Heilbrigðis-samgöngu-Bakkafjöru-Kvótinn - róður

Það gengur mikið á í heilbrigðisþjónustunni þessa dagana og förum við Eyjamenn ekki varhluta af því. Ýmsar sögusagnir eru á kreiki, en þetta ætti nú að skýrast í þessum mánuði, kannski má segja að ágætur ættingi minn hafi orðað það rétt í gær, þegar hann sagði:"Er ætlunin að við búum hérna áfram, eða hvað?" Ég hins vegar fékk ágæta innsýn inn í þessi mál, sem og önnur í spjalli við starfsmann heilbrigðisþjónustuna í gær. Þar kom ma. fram að á hverju ári koma allskonar tillögur og hugmyndir frá heilbrigðisráðuneytinu um allskonar niðurskurð og hagræðingu, en svo er það bara stjórnenda að reyna að hagræða án þess að skaða stofnunina, ma. eru uppi hugmyndir um að loka skurðstofunni í Vestmannaeyjum um skemmri eða lengri tíma. Það er nokkuð ljóst að slíkt hefði mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér. Það sem mér þótti hins vegar merkilegast við þetta samtal við þennan starfsmann, sem bað um að vera nafnlaus, er skoðun viðkomandi á Bakkafjöru, sem er þessi: "Ég bjó um nokkurra ára skeið hérna hinu megin í fjörunni og ég er alveg viss um það, að eftir fyrsta austan rokið sem stendur í kannski einn og hálfan til tvo sólarhringa, þá verður þessi höfn og allt sem henni fylgir, horfið." Einnig sagði viðkomandi mér sína skoðun á því, hvers vegna og hver hefði tekið ákvörðun um að farið yrði í byggingu Landeyjarhafnar og hún var svona: "Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur ekkert með þessa ákvörðun að gera, heldur er hún aðeins að hlýða þeim sem ráða í raun og veru, þ.a.e.s. ríkisstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins tók fyrir löngu síðan ákvörðun um að farið yrði í byggingu hafnar í Bakkafjöru, til þess að geta hagrætt í rekstri ríkisins í Vestmannaeyjum, t.d. yrði sjúkrahúsið lagt niður, verulega fækkað á lögreglustöðinni, skattstjórinn fluttur upp á land osfr. osfr." Lítið dæmi tók viðkomandi fram um hagræðingu í heilbrigðisþjónustu norður í landi, samfara bættum samgöngum. "Eftir að verulegar vegabætur höfðu átt sér stað á milli Húsavíkur og Akureyrar, notaði heilbrigðisráðherra tækifærið, lagði af heilbrigðisþjónustu á Húsavík, með þeim rökum að það væri svo auðvelt að komast þarna á milli, svo núna verða Húsvíkingar að sækja nánast alla sína þjónustu til Akureyrar." Þetta þótti mér nokkuð merkilegt og þó að ég vilji nú ekki taka alveg svona djúpt í árinni, þá er ég sjálfur ekki í vafa um það, að ef þessi höfn verður nothæf, þá verður fækkað ríkisstarfsmönnum í Vestmannaeyjum, það er alveg augljóst.

Bara lítið dæmi um afleiðingar af því þegar það tekur dálítinn tíma að komast í heilbrigðisþjónustu eða aðgerð ef út í það er farið. Fyrir um 8 árum síðan lenti mágkona mín í Fuglafirði, Færeyjum, í því að maðurinn hennar fékk blóðtappa. Ekkert sjúkrahús er í Fuglafirði og sjúkrabíllinn tafðist á leiðinni, sem varð til þess að hann lést, en það tók sjúkrabílinn um þrjú korter að keyra frá Þórshöfn til Fuglafjarðar. Það segir sig sjálft að það að búa á eyju úti ballarhafi, gefur augaleið að hér er algjörlega nauðsynlegt að hafa allt við höndina, annað verður hreinlega ekki samþykkt.

Ég sagði frá því einhvern tímann í haust, að sögusagnir væru komnar af stað um það, að nú þegar væri búið að taka ákvörðun um að auka við þorskkvótann. Þess vegna rak mig í roga stans þegar ég heyrði í sjávarútvegsráðherra, þar sem hann neitaði því, að slík ákvörðun hefði verið tekin. Ég ákvað þess vegna að kanna máið lítillega og mér er sagt að staðan sé þessi: Fyrir jól hafði verið tekin sú ákvörðun að auka þorskkvótann, ekki er komin endanleg tala, en talað er um 20-30 þús. tonn. Málið er hins vegar fast í sjávarútvegsnefnd vegna þess, að fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni vill að viðbótin verði tekin út úr núverandi kvótakerfi og boðin upp á opnum markaði, svo það er engin furða þó að margir séu á þeirri skoðun, að núverandi ríkisstjórn sé löngu sprungin, en það verður afar forvitnilegt að sjá hvernig þetta mál endar, enda eiga Eyjamenn töluverðra hagsmuna að gæta þarna.

Fór á sjó í fyrradag með 16 bala, enda veðurspáin mjög góð, enda gerði afar fallegt veður þegar leið á morguninn. Afli var ágætur eða 2,1 tonn, þar af tæp 1600 ýsa, 300 kg þorsk og ljóst að þorskurinn er farinn að skríða. Ég prófaði að rista á eina hrygnuna og fékk þetta fína hrogn í matinn. Fékk líka 3 lúður og einn hafál, stærsta lúðan viktaði 16 kg og seldist á hvorki meira né minna en 1268 kr. kg. á markaðnum. Góð búbót það.

Meira seinna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir góðar kveðjur Ragna .

Georg Eiður Arnarson, 7.1.2009 kl. 21:27

2 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Stórgóður pistill frá þér Georg eins og þín er von og venja.

Ég er ansi hrædd um að þú hittir naglann heldur betur á höfuðið í þessum pistli.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.1.2009 kl. 00:13

3 Smámynd: Sigurjón Þórðarson

Góður pistill en það er með ólíkindum að einu viðbrögð ríkisstjórnarinnar er niðurskurður meðan ekki má nefna það að auka tekjur t.d. með auknum veiðum.

Sigurjón Þórðarson, 10.1.2009 kl. 23:50

4 identicon

Mikið rosalega fynnst mér skrýtið hvað þú ert endalaust að vitna í ummæli einhverra huldumanna sem ekki vilja koma fram undir nafni eins og þennan sem starfar við heilbrigðis þjónustuna og  er sérfróður hafnargerð í Bakkafjöru.Ég get ekki tekið mikið mark á svona skrifum sem sett eru fram undir þessum formerkjum og veit ég að svo er með fleiri.

Sigurður Þórarinsson

Sigurður Þórarinsson (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 18:41

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Sigurður , já það má alveg deila á þetta en ég virði það að sjálfsögðu ef menn biðja um nafnleind , ég skrifaði þetta fyrst og fremst sem nýtt sjónarmið .

Við skulum bara vona að Bakkafjara verði okkur til góðs . kv .

Georg Eiður Arnarson, 12.1.2009 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband