skuldir bæjarfélagsins. Það er hins vegar nokkuð ljóst, að staðan í fjármálum bæjarins væri að sjálfsögðu afar erfið, eftir langvarandi eyðslu fyllerí íhaldsmanna síðustu áratugi, ef ekki hefði komið til sala á þessum hlut okkar í Hitaveitu Suðurnesja. Gallinn er hins vegar sá, að hér eftir höfum við ekkert um það að segja, þegar gjaldskráin hækkar hjá Hitaveitu Suðurnesja.

Eyjabúð lokaði á föstudaginn eftir að hafa starfað í 55 ár. Mér þótti það mjög dapurt, enda verslað þarna frá því áður en ég byrjaði í útgerð. Mig langar að þakka Friðfinni og fjölskyldu hans fyrir lipurðina og spjallið síðustu áratugi. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að margir eigi eftir að sakna þessarar verslunnar, en kannski má líka taka undir með orðum eigandans, um að verslunin hafi verið orðin svolítið gamaldags, en mér fannst Eyjabúð altaf vera gömul en góð og kem til með að sakna hennar mikið. En kannski er þetta hluti af hagræðingunni, þar sem persónuleg þjónusta víkur fyrir einhvers konar vél- eða rafvæðingu.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Það er mikið rétt að þetta er ekki boðlegt lengur varðandi Herjólf, og lítil og léleg umfjöllun fjölmiðla um málið.

kv.gmaria.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.12.2008 kl. 01:25

2 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

flest skip eru með eina aðalvél - gott að Herjólfur er ekki þannig útbúinn - velti fyrir mér hvað hann sé búinn að sigla marga klukkutímana á þessum árum

Jón Snæbjörnsson, 16.12.2008 kl. 16:28

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Jón , vélin í mínum bát er 10 ára og notuð  80 til 100 daga á ári og er komin í 13000 tíma . Vélarnar í Herjólfi eru 16 ára og keyrðar 350 til 360 daga á ári , það er því ekki ólíklekt að þær séu farnar að nálgast 50000 tíma ,  en þær hafa þó nokkrum sinnum verið teknar upp . Hitt er svo ekki spurning að mínu mati að það er fyrir löngu kominn tími á nýtt skip .

Georg Eiður Arnarson, 16.12.2008 kl. 19:54

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það væri best að gera það sem löngu hefði átt að vera búið " Slá Bakkafjöruklúðrið af og leggja fjármuni í ALVÖRU samgöngubætur milli Lands og Eyja".  En vegna pólitískra trúarbragða halda menn dauðahaldi í einhverja vitleysu, sem flestir gera sér grein fyrir, að er ekki framkvæmanleg.

Jóhann Elíasson, 16.12.2008 kl. 20:43

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála þér Jóhann , en því miður er það víst svo að of margir " sjóveikir" ráða ferðinni . kv .

Georg Eiður Arnarson, 16.12.2008 kl. 21:17

6 identicon

Ósammála þér Jóhann og ósammála Georg.

Jóhann, það væri rosalega gaman af fá hjá þér rökstuðning með öllum þessum stóru fullyrðingum hjá þér, hér að ofan.

 Því vil ég að þú svarir mér þessum spurningum með rökum.

1: Af hverju er hafnarmannvirki í Bakkafjöru, "Bakkafjöruklúður" og vitleysa?

2: Hverjar eru þessar "ALVÖRU" samgöngubætur og þá hvernig erum við þá bættari með þær en höfn í Bakkafjöru?

3: Hver eru þessi pólitísku trúarbrögð og hvernig tengjast þau Bakkafjöru?

4: Hvaða upplýsingar hefur þú sem sanna þessi orð þin um að; "flestir geri sér grein fyrir, að er ekki framkvæmaleg"?

Og Georg, ekki veit ég hvort þetta eigi að vera spaug hjá þér en ég held (án þess ég fullyrði) að það sé fleiri sjónarmið en sjóveiki sem segi til um afstöðuna gagnvart þessu máli s.s. tíðari ferðir og fleira.

Þór (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 23:18

7 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

já það væri nú þónokkuð gaman að fá svör við þessu.

kv. Árni

eða einsog Jóhann segir.

rökþrota drulluslagarinn 

Árni Sigurður Pétursson, 18.12.2008 kl. 07:09

8 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Þór , og takk fyrir þessar spurningar . Varðandi sjóveikina þá er þetta það atriði sem flestir hafa nemt við mig sem lykilatriðið varðandi áhuga þeirra á Bakkafjöru , það er að sega styttri sjóferð fyrir þá sem eru sjóveikir , þetta skil ég mjög vel því sjóveikin er ekkert grín , hinsvegar eru fjölmörg önnur  atriði sem fólk hefur líka  talið upp eins og þú bentir réttilega á .

 Mín afstaða til Bakkfjöru er hinsvegar sú að hættan á því að ef þessi höfn verður nothæf ? Er sú að skip frá eyjum fari að landa þarna , það hefði gríðarleg neikvæð áhrif á Eyjarnar og þess vegna tel ég ekki verjandi að fara í þessa hafnargerð fyrir utan það að vegna fjármálakreppunnar er algerlega óvíst hvort og þá hvenær fjármagn fæst til að klára þetta . Ef þú vilt að ég svari hinum spurningunum frá þér þá er það alveg sjálfsagt mál , en gætu þurft að bíða þangað til seinna í dag eða í kvöld . kv .

Georg Eiður Arnarson, 18.12.2008 kl. 11:17

9 identicon

Biðst velvirðingar á að það vantaði endann á nafninu mínu í athugasemdinni hér fyrir ofan.

Nafn mitt er Þórir og ég er ólafsson.

Þórir (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 12:20

10 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Þórir Ólafsson (kannast eitthvað við nafnið, en ekki alveg manninn)

Ég hef það fyrir sið að svara helst öllum spurningum sem koma á bloggið hjá mér, hvort sem þeim sé beint til mín eða ekki, svo hér kemur þetta.

Fyrsta spurningin: Bakkafjöruklúður og vitleysa.

Um nokkurra mánaðaskeið fjallaði ég ýtarlega um Bakkafjöru og kallaði þetta klúður. Ástæðan var sú m.a. að ég átti nokkur viðtöl við starfsmenn Siglingamálastofnunnar, þar sem sumir settu fram ákveðnar upplýsingar um hvernig standa ætti að höfninni og ferjunni, en sem kom svo síðar í ljós, þegar bæklingi samgönguráðherra var dreift hér í janúar s.l., voru allt aðrar en þar kom fram. Hins vegar, þegar ég lagði spurningar fyrir yfirmann þessarar stofnunnar, þá voru svörin fyrst og fremst í samræmi við bækling samgönguráðherra, m.a. var þetta til þess að ég hætti að fjalla um bakkafjöru, enda hef ég engan áhuga á því, að einhverjir missi vinnuna fyrir að segja sína skoðun. Þetta kalla ég klúður og vitleysu.

Önnur spurning: Alvöru samgöngubætur kalla ég það að fá skip, sambærilegt og Smyril í Færeyjum, sem gengur að jafnaði 21 mílu, tekur 1000 manns í sæti, 250 bíla, er með þrennar inn- og útkeyrsludyr fyrir bíla, þar af eina á hliðinni og er einnig með það öflugar hliðarskrúfur, að ég varð vitni að því þegar skipið sigldi á hlið að bryggju. Eini gallinn er sá, að það yrði að gera breytingar á höfninni í Þorlákshöfn, en þær eru nú þegar komnar á teikniborðið vegna hugsanlegrar stóriðju í Þorlákshöfn. Og að sjálfsögðu, með svona öflugu skipi yrðu frátafir með svona öflugu skipi nánast úr sögunni.

Þriðja spurning: Það er hægt að kalla það pólitísk trúarbrögð, hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur látið hér í eyjum varðandi Bakkafjöru, t.d. var haldinn fundur (eftir því sem mér er sagt) í höllinni 2001, þar sem ákveðið var að stefna ætti að Bakkafjöru framkvæmdinni og það löngu áður en einhverjar rannsóknir voru hafnar þar. Svo er það að sjálfsögðu líka pólitísk ákvörðun að hafna áskorun liðlega 40% eyjamanna um að fá að kjósa um sín samgöngumál.

Fjórða spurning: Ég held að það sé mjög erfitt að fullyrða það, að flestir geri sér grein fyrir því að þetta sé ekki framkvæmanlegt. Ég held hins vegar, að mikill meirihluti eyjamanna hafi ýmsar efasemdir og athugasemdir um þessa framkvæmd.

Endilega ef það er eitthvað fleira, þá skal ég gera mitt besta til að svara.

Kveðja

Georg Eiður Arnarson, 18.12.2008 kl. 15:15

11 identicon

Heill og sæll Georg.

Þú kaust að svara þeim spurningum sem ég beindi til Jóhanns, en fyrst þú tekur undir hans sleggjudóma var ágætt að sjá hér rök fyrir þeim hjá þér og tel mig halda að Jóhann taki undir með þér.

Það eru nokkur atriði sem ég hnýt um og langar mig þá að fá frekari ústkýringar á þeim.

Hvað þér og öðrum innan siglingamálastofnunnar fór á milli get ég ekkert tjáð mig um.

Varðandi "alvöru" samgöngubætur velti ég því fyrir mér hvort það hafi ekki þá líka verið alvöru samgöngubætur þegar "svarta" Herjólfi var skipt út fyrir þeim "hvíta" og var það þá ekki "alvöru" samgöngubætur að skipta út "hvíta" fyrir þann sem nú þjónar okkurnúna. Í samræmi við það, væri það ekki "alvöru"samgöngbætur ef við lengdum þann sem nú er og settum í hann stærri og öflugri vélar. Það væru sjálfsögðu samgöngubætur.

Varðandi trúarbrögðin pólitísku, þá eru þeir sem ekki eru hlyntir þessari framkvæmd og eru í Sjálfstæðisflokknum engir trúvillingar. Ég sem flokksbundinn sjálfstæðiflokknum og fylgjandi þessari framkvæmd tel mig ekki vera leiddan í blindni til að styðja þetta heldur er ég fær að taka þá ákvörðun sjálfur. Því eins mætti telja þaðsem ákveðin trúarbrögð hjá Frjálslyndaflokknum að styðja þetta ekki og þá trúarbrögðin hjá hinum flokkunum að taka ekki ákvörðun. 

Málið er að hér var kosið til bæjarstórnar á sínum tíma þar sem þessi framkvæmd var nr. 2 á forganslistanum hjá Sjálfstæðisflokknum. Nr. 1 voru jarðgöngin og nr. 3 var svo stærra og öflugra skip. Hvað kom uppúr kjörkassanum vitum við, Sjálfstæðisflokkurinn fékk meirihluta.

Að lokum finnst mér það skjóta skökku við að þú skulir treysta þeim hjá Siglingamálastofnun þegar kemur að stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn en ekki byggingu hafnar í Bakkafjöru.

Þórir (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 19:38

12 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Þórir , að sjálfsögðu er nýtt skip alltaf samgöngubót , svo var hinsvegar ekki með Bakkaferjuna því hún á bæði að taka færri farþega og ganga mun hægar en núverandi Herjólfur , en samt að fara til Þorlákshafnar þegar ófært væri í Bakkafjöru .

Varðandi síðustu bæjarstjórnar kosningar , þá hef ég ekki enn fundið einn einasta frambjóðanda úr neinum flokki sem telur að kosið hafi verið um samgöngumál okkar þá , enda var rannsóknum vegna Bakkafjöru ekki lokið fyrr enn á síðasta ári . Þar fyrir utan þá er alveg ljóst að ef við tökum mið af því hversu margir skrifuðu undir í undirskriftarsöfnuninni um að fá að kjósa um Bakkafjöru á þessu ári þá er alveg ljóst að nánast enginn kaus um þetta  2006 . kv . 

PS  bara svo það sé á hreinu , það eru ekki allir Frjálslyndir á móti Bakkafjöru ekki frekar en að það eru ekki  allir Sjálfstæðismenn hlynntir Bakkafjöru , en um þetta hefði verið skinsamlegast að kjósi sérstaklega en bæjarstjórnin þorði því ekki .

Georg Eiður Arnarson, 18.12.2008 kl. 20:16

13 identicon

Sæll aftur Georg.

Ég held að samgöngubótin felist ekki í skipinu sem kemur til með að sigla mill Eyja og Bakkafjöru, heldur er samgöngubótin falin í hafnargerðinni sjálfri.

Flokkarnir báru á borð fyrir okkur Eyjamenn sínar stefnur í hinum ýmsu málum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, þar á meðal stefnur í bættum samgöngum.

Hjá okkur Vestmannaeyingum hefur krafa um bættari samgöngur oftar en ekki verið í forgrunni í kosningum þessum. Ég held ég megi fullyrða að fyrir síðustu kosningar til bæjarstjórnar hafi sú krafa okkar Eyjamanna hljómað sem hæst og því hafi Sjálfstæðismönnum í krafti meirihluta í stjórn verið treyst til að leiða okkur að niðurstöðu í þeim málum, með þeirra stefnumál að leiðarljósi.

Að mínu mati var framkvæmd þessara undirskriftasöfnunar í meiralagi vafasöm. Einstaklingar sem ekki höfðu skrifað undir sáu nöfnin sín á þessum lista, nýfædd börnvoru þar á meðal o.s.fr.v. En sá listi er efni í stóra ritgerð. Nóg um það.

Þú segir að það séu ekki allir í Frjálslynda flokknum á móti bakkafjöru og þú viðurkennir að það séu Sjálfstæðismenn allir ekki heldur. Getum við þá dæmt orð þin og Jóhanns um að þetta sé knúið áfram af pólitískum trúarbrögðum, dauð og ómerk?

Og ég spyr aftur; Treystir þú Siglingamálastofnun til að þróa og hanna stækkun á höfninni í Þorlákshöfn?

Kveðja Þórir

Þórir (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 21:17

14 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Þórir , ég hef nú afar litla þekkingu á hafnargerð og læt Siglingastofnun alveg um hana  . En ef þig langar að kinna þér umræðuna sem fór fram á þessari síðu allt síðasta ár þá er það velkomið þú þarft bara að bakka um nokkrar síður .

En bara nokkur atriði úr skírslu Gísla Viggóssonar : Gert er ráð fyrir því að í verstu veðrum geti ferjan tekið niðri á rifinu sem er þarna fyrir utan . Gert er ráð fyrir því að það þurfi að setja sérstök fríholt á hafnarminnið því ferjan muni fara utan í hafnargarðana í slæmum veðrum við að komast inn í höfnina. Gert er ráð fyrir því að hönnun hafnarinnar sé svo góð að aldrei muni brima þar og að þar verði skjól í öllum vindáttum . Gert er ráð fyrir því að það verði búið að hefta allt sandfok í Bakkafjöru fljótlega eftir að höfnin verður tilbúinn . 

Þetta hljómar ekki mjög spennandi og ekki heldur mjög trúverðugt en þetta meðal annars er í skírslunni , ég held að það þurfi einhverskonar pólitísk trúarbrögð til þess að kaupa þessa vitleysu .

 Ein spurning á þig Þórir : ert þú tilbúinn að taka áhættuna á því að eyjabátar fari að landa þarna með tilheyrandi tekjutapi fyrir bæjarfélagið ? kv .

Georg Eiður Arnarson, 18.12.2008 kl. 22:11

15 identicon

Sæll Georg.

Nei þetta hljómar ekki spennandi, en því mun trúverðugra.

Eins og þú veist, er í flestum málsmetandi skýrslum tekið tillit til verstu hugsanlegra aðstæðna.  Ef skýrsla yrði gerð um stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn þá yrði örugglega tekið tillit til verstu hugsanlegra aðstæna og þá yrði sumt orðalag hennar ekkert sérstaklega spennandi en hún yrði trúverðugri fyrir vikið. Enda hefur oft ekki mátt miklu muna Herjólfur rækist í varnargarðanna í Þorlákshöfn, eins hefur hann tekið niðrí þar og það hafa einnig aðrir bátar gert hér í höfninni í Vestmannaeyjum.

Því eins er það ekki spennandi og þá (eins og þú segir) "trúverðugt"  í skýrslunni og útboðsgögnunum varðandi nýjan Herjólf að gert sé ráð fyrir björgunarbátum og björgunarvestum eða þá eldvarnarkerfi. Er þá ekki gert ráð fyrir því að hann sökkvi eða þá að það kvikni í honum? Það hljómar svo sannarlega ekki spennandi.

Hvað varðar uppgræðsluna er svo annað mál en ég hef heyrt að það gangi vel með það verkefni. Ef mig misminnir ekki að þá var einnig mikið sandfok við Þorlákshöfn hér á árum áður en tekist hefur að hefta það. Eins hafa margir aðrir íbúar þessa lands þurft að búa við mikið sandfok en með markvissri uppgræðlsu hefur náðst að hefta það.

Ég veit ekki til þess að bakkafjöruhöfn verði eitthvað annað en bara ferjulægi, áhættan er fólgin í því, að seinna meir gætu menn viljað breyta skipulaginu í Bakkafjöruhöfn og þá ef til vill til þess að nota hana til uppskipunar fiskafurðar eða þess háttar. Því skipulagi er ég tilbúinn að berjast á móti með þér ef til þess kæmi. En fyrst og fremst er ég að verja þessa framkvæmd eins og hún er á borði, þ.e.a.s. samgöngubót fyrir okkur Vestmannaeyinga og allra annara sem til Vestmannaeyja vilja koma.

Jólakveðja

Þórir (IP-tala skráð) 19.12.2008 kl. 14:04

16 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, mig langar að blanda mér í umræðuna hér hjá ykkur Þórir, og vill ég segja við Þórir það að vegagerðin ætlaði alltaf að byggja höfn sama hvað við hér í Eyjum vildum, þeir sem öllu ráða(auðvaldið) ætluðu sér að byggja stórskipahöfn, en segja við okkur að höfnin sé bara ferjulægi, sem að mínu mati er það bull, þannig að þú Þórir getur farið að berjast á móti Bakkafjöruhöfn strax.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 19.12.2008 kl. 15:08

17 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Áður en menn fara að missa sig í hugmyndum um stórskipahöfn þarna (þá væntanlega með hugsun um þau gáma skip sem að t.d. koma hingað til eyja).

þá hafa skipafélögin óskaplega takmarkaðan áhuga á því.

skipin koma til með að halda áfram að fara til reykjavíkur og upp í hvalfjörð t.d.

það svarar ekki kostnaði að keyra þeim hundruðum gáma á milli bakka og rvk. sem að koma/fara með þessum skipum, gott dæmi um það er t.d. að þegar að skipin sem að koma hingað til eyja á fimmtudögum koma til landsins, þá byrja þau á því að fara til rvk þar sem að þau eru tæmd alveg, settir 100 tómir gámar um borð og silgt með það uppí hvalfjörð þar sem að þeir eru skildir eftir og teknir 100 gámar af áli.

ef að það væri einhver von á því að skip mundi eingöngu koma til bakka en ekki áfram til reykjavíkur, þá að sjálfsögðu væri þessum gámum nú þegar keyrt þarna á milli. 

Árni Sigurður Pétursson, 19.12.2008 kl. 18:48

18 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Þórir og afsakaðu að ég skyldi ekki svara fyrr, en ég fór á sjóinn í gær og í morgun. Ég held að við séum sammála um það, að vonandi verður þetta Bakkaföru ævintýri til framdráttar fyrir okkur, en í mínum huga er þetta fyrst og fremst spurning um að velja þann samgöngukostinn sem er öruggastur. Við höfum alltaf getað treyst á Herjólf og þessa siglingaleið til Þorlákshafnar. Bæði Bakkafjara og hugsanleg göng er eitthvað sem enginn af okkur þekkir og enginn getur sagt fyrirfram með fullri vissu um að verði betri kostur en sá sem við höfum í dag. En þetta kemur þá bara allt í ljós.

Varðandi baráttuna fyrir því, að Bakkafjöruhöfn verði ekki samkeppnishöfn við höfnina okkar, þá er hún að sjálfsögðu fyrir fram töpuð, því að það eru útgerðarmenn í Vestmannaeyjum sem munu landa þarna til að fá hærra verð fyrir fiskinn og eins og þú veist, þá eru það útgerðarmenn hér í eyjum sem ráða, en enda þetta sem sé með þessu: Vonandi verður þetta í lagi.

Jólakveðja

Georg Eiður Arnarson, 20.12.2008 kl. 19:24

19 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, varstu að fiska?

kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 20.12.2008 kl. 23:26

20 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Helgi , jú þetta var allt í lagi 2,4 tonn á 20 bala , þar af 2 tonn ýsa . kv .

Georg Eiður Arnarson, 21.12.2008 kl. 14:10

21 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Georg það er mikilvægt að þú fylgir þessum málum eftir en Elliði er ekki að standa vaktina en mögulegar hafnarframkvæmdir í Bakkafjöru þvælast fyrir sjálfsögðum samgöngubótum til Eyja.

Sigurjón Þórðarson, 21.12.2008 kl. 15:48

22 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurjón , það er nú heldur betur búið að fylgja þessu máli eftir en málið er það að Elliði er einn heitasti stuðningsmaður Bakkafjöru í eyjum og virðist stundu vera á einhverri annarri plánetu samanber hugmyndir um millilandaflugvöll í Bakkafjöru og fleira slíkt  . kv .

Georg Eiður Arnarson, 21.12.2008 kl. 17:58

23 identicon

Sæll Georg!

Nokkur atriði sem langar að spyrja þig að..

Hvað kemur til með að hækka verð á afla sem landað yrði í Bakkafjöru og hversvegna yrði það betra en núverandi fyrirkomulag þar sem aflinn fer úr beint úr lest skipana og í gám út?

Svo væri mjög gaman að fá nöfn þeirra útgerðamanna sem hafa tjáð ykkur að þeir hyggist landa öllum sínum afla í bakkafjöruhöfn ef þar yrði löndunarhöfn, því þeir geta sagt mér þá beint hvað þeir hyggist spara við þær breytingar því ég er mjög áhugasamur um þessi málefni?

Mig langar einnig að vita hvort þú héldir að það væri þá möguleiki að við myndum missa Ísfélagið og vinnslustöðina með mjölið og sínar Frystiafurðir uppí Bakkafjöru Þar sem kostnaður við að koma þeim frá Eyjum yrði augljós flöskuháls fyrir svona fyrirtæki?

Svo langar mig að kippa Stórskipahöfnini aðeins útúr þessu og spyrja hreint út, hvað sparast við að hafa löndunarhöfn í Bakka og þurfa að trukka öllum fiski til Reykjavíkur í útflutning, hvað verður um verðið þá?

 Ég tek það skýrt fram að ég er ekki að kasta fram hér einhverri kaldhæðni. Ég hef það bara sterkt á tilfininguni að þið haldið að markaðsfiskurinn sé meiri en hann er í raun. Godthaab, Pétursey og ystiklettur  eru að fá hingað mun meira af fiski ofan af landi heldur en það magn sem er að fara héðan til vinnslu upp á landi. Ég get ekki séð að það sé réttlætanlegat að fara í framkvæmd löndunarhafnar sem hugsanlega muni kosta milljarða fyrir nokkur kör.

Gleðileg jól

Sigurður Þórarinsson (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 15:23

24 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurður , ég hef ekki trú á því að uppsjávarvinnslan fara upp á bakka en málið er það að það er staðreynd að fiskverð er c.a 30 % hærra upp á landi . Varðandi kaup á fiski hingað ofan af landi þá er það mjög oft afar lélegt hráefni og á lágum verðum . því miður þá munum við aldrei geta tekið þátt í flugfiskinum af sama krafti og þeir sem búa á suðurnesjum og nágreni . Hæðstu verð á fiski sem ég hef séð  er þegar fiskurinn er seldur áður en báturinn kemur að . 

 Meðan smábáta veiðar voru frjálsar þá fóru oft bátar og lágu úti á veiðum við vík í Mýrdal þetta varð til þess að nokkrir aðilar þar sáu ástæði til að láta smíða fyrir sig hjólabát til að geta keypt fiskinn þar í beinum viðskiptum , og þar erum við að tala um örfáa smábáta .

það er skilda allra útgerðarmanna að fá hæsta verð sem er í boði og þess vegna munu menn landa í Bakkafjöru ef það verður hægt . 

Að lokum þetta nú er búið að vera meira og minna ófært í Bakkafjöri síðustu 3 sólarhringana og miðað við veðurspána þá verður ófært þar næstu dagana . kv .

Georg Eiður Arnarson, 24.12.2008 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband