Þrettándinn, Huginn, Völvan og smá pólitík

Þrettándagleðin var vel heppnuð eins og ætíð og alltaf jafn gaman að þessu, en eitthvað eru nú skiptar skoðanir um það, hversu gott það er að færa gleðina til helgar, en í sjálfu sér finnst mér það í raun og veru ekki skipta miklu máli svo framar sem að allir sem mæta skemmti sér vel.

Það er mikill hugur í Hugins mönnum og mér er sagt að það gangi bara alveg ljómandi veiðarnar á gulldeplu og að þeir eru nú þegar komnir með 300 tonn af þessum fiski. Það er stundum talað um að þessar fáu tegundir sem ennþá eru utan kvóta sem gull sjómanna.

Ég hef ekki róið síðan á mánudag, en það er búið að vera nóg að gera í beitningunni og í sjálfu sér má segja að nýja árið byrji bara á rólegu nótunum. Eitt vakti þó athygli mína í síðustu viku. Ég hef aldrei verið mikið fyrir að lesa þessar svokölluðu Völvuspár fyrir árið, en þar sem frúin les þetta allt saman, þá lendir maður í því að fylgjast aðeins með, en mér finnst þetta oft óttaleg vitleysa að stórum hluta til, en skoðaði þetta svona aðeins til þess að reyna að sjá, úr hvaða flokki þetta fólk kemur sem skrifar þetta. Í bæjarblöðunum okkar voru t.d. tvær Völvuspár. Í Vaktinni var að mínu mati ekki hægt að lesa hvar höfundur stæði í flokki, það var hins vegar nokkuð greinilegt í Frétta Völvunni, enda íhaldið dásamað í bak og fyrir, á meðan aðrir flokkar voru nánast hafðir að háði og spotti m.a. var þingmaður frjálslyndra í suðurkjördæmi uppnefndur í greininni, sem sýnir kannski hversu merkilegur pappír skrifar þessa vitleysu. Eftir að hafa hins vegar velt þessu fyrir mér í smá stund, þá rifjaðist upp fyrir mér sambærileg Völvuspá í Fréttum í janúar 2002. Bæjarstjórnarkosningar voru þá um vorið og spáði Fréttavölvan því, að ungur og upprennandi íhaldsmaður kæmi fram þá um vorið, tæki baráttusætið (4. sæti) og tryggði íhaldsmönnum glæsilegan sigur. Þetta gekk nú ekki eftir, enda held ég að íhaldsmönnum svíði það ennþá að hafa verið rasskelltir af bakaranum þarna um vorið og sumir vilja reyndar meina að íhaldsmenn séu ennþá að hefna sín fyrir þessar ófarir.Hver veit nema eins fara með þessa völvuspá núna og þá eldri ? Þeir geta þó verið sáttir, því þessi ungi maður er núverandi bæjarstjóri í Vestmannaeyjum og hafði alveg örugglega bara gott af tapinu 2002. Það má hins vegar alveg segja sem svo að bakarinn hafi nú ekki alveg staðið undir væntingum sinna manna og fengum við frjálslyndir oft að heyra frá stóru flokkunum í bæjarstjórnarkosningunum 2006 þessa setningu: "Ekki annan bakara" og ekki spurning að afrek bakarans sköðuðu framboð okkar verulega. Mér finnst hins vegar umhugsunarvert að bera saman í dag, afrek núverandi meirihluta og þeirra meirihluta sem sátu á síðasta kjörtímabili og t.d. tel ég alveg öruggt að á síðasta kjörtímabili hefðu eyjamenn fengið að kjósa um Bakkafjöru, sem og önnur mál sem skipta okkur máli til lengri tíma en eins kjörtímabils. Núverandi meirihluti hins vegar hundsar allar skoðanakannanir sem og áskoranir í krafti meirihlutans. Við sjáum þetta líka hjá Ríkisstjórninni, sem gerir að því er virðist allt til að halda völdum, meira að segja íhaldsmenn sem hingað til hafa verið eindregið á móti allri umræðu um inngöngu í ESB, eru núna búnir að opna á það mál, en mig langar að lokum að benda á ágæta grein bæjarstjórans okkar, Elliða Vignissonar, inni á eyjamiðlunum, þar sem að hann segir sína skoðun á ESB, það var mikið að við Elliði vorum loksins sammála um eitthvað.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Já Ragna , mér líður hálf illa  . kv .

Georg Eiður Arnarson, 11.1.2009 kl. 20:41

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, ja hérna nú er maður hissa, með batnandi englum er berst að lifa, þú og Elliði. Jæja hvað um það, en hvað finnst þér um að vera að veiða uppsjávarfisk í miklu mæli? Verður annar nytjafiskur ekki að hafa æti? Ég er drullu hræddur við svona lagað, sagan hefur sýnt ýmsar hryggðarmyndir af ofveiði.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 11.1.2009 kl. 22:42

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Helgi, þú kannski manst eftir því í fyrrahaust þegar þú kommentaðir við skrif mín inni á heimaklett.is. Grein Elliða í eyjamiðlunum núna er ekki mjög ólík þeirri grein minni, svona í helstu atriðum.

Ég hef verið að spyrjast fyrir um þennan fisk þarna, gulldeplu, eftir því sem ég veit best þá er ekki vitað til þess að hann sé étinn af öðrum fiski, en vonandi kemur það þá í ljós, en ég get hins vegar staðfest að þegar ég var að draga línuna sl. mánudag, þá var fuglinn svo svangur að hann var farin að bíta á línuna hjá mér sem ég var að draga í myrkrinu í von um bita. Fýllinn hagaði sér eins og hann væri með glor hungraðan, stálpaðan unga í hreiðri. Mjög undarlegt og mikið áhyggjuefni.

Kveðja

Georg Eiður Arnarson, 11.1.2009 kl. 23:14

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll aftur Georg, já ég man eftir þessari athugasemd. Þó segir nokkuð með að gulldepluna, ég er samt á því að laxasídinn sé í fæðukeðjunni. Það er nú ekki gott ef fuglinn fær ekki nóg æti.

kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 11.1.2009 kl. 23:34

5 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður og skemmtilegur pistill Georg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 11.1.2009 kl. 23:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband