Kjördæmisþing, kosningar, róðrar, síld, kvótaverð og landsþing

Það var góður fundur uppi í Sægreifanum s.l. föstudag, þar sem við í Frjálslynda flokknum í suðurkjördæmi vorum með kjördæmisþing. Mætingin var framar vonum og sérstaklega var ánægjulegt að sjá mörg ný andlit og mjög ánægjulegt að sjá töluvert af ungu fólki að mæta af báðum kynjum. Nýtt kjördæmisráð var kosið og urðu ekki miklar breytingar, en mjög gott að sjá ungar konur koma þar í kjördæmisráð. Við Eyjamenn vorum þó nokkrir á fundinum en buðum okkur ekki fram. Framundan er mikil vinna hjá kjördæmisráði að ákveða, hvort að stillt verði upp á lista eða kosið, nú þegar eru nokkrir búnir að gefa sig fram til að vera í forystusveit flokksins í kjördæminu um kosningarnar í vor, en þetta skýrist vonandi um næstu mánaðamót.

Ótrúlega margir hafa haft samband við mig og skorað á mig að bjóða mig fram á listann, en ég hef ekki tekið neina ákvörðun ennþá, enda annir það miklar þessa dagana að maður sér nú varla fram úr þeim átökum.

S.l. hálfan mánuð er ég búinn að róa eina 10 róðra og fiskað að jafnaði 2 tonn í róðri (var með 2,9 tonn á fimmtudaginn á 13 bala) eða samt. góð 20 tonn, sem að telst nú alveg þokkalegt hér í Eyjum. Ágætur vinur minn sem hefur verið sjómaður í rúm  30 ár, sagðist ekki muna annað eins tíðarfar í janúar síðan 1977. Eina sem ég hef áhyggjur af núna er að sumarið 2005-06 og 07 voru afar hagstæð með miklu hægviðri og hitum, en á móti voru veturnir afar harðir með miklu hvassviðri og stormum, svo nú er spurningin sú, hvort að þetta sé kannski að breytast, en það kemur þá bara í ljós í sumar.

Það hefur verið mikið fjallað um síldina í höfninni hér í Eyjum og eru síðustu fréttir þær, að sést hafi stórhveli inni í Friðarhöfn. Ég get hins vegar staðfest það, að þetta er ekkert að minnka. Það eru komnar 6 vikur síðan að síldin fór að vaða hér inn í höfnina og þegar ég var að landa núna fyrir helgi, kom til mín Magnús Ríkharðsson, skipstjóri á Drangavík, og sagði mér það, að hann hefði ný gengið hringinn inni í Friðarhöfn og tekið eftir því, að það er farið að bregða fyrir ýsu og öðrum góð fiski inni í Friðarhöfn, svo það kemur ekki á óvart þó að hvalurinn láti líka sjá sig, enda mikil veisla í höfninni í Eyjum í dag.

Stærstu áhyggjur útgerðarmanna í dag, eru lækkandi afurðarverð og því miður er nú komið á daginn að varnarorð  þingmanna okkar FF um þá ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, að hækka geymslu prósentuna af aflaheimildum milli fiskveiðiára úr 20% í 33% komin fram, því að vegna þessa mikla geymsluréttar þá virðist engu máli skipta, hversu mikið fiskverðið á mörkuðunum lækkar, leigan lækkar ekki í samræmi, og er þessi ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra enn eitt dæmið um það, hvernig sjávarútvegsráðherrar Sjálfstæðisflokksins síðustu ára láta hagsmuna aðila draga sig á asnaeyrunum og skaða atvinnugreinina, bæði innanlands og erlendis, enda hafa nú þegar fjölmargir leiguliðar lagt bátum sínum og skráð sig atvinnulausa og ég held, að það sé nokkuð augljóst mál að fleiri atvinnulausa er ekki það sem okkur vantar, en svo er aftur stór spurning, hvað  núverandi stjórnvöld gera, en það kemur þá bara í ljós.

Nú hefur verið tekin ákvörðun um að landsþing Frjálslynda flokksins verði á Stykkishólmi dagana 13-15 mars. Í sjálfu sér er ekkert við því að gera, en ég hefði nú kannski frekar viljað sjá þetta landsþing á höfuðborgarsvæðinu, en ég tók eftir því á bloggsíðum sumra Frjálslyndra á höfuðborgarsvæðinu að þar er töluverður grátur yfir þeim kostnaði, sem fylgir því fyrir höfuðborgarbúa að fara til Stykkishólms og gista hugsanlega og nokkuð greinilegt að þar er á ferð fólk, sem að virðist ekki alveg skilja það að það kostar jafn mikið að fara frá landsbyggðinni til höfuðborgarinnar og gista þar, að maður tali nú ekki um kostnað okkar eyjamanna við að sækja þessar ráðstefnur, en ég held að fólk á höfuðborgarsvæðinu mætti kannski stundum taka svolítið tillit til okkar á landsbyggðinni.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Sé til efni í stjórnmálamann, þá ert það þú, það er mín skoðun.

Aðeins varðandi flokksþingið, þá er það kostnaður við gistingu sem alla jafna hefur enginn verið fyrir  flesta þá sem sótt hafa þing sem ég tel að hamla muni þáttöku í Stykkishólmi. Því til viðbótar fara margir gegnum Reykjavík utan af landi.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 9.2.2009 kl. 00:02

2 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ég skora á þig að bjóða þig fram.Hik er sama og tapa.Kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 10.2.2009 kl. 03:39

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, hvar er Sægreifinn á landinu? Ég er búinn að fylgjast nokkuð með súlunni inn í höfn undanfarið, og það er eins og þú veist frábært sjónarspil. Við erum sammála með það Georg að kvótakerfið er handónýtt, ekki satt? Ekki veit ég hvort þú ert tilbúinn í það að hætta að róa til sjós og fara á þing, en þú ert ekki verri en hver annar sem situr við kjötkatlanna.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 11.2.2009 kl. 11:55

4 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir stuðninginn . Ekki er nú áhuginn mikill fyrir setu á alþingi en kannski má sega sem svo að okkur vanti fleiri duglega og heiðarlega þingmenn ? En þetta fer að skírast .

Helgi , Sægreifinn er á hægri hönd þegar þú keyrir vestur á Granda í Reykjavík og ég mæli með matnum þar .

Kvótakerfinu þarf að breyta það vita allir , það eru bara ekki allir tilbúnir að viðurkenna það . kv .

Georg Eiður Arnarson, 11.2.2009 kl. 18:34

5 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég myndi hiklaust kjósa þig Georg ef ég væri í kjördæmastjórninni. Endilega gefðu kost á þér.

Sigurður Þórðarson, 11.2.2009 kl. 21:35

6 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Georg. Fyrst Ólafur skorar á þig geri ég það líka  

Vona að ég sjái þig á þinginu í Stykkishólmi.

Ekki væri nú leiðinlegt að sjá þig á Alþingi.

Baráttukveðjur Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 11.2.2009 kl. 22:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband