1.2.2009 | 15:34
Af framboðum til Alþingis
Ný ríkisstjórn er að fæðast í dag og óska ég henni alls góðs, þó svo að ég hafi nú ekki mikla trú á neinum stór afrekum á þessum stutta tíma fram að kosningum.
Framsóknarmenn fara mikinn þessa dagana og vilja meina það að það hafi orðið stórkostleg endurnýjun í forystu flokksins, en mér er hins vegar sagt að á bak við nýja formann flokksins, standi enginn annar en Finnur Ingólfsson, sem lengi hefur verið ráðandi afl innan flokksins, svo ekki er ég mjög bjartsýnn á að þarna verði einhverjar raunverulegar breytingar, t.d. hefur flokkurinn ekki ennþá minnst á kvótakerfið og er þar með að gera nákvæmlega það sama og hann hefur alltaf gert þ.e.a.s. haga seglum eftir vindi.
Sjálfstæðisflokkurinn er að detta úr ríkisstjórn í fyrsta skiptið í 18 ár og ég held að flestir geri sér grein fyrir því að það var orðið löngu tímabært, vandamálið er kannski það, að ekki lýst mér nú alveg á þá sem taka við, en það kemur þá bara í ljós. Hér í Vestmannaeyjum eru íhaldsmenn komnir á fleygi ferð við að skora á hvern annan í framboð og t.d. er bæjarstjórinn okkar að skoða sinn gang. Það kemur mér hins vegar ekkert á óvart, því að ég spáði því fyrir tveimur árum síðan, einnig hefur þingmannsdraumurinn, að mínu mati, háð honum illilega í starfi fyrir Vestamanneyinga, enda hefur hann verið helsti stuðningsmaður þeirrar samgönguáætlunar sem að hentar ríkisstjórninni. Það er svolítið merkilegt að horfa líka á það gríðar mikla starf sem íhaldsmenn vinna allan ársins hring hér í Eyjum, t.d. eru um jól og áramót gefin út tvö blöð. Stofnar, þar sem í eru myndir af þeim börnum sem fæðast á árinu og Fylkir, þar sem í eru myndir af þeim Eyjamönnum sem látist hafa á árinu. Á milli þessara tveggja blaða er hægt að telja upp ýmislegt t.d. grímuböll, grillveislur, allskonar félagsskapur, úteyjaferðir, tuðruferðir og sfr. og sfr. og endar svo þetta með því að öllum á elliheimilinu er boðið í kaffi og með því, svo það má svo sannarlega segja það að íhaldsmenn hugsi um fólkið, það væri óskandi að þeir gerðu jafn vel í því að hugsa um byggðirnar, auðlindirnar sem og framtíðina, því að allt þetta starf er að sjálfsögðu unnið fyrir flokkinn.
Samfylking og Vinstri grænir eru komnir í ríkisstjórn og fer nú léttur hrollur um margan íhaldsmanninn. Að mínu mati er nánast enginn munur á Samfylkingu og Framsóknarflokki. Báðir þessir flokkar hafa fyrst og fremst hagað seglum eftir vindi, nema í einu undantekningatilliti, þ.e.a.s. þessi furðulegi áhugi Samfylkingarmanna á inngöngu i ESB og nokkuð ljóst, í mínum huga alla vega, að Samfylkingin er tilbúin að fara þar inn þó að það kosti okkur einhverjar hlutdeildir í auðlindum okkar. Merkilegast er þó að sjá Vinstri græna beygja sig í þessa átt, reyndar hefur mér alltaf fundist Vinstri grænir vera svo mikill öfgaflokkur og stundum velt því fyrir mér, hvort að draumur Vinstri grænna sé sá að allir Íslendingar sameinist um að fara út á tún og bíta gras, því að þannig erum við að sjálfsögðu öll jöfn, en mér segir svo hugur að Vinstri grænir muni ekki stoppa lengi í ríkisstjórn, enda ekki vanir að vinna í meirihluta.
Af mínum flokki, Frjálslynda flokknum, er það að segja að ekki erum við nú að skora hátt í skoðanakönnunum, en það höfum við reyndar aldrei gert. Framundan eru kjördæmisþing og svo landsþing og alveg ljóst, að innan flokksins eru háværar raddir sem vilja breytingar í forystu flokksins. Ég hef fyrir mitt leyti sagt það, að ef fólk er óánægt og vill breytingar, þá á það einfaldlega að bjóða sig fram og því fleiri því betra, en hvort að einhverjar breytingar verði og/eða hvort að þær verði til góðs fyrir flokkinn get ég ekki metið, en það kemur þá bara í ljós. Frjálslyndi flokkurinn er enn sem komið, kannski því miður, eini flokkurinn sem vill takast á við núverandi kvótakerfi og ég held að fólk ætti að gera sér grein fyrir því, svo ég vitni nú í ekki ómerkari mann en prófessor Þorvald Gylfason, að kvótakerfið var byrjunin á hruni fjármálageirans og enginn flokkur annar en Frjálslyndi flokkurinn boðar, enn sem komið er, neinar breytingar á kvótakerfinu.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Kæri vopnabróðir við öll og ekki síst forystan ætti að fagna liðsauka í okkar litla flokki. Öllum flokkum er nauðsynlegt að geta endurnýjað sig að öðrum kosti deyja þeir út. Krafa almennings er að flokkarnir gangi í gegn um endurnýjun en flokksforystu okkar finnst að slík endurnýjun eigi ekki að eiga sér stað hjá okkur. Forysta flokksins er frjáls að þessari skoðun sinni en hitt er umdeilanlegra að forystan skuli leggja sig í framkróka um að hindra að nokkur nýr aðili geti boðið fram krafta sína til forystu. Þetta gerir forystan með því annars vegar að flytja þingið til Stykkishólms og seinka því fram í miðjan mars og beita síðan þeirri röksemd að þá sé of seint að skipta. Á þá roksemd forystunnar get ég fallist og því er einboðið að hún haldi áfram.
Sigurður Þórðarson, 1.2.2009 kl. 16:34
Sæll Georg.
Góður pistill.
Sammála þér.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 2.2.2009 kl. 00:18
Sæll Gerorg, þú ert góður penni, en ertu ekki líka góður þingmaður? Mér sýnist þú vera það sannspár í pólitíkinni, þess vegna gæti ég trúað því að það leynist þingmaður í þér Georg.
Kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 2.2.2009 kl. 01:11
Núverandi forysta ætlar að sitja áfram og það er eins gott að hún fari þá að vakna og bretta upp ermar:
"Bæði Frjálslyndi flokkurinn og Íslandshreyfingin tapa fylgi innan mánaðarins. Fylgi þeirra beggja minnkar úr 4 prósentum í byrjun janúar í 1 prósent í lok mánaðar.
Rúmlega 3700 manns tóku þátt í könnun Gallups. Svarhlutfall var 64 prósent."Sjá fréttir á RUV 01.02. 2009
Sigurður Þórðarson, 2.2.2009 kl. 08:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.