Róður, framboðsmál, skoðanakannanir og málefnahandbókin

Það hefur heldur betur versnað tíðarfarið að undanförnu, nánast grenjandi rok upp á hvern einasta dag og tíðarfarið farið að líkjast ansi mikið síðasta vetri, en í gær komst ég á sjó í fyrsta skipti í 9 daga, komst meira að segja djúpt suður fyrir Eyjar, enda frétti ég af öðrum línusjómanni sem hafði farið fyrr um morguninn hérna heima við og var ekki að fiska. Fiskiríið var hins vegar mjög gott hjá mér, eða 2 tonn á 9 bala, mest langa enda loðna nýbúin að fara yfir heimamiðin. Eitt vakti athygli mína á sjónum í gær, eins og vanalega þá kom allur svartfuglinn og settist upp á sama tíma og loðnan gekk fram hjá Eyjum, en í gær tók ég hins vegar eftir því að stórir hópar af svartfugli tóku stefnuna suður í haf, svo eitthvað virðist ætið vera lítið hérna heima við.

Af framboðsmálum er það að segja, að það er orðið opinbert að Grétar Mar Jónsson muni leiða lista FF í suðurkjördæmi, í önnur sæti verður raðað í í vikunni, en vegna fjölda áskoranna hef ég boðist til að taka annað sætið.

Nokkrir Eyjamenn hafa tjáð sig á blogginu um fylgi flokkanna og er ítrekað bent á, hvað lítið FF er að skora í skoðanakönnunum, en til að svara því, þá skal bent á að ef skoðanakannanir væru marktækar um fylgi flokksins, þá hefðum við aldrei náð inn manni, en höfum hins vegar átt menn á Alþingi frá því að flokkurinn var stofnaður og ég spái því, að þeim muni fjölga í vor.

Svona til gamans, þá var ég að blaða í málefnahandbók FF sem gefin var út fyrir síðustu kosningar og þetta vakti athygli mína:"Frjálslyndi flokkurinn lýsir yfir miklum áhyggjum af skuldastöðu þjóðarbúsins og skuldsetningu heimilanna. Einnig er varað við gegndarlausri skuldsetningu sjávarútvegsins, sem að megin hluta til byggir á veðsetningu á óveiddum fiskinum í sjónum." Fólk hefði kannski betur hlustað á Frjálslynda síðustu árin, því að eins og fjölmargir prófessorar og hagfræðingar hafa sagt, þá var frjálst framsal af aflaheimildum byrjunin á hruni Íslenska fjármálakerfisins. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fá þessa bók, þá á ég nokkur eintök og áhugasamir geta nálgast hana hjá mér.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, til hamingju með þá ákvörðun að bjóða þig til þingsetu, eruð þið búinn að setja saman stefnuskrá, það verður gaman að sjá hana.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 23.2.2009 kl. 21:08

2 identicon

Sæll Georg.

Ánægður er ég að heyra að þú tekur slaginn :)

Óska þér góðs gengis í komandi slag og minnum sem oftast á góð málefni flokksins og stefnu hans.

og margir hafa einblínt á það neikvæða undanfarið.

kveðja
Arnar

Arnar Bergur Guðjónsson (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 22:55

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Til hamingju með ákvörðun þína.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 25.2.2009 kl. 01:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband