Núverandi kvótakerfi og hugmyndir FF (mín skoðun)

Stuðningsaðilar núverandi kvótakerfis eru að rumska til lífsins í aðdraganda kosninga, en hver er munurinn á núverandi kerfi og hugmyndum FF að mínu mati? Núverandi kerfi byggir á því, að útgerðarmennirnir eigi aflaheimildirnar og fari með þær eins og þeim sýnist. Afleiðingarnar höfum við séð út um allt land. Eitt af nýjustu dæmunum eru afleiðingar þess, að útgerðarmaður í Grímsey ákvað að selja sínar aflaheimildir hæstbjóðanda, sem varð til þess að fyrir 2 árum fóru 40% af aflaheimildum í Grímsey frá eyjunni, sem aftur gerði það að verkum að í dag hafa um 40% íbúanna flutt á brott. Stuðningsmenn núverandi kerfis hér í Vestmannaeyjum, tala oft um það að Eyjamenn hafi nokkurn veginn haldið sínum hlut í aflaheimildunum. Þetta er að vissu leiti rétt, en þó koma upp í hugann nokkrar sölur, m.a. fyrir rúmu ári síðan var hið fræga nafn, Binni í Gröf selt upp á land með öllum aflaheimildum og mér er sagt að það hafi verið lögfræðingur sem keypti skipið með aflaheimildum, með það að markmiði að gera út á leigumarkaðinn. Í sjálfu sér má segja það, að á sínum tíma, þegar lagt var af stað með núverandi kvótakerfi, þá hafi það verið fyrst og fremst ágætis hugmynd, en þeirri hugmynd lauk í raun og veru fyrir mörgum árum síðan og við tók þetta brask kerfi sem við þekkjum í dag.

En út á hvað ganga hugmyndir FF að mínu mati? Jú, þær ganga út á það, að tryggja það að aflaheimildirnar haldist í byggðunum fyrst og fremst og að það sé ekki útgerðarmanna að selja eða veðsetja aflaheimildir mörg ár fram í tímann. Menn haldi sínum aflaheimildum til þess að nýta þær og einfaldlega skili þeim inn þegar þeir hætta, þannig að allir aðrir eigi möguleika á að taka við. Að sjálfsögðu þarf að útfæra slíkar hugmyndir nánar, t.d. þarf að taka tillit til þeirra, sem hafa verið að fjárfesta síðustu árin í aflaheimildum, en ég held að það sé nokkuð ljóst að miðað við skuldastöðu útgerðarinnar í dag, þá sé þetta einmitt rétti tíminn til að hefja vinnuna við að breyta núverandi kerfi, t.d. tel ég ekki nokkra spurningu um það að það eigi að gera handfæraveiðar frjálsar. Ég tel líka að það sé hægt að auka aflaheimildir í dag og opna þannig fyrir nýliðun í útgerð, en einnig að það verði þá að loka stærri svæðum til þess að fiskurinn fái frið, en allt saman þarf þetta að útfærast betur. En lokasetningin er sem sé þessi spurning:" Hvort er betra, að útgerðarmaðurinn eigi aflaheimildirnar og fari með þær eins og honum sýnist, eða að aflaheimildunum sé úthlutað eitt ár í einu til byggðanna og aðrir útgerðaraðilar í sömu byggð njóti forgangs á því ef einhver í þeirri byggð hættir?

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, ég er sammála þér, því þetta kvótakerfi er handónýtt og hefur verið lengi, og þetta kerfi hefur ekki byggt upp fiskistofna, það er deginum ljósara. Georg ég sé að við erum sammála um krókaveiðar, þær eru einu vistvænu veiðar sem er hægt að stunda á sjó.

Georg er FF ekki hlynntir því að henda kvótakerfinu út og taka upp sóknarkerfi?

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 24.2.2009 kl. 16:27

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Helgi , jú auðvitað væri best að taka upp sóknarkerfi og loka bara stærri svæðum , en aðal málið er að það er ekki núverandi kvótakerfi sem tryggir landsbyggðinni lif og þess vegna verðum við að breyta því . kv .

Georg Eiður Arnarson, 24.2.2009 kl. 18:38

3 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, já það er rétt hjá þér, ég hefði haldi að nú væri tækifæri fyrir lýðinn að heimta breytingar, og þar á ég við kvótakerfið líka.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 24.2.2009 kl. 23:54

4 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Kveðja frá Valda

þorvaldur Hermannsson, 25.2.2009 kl. 20:02

5 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Hvernig líst þér á ástandið í Frjálslindaflokknum,verður hann bara ekki lagður niður?kv Valdi

þorvaldur Hermannsson, 27.2.2009 kl. 17:24

6 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Valdi , Lokksins er FF orðinn sá landsbyggða flokkur sem hann var í upphafi , frammundann eru spennandi tímar . kv .

Georg Eiður Arnarson, 27.2.2009 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband