Kosningar, róður, síld og hrafninn flýgur

Ég er ánægður með það að það verður kosið í vor, vonandi verður næsta ríkisstjórn betri heldur en sú, sem er farin frá og ekki væri verra að sjá helstu stefnumál Frjálslynda flokksins ná fram í næstu ríkisstjórn. Framundan er stutt og snörp kosningabarátta, þar sem við i FF vonumst eftir dyggum stuðningi, enda vita það allir að flokkurinn ber enga ábyrgð á fjármálakreppunni og hefur ítrekað bent á margvíslegar leiðir til þess að auka tekjur þjóðarinnar, t.d. með breytingum á kvótakerfinu. Framundan er uppstilling á listum, en mig langar að benda fólki, sem hefur áhuga á að vera með, að enn er möguleiki á því.

Ég er búinn að róa þrisvar s.l. viku, með samt. 40 bjóð, aflabrögð hafa verið ágæt, eða samt. 6 tonn í þremur róðrum, mest ýsa. Einnig er farið að bera töluvert á þorski í aflanum og eru komin þessi fínu hrogn í allan þorsk.

Það hefur vakið töluverða athygli síldin í höfninni og þegar ég var að fara á sjó í gær, þá sá ég að það hefur ekkert minnkað og eru stórar torfur allt í kring um eyjarnar. Ég viðraði þá hugmynd fyrir nokkru síðan við yfirmenn FES, hvort að ekki væri möguleiki hreinlega að dæla síldinni bara upp úr höfninni, bræða hana og gera þannig pening úr þessu, en það er víst ekki hægt, vegna þessa fáránlega kvótakerfis, því að þó að þessi síld sé öll að dauða komin í höfninni, þá þarf samt kvóta fyrir henni.

Eitt af því sem hefur vakið athygli náttúru unnenda mest að undanförnu í eyjum, er gríðarleg fjölgun hrafna og náði einn maður að telja yfir 40 hrafna í eyjum fyrir stuttu síðan. Sjálfur taldi ég 35 stykki fyrir nokkru síðan, margir hafa áhyggjur af því hvaða áhrif fjölgun hrafnsins komi til með að hafa í sumar á svartfuglastofnana t.d er alþekkt að lundinn forðar sér langt út á haf þegar að krumminn lætur sjá sig og stór spurning, hvort að ekki þurfi að fara að grisja þennan stofn, en mér skilst reyndar að hrafninn sé friðaður.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Er bara ekki Hrafnin staðfesting á góðu gengi V-G nú um stundir. Hann étur allt hann er ránfugl.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 26.1.2009 kl. 22:14

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Öfgarnar í stefnu V-G munu koma framm fyrir kosningar og fylgið hrynja hjá þeim eins og síðast , ég held að Hrafninn í Eyjum eigi meiri möguleika á góðu gengi í sumar og hef meiri áhyggjur af honum  . kv .

Georg Eiður Arnarson, 26.1.2009 kl. 22:32

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Þessi fjölgun Hrafna hefur nú heldur betur verið sýnileg hér hjá mér, og ég held ég hafi aldrei séð meira af honum en í vetur.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.1.2009 kl. 01:02

4 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, Hver segir að síldin sé að dauða kominn í höfninni? Og þetta með hrafninn, þá gæti ég trúað því að hann komi mikið til af suðurlandinu, að minnsta kosti er mikið af honum upp undir Eyjafjöllunum.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 27.1.2009 kl. 22:52

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Helgi , þegar ég hef verið að fara á sjó á nóttunni að undanförnu og fuglinn er ekki við þá flýtur Síld um alla höfn , þar fyrir utan þá er Súlan sest nánast að í klettsvíkinni og þarf lítið að hafa fyrir ætinu þó hún sé þarna í þúsunda tali . kv .

Georg Eiður Arnarson, 28.1.2009 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband