29.1.2009 | 21:58
Fór á sjó í morgun og ÍBV
Fór á sjó í morgun, í fjórða skiptið í þessari viku, enn er höfnin full af síld og mikil veisla í gangi hjá fuglinum. Í gær sá ég m.a. sel í höfninni, veðrið í dag var afar fallegt og það lang besta í langan tíma. Aflinn var góður 2,2 tonn á 12 bala. Þorskurinn er farinn að aukast í aflanum, en hlutfallið sleppur ennþá, fékk m.a. tvo hafála í dag og eina 30 kg lúðu, sem ég rétt náði að kraka í áður en hún losnaði af króknum. Það er kannski lýsandi fyrir tíðarfarið í vetur, að miðað við veðurspána þá verður sennilega veður á morgun og er þetta þá sennilega fyrsta heila vikan í janúar, sem ég get róið í mörg ár. Reyndar var veðrið ekkert spennandi hvorki í gær eða fyrradag, en maður lét sig hafa það. Ég er farinn að fylgjast svolítið mikið með belging.is, enda veðurspáin þar yfirleitt mjög nákvæm, eini gallinn er þó sá, þessi síða ræður ekki við austanáttir, spáði t.d. lægjandi ítrekað í gærdag en aldrei lægði. Vonandi verður þetta gott á morgun en hann á að hvessa seinni partinn.
Ég mætti á fund uppi í Týsheimili s.l. laugardag. Þar var komið mikið fjölmenni, enda mikil íþróttahefð í eyjum. Það er alveg ljóst að íþróttahreyfingin er þegar farin að finna fyrir kreppunni, enda nokkrir sterkir styrktaraðilar í gegnum árin búnir að tilkynna, að það komi ekki styrkur í ár. Margt annað hefði verið hægt að segja um þennan fund, en mig langar þó að nefna eitt atriði sérstaklega og það er hugmyndir sumra sem eru og tengja sig fyrst og fremst við fótboltann, um að leggja hugsanlega niður aðrar deildir innan ÍBV til þess að fá meiri fjármuni í fótboltann. Þó að ég sé nú mikill stuðningsmaður fótboltans í eyjum, þá er ég þessu algjörlega ósammála, enda þurfum við á fjölbreytninni að halda. Íþróttastarfið á að snúast um börnin okkar fyrst og fremst, þó ég neyti því ekki að það er alltaf ánægjulegt þegar okkar efstu flokkar ná árangri, en aðal atriðið er þetta, eins og ég hef sagt áður: Íþróttir eru það besta fyrir börnin okkar til að kenna þeim að takast á við framtíðina, bæði líkamlega og andlega. Ekki veitir af eins og staðan er í dag.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg, það er gaman að heyra hvað þú ert að fiska mikið, ég hef þá trú að á meðan við hér í Eyjum drögum fisk úr sjó það verður efnahagsmálin í lagi hjá okkur.
Ekki þykir mér góðar fréttir af fundinum hjá ÍBV íþróttafélagi, fólk verður að komast að samkomulagi um það fjármagn sem er í boði hverju sinni.
Kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 29.1.2009 kl. 22:52
Sæll Georg.
Tek undir mikilvægi íþróttanna og það þarf ekki miklu að kosta til varðandi frjálsar íþróttir og mér finnst ekki hægt að taka fótboltann og setja allt í hann.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 30.1.2009 kl. 00:24
Blessaður Georg. Þú hefur kannski áhuga á að horfa á þetta myndband?
Pálmi Freyr Óskarsson, 30.1.2009 kl. 18:33
Takk fyrir þetta Pálmi . kv .
Georg Eiður Arnarson, 30.1.2009 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.