24.1.2009 | 21:25
Frjálslyndir hafna inngöngu í ESB og boða til miðstjórnarfundar
Miðstjórnarfundur Frjálslynda flokksins samþykkti nú fyrir stundu að landsþing flokksins verði haldið dagana 13. 14. og 15. mars. Miðstjórn hafði áður falið framkvæmdastjórn flokksins að ákveða fundarstað.
Nú stendur yfir miðstjórnarfundur Frjálslynda flokksins. Á fundinum var kynnt niðurstaða úr skoðanakönnun sem gerð var meðal flokksmanna. Niðurstöður eru þær að við spurningunni hvort Ísland ætti að leita eftir aðild að ESB:
Já, svöruðu 34,8%
Nei, svöruðu 51,6%
Óákveðnir eru 9,5%
Einn seðill var ógildur eða 0,5%
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg.
Í mínum huga er þetta ánægjuleg niðurstaða.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 24.1.2009 kl. 23:27
Já , ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu . kv .
Georg Eiður Arnarson, 25.1.2009 kl. 17:47
Það merkilega var að þeir sem hafa talað hvað mest innan flokksins um að flokkurinn ætti að breyta um stefnu og setja ESB á dagskrá, og áttu þátt í að fá það í gegn að könnuninn væri gerð, gera nú lítið úr niðurstöðunum. Því var haldið fram að þær væru ekki marktækar. Ég tek undir með ykkur að þetta eru mjög góðar niðurstöður.
Kv. Helgi
Helgi Helgason (IP-tala skráð) 26.1.2009 kl. 15:04
Sammála ykkur. Mjög góð niðurstaða.
Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 21:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.