2.3.2009 | 22:35
Nóg af loðnu, ekkert leikskólapláss og smá pólitík
það var fallegt veðrið í Eyjum um helgina og ekki síðra á sjónum, en ég fór á sjó báða dagana, fiskirí var gott eða 5 tonn á 22 bala, mest langa . Einn línubátur reyndi fyrir sér á hefðbundnum ýsu miðum en fékk aðeins 5 fiska á 5 bjóð enda vaðandi loðna allt í kringum eyjar .
Ég heyrði áðan í skipstjóra á netabát sem er á veiðum djúpt sunnan við eyjar og er allur fiskur fullur af loðnu, einnig eru smá torfur að koma allan daginn og virðist sem að loðnan sé að komu upp úr kantinum. Sjálfur varð ég var við margar litlar torfur af loðnu um helgina, en engar stórar torfur, en miðað við það sem ég hef séð þá ætla ég að halda mig við mina fyrri skoðun á loðnunni " það hefði verið óhætt að veiða 50 000 tonn " að minnsta kosti .
Samkvæmt Eyjamiðlum þá eru 75 börn á biðlista eftir leikskólaplássi, þetta kemur mér ekki á óvart enda eru íhaldsmenn í eyjum fyrir löngu síðan búnir að gefast upp fyrir kvótakerfinu og unnið í samræmi við það, að undirbúa þjónustuna í bænum fyrir frekari fækkun íbúa.
Nú liggur fyrir fyrstu nöfn á lista FF í suðurkjördæmi og verður listinn borinn upp til samþykkis á fundi næsta laugardag og verður þá í framhaldi af því, ef hann fær samþykki, hægt að birta hann en eftir því sem ég veit best, þá eru amk. tveir Eyjamenn á listanum.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
sæll Georg, hvað meinar þú með fækkun íbúa? Eins gott að þú hringdir ekki inn á Bylgjuna í dag.
kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 2.3.2009 kl. 23:09
Sæll Helgi, Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið að því skipulega síðastliðinn áratug að lækka þjónustustig við íbúana, til að mæta fækkun íbúa. Þetta sagði mér íhaldsmaður fyrir mörgum árum síðan sem var þá bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, en bætti síðan við að ég mætti ekki hafa þetta eftir honum, svo ég ætla ekki að nafngreina hann, svo þar hefur þú það.
Kær kveðja frá Staðarhól
Georg Eiður Arnarson, 3.3.2009 kl. 12:50
Menn sníða stakk eftir vexti!! Þegar búið er að vera fólksfækkun eins og hér hefur verið síðustu árin (fyrir utan 2008) þá hljóta menn að bregðast við því með því að skera niður, ekki fara menn að byggja t.d leikskóla á fullu í mikilli fólksfækkun, menn hljóta stækka húsnæði þegar menn sjá fram á að fólki sé að fjölga !!! Nú hefur þróunin stöðvast og snúist við, hér er núna fólksfjölgun og því er þetta nú nokkuð jákvætt vandmál með leikskólana og við því hlýtur að verða brugðist, það getur varla verið hægt að skammst útí bæjarstjórnina hérna í þessum málum þar sem þessi fólksfjölgun hefur orðið mest á síðustu 3-4 mánuðum.
Hákon (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 15:03
Sæll Hákon, þessi umræddi bæjarstjóri sagði mér þetta fyrir mörgum árum síðan og orðaði það svona " við gerum ráð fyrir fækkun og erum að undirbúa okkur fyrir það " á sama tíma er alltaf talað um að það þurfi að fjölga Eyjamönnum en spurningin er "er það trúverðugt að gera ráð fyrir fækkun en tala út á við um að hér sé nóg pláss fyrir 1 til 2000 mans ? Kv .
Georg Eiður Arnarson, 3.3.2009 kl. 18:08
Strákar, hafið þið ekki frétt það: Það er hugmynd að taka Rauðagerði í gagnið á ný.
Kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 3.3.2009 kl. 21:54
Sæll Helgi , já vonandi gengur það eftir, en svo er aftur spurning þegar ástandið lagast á höfuðborgarsvæðinu fer þá ekki þetta fólk aftur ? Hérna vantar atvinnu til þess að fólki fjölgi í alvöru og hana getum við boðið uppá með því að breyta kvótakerfinu . kv .
Georg Eiður Arnarson, 3.3.2009 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.