Þingmannaflótti

Jón Magnússon og Kristinn H. Gunnarsson eru búnir að yfirgefa FF og þakka ég þeim fyrir ágæt kynni og samstarf og óska þeim góðs gengis í sínum nýju flokkum. Það er ekki hægt að segja, að það hafi verið lognmolla í kringum veru þeirra í FF og kannski lýsandi fyrir skoðanir þeirra, að þeir eru núna báðir að yfirgefa þann flokk sem hvað harðast berst fyrir breytingum á kvótakerfinu og ganga í sína gömlu flokka, sem bera hvað mesta ábyrgð á núverandi kvótakerfi. En svona er þetta bara, fullt af fólki fer í framboð vegna stuðnings við þau málefni sem þeir standa fyrir, en því miður eru þeir félagar kannski gott dæmi um menn, sem taka sitt eigið sjálf fram yfir málefnin.

Mikið er um að reyndir þingmenn dragi sig i hlé og er það í sjálfu sér bara gott, því að margir af þeim sem hafa dregið sig í hlé að undanförnu bera að sjálfsögðu mikla ábyrgð á þeim hörmungum sem hafa gengið á síðustu mánuði. Úr suðurkjördæmi er helst að nefna minn gamla skólabróðir, Lúðvík Bergvinsson úr Samfylkingunni, en ég skil vel að hann skuli hafa hætt við að bjóða sig fram, enda hef ég að undanförnu heyrt á nokkrum Samfylkingarmönnum, spár um að hann myndi að öllum líkindum ekki ná inn. Sama gildir um Árna M. Mathiessen, mér heyrist flestir íhaldsmenn vera á þeirri skoðun að hans tími sé búinn og persónulega er ég mjög ánægður með þessa niðurstöðu, enda er sá skaði sem Árni Mathiessen ber mesta ábyrgð á í sjávarbyggðum landsins nánast óbætanlegur, að maður tali nú ekki um hlut hans í fjármálakreppunni.

Miklar breytingar hafa einnig orðið hjá Framsóknarmönnum, bæði Guðni Ágústsson og Bjarni Harðar hættir. Farið hefur fé betra. Aðeins varðandi þetta bréf sem Bjarni skrifaði og varð honum að falli: menn sem standa fyrir svona skrifum eiga að mínu mati ekkert erindi á Alþingi.

Á eyjamiðlunum er allt í einu komin grein, þar sem því er spáð að Árni Johnsen eigi nánast beina leið inn á Alþingi aftur eftir brotthvarf nafna síns. Ég hef alltaf kunnað ágætlega við Árna Johnsen, en mér hefur þó fundist að þau (mistök) sem hann gerði á sínum tíma og kallaði sjálfur tæknileg mistök, hafi verið þess valdandi að sjálfur gæti ég aldrei kosið slíkan einstakling á þing og það vakti athygli mína í ferðum mínum upp á land eftir síðustu kosningar, hversu mörgum Íslendingum fannst við Eyjamenn vera svona hálfgerðir bjánar með að kjósa svona mann á þing aftur, en ég svaraði því að sjálfsögðu þannig að sennilega hafði Árni fengið fleiri atkvæði á fastalandinu heldur en hér í Eyjum og þar fyrir utan, þá kann ég ágætlega við Árna, en miðað við sögurnar af því, hvernig samflokksmenn hans koma fram við hann á þingi, þá held ég að Árni hefði getað gert margt annað betra fyrir Eyjarnar heldur en að setjast aftur á Alþingi Íslendinga.

Nokkrir ungir frambjóðendur hafa komið fram í þessum flokkum hér fyrir ofan, en því miður sýnist mér að staðan sé óbreytt með stóru flokkana, það er ennþá sama gamla liðið sem heldur í spottana og passar upp á að þeirra þingmenn geri eins og þeim er sagt og merkilegt nokkuð, þessir sömu gömlu stóru flokkar eru enn að mælast með mikið fylgi í skoðanakönnunum, á meðan minn flokkur FF mælist varla, en ég geri mér nú vonir um það að fólk rumski úr Þyrnirósarsvefninum fyrir kosningar.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Já það eru breytingar í Suðurkjödæminu núna, og ekki tókst að fá Davíð í framboð hjá Sjálfstæðismönnum las ég í dag.

Við brettum upp ermar í Frjálslynda flokknum eins og oft áður og tökum kúrsinn áfram.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.2.2009 kl. 22:52

2 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

jæja þá eru fartölvumál mín að komast í lag. Verð komin heim n.k. sunnudag.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 28.2.2009 kl. 23:52

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Kristinn kom smábátunum í kvótakerfið  enda heyrði ég strax að honum reyndist mjög erfitt að tala gegn þessu kerfi sem hann tók svo  mikinn þátt í að koma á.  Annars sendi ég þér mínar bestu baráttukveðjur, ég hef trölla trú á þér. Þú byggir á góðu starfi Grétars, Hönnu Birnu og fleira góðs fólks.

Sigurður Þórðarson, 1.3.2009 kl. 23:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband