Af mótmælum

Það er nokkuð um að fólk hneykslist á þessum mótmælum við þinghúsið í Reykjavík og í sjálfu sér er að hluta til hægt að taka undir það, sérstaklega þegar fólk gengur of langt t.d. skaðar almanna eignir, sig sjálft eða lögregluna, sem dæmi. Mér finnst hins vegar ósköp eðlilegt að ungt fólk mótmæli harðlega, því það er undantekningalaust fólkið sem að ber enga ábyrgð á kreppunni. Unga fólkið er það fólk í dag sem mun, við óbreytt stjórnkerfi, aldrei hasla sér völl í t.d. útgerð eða öðru slíku. Það mun hins vegar þurfa að borga reikninginn og er því að mínu mati í fullum rétti með að mótmæla. Dapurlegast þótti mér þó að sjá skoðanakannanir meðal ungs fólks, þar sem mikið af því er nú þegar farið að þreifa fyrir sér með atvinnu í öðrum löndum. Afar slæmt fyrir okkur öll og með ólíkindum að horfa upp á ráðamenn þjóðarinnar sitja sem fastast.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Svavarsdóttir

Var á austurvelli. 

Það var ekki bara ungt fólk að mótmæla.  Það var fólk á öllum aldri.  Eldra fólk með göngu grindur  barnavagnar og allt þar á milli.  Flestir stóðu kyrrir en höfðu hátt. 

fjölmiðlamyndin er stundum skökk.

Tek undir það með þér það er slæmt að missa fólk úr landi.  Ég er iðnaðarmaður og ég efast einhvern veginn um að ég fá vinnu hérna heim í mínu fagi næstu áratugina.  Ef nokkurntíma.

Anna Svavarsdóttir, 20.1.2009 kl. 17:33

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl Anna , það er rétt hjá þér að vissulega eru mótmælendur á öllum aldri , en ráðamenn tala um að öll þjóðin hafi tekið þátt í fjármálasukkinu , ekki er ég alveg sammála því allavega ekki varðandi unga fólkið .

Georg Eiður Arnarson, 20.1.2009 kl. 19:43

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Dagurinn á morgun mun ábyggilega skera úr um það hvort eitthvað fer að hrikta í stoðum flokka við stjórnvölinn.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 20.1.2009 kl. 23:35

4 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Flott mynd hér af bátnum þínum Georg.

Pálmi Freyr Óskarsson, 22.1.2009 kl. 18:22

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Já Pálmi , þessi er fín . kv .

Georg Eiður Arnarson, 22.1.2009 kl. 21:24

6 Smámynd: Anna Svavarsdóttir

Sæll Georg

Varðandi fjármálasukkið.  Nei við tókum ekki öll þátt í því.

Ég finn til með fólkinu sem er að koma úr námi núna með milljónir í námslán og allar dyr lokaðar.  

Ég veit að ég kem niður á lappirnar spurningin er bara verður það hér á landi eða........

Anna Svavarsdóttir, 23.1.2009 kl. 15:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband