Kominn í framboð og draumur trillukarlsins

Þá er það ljóst að undirritaður er kominn í framboð og var ég staddur úti á sjó í gær, þegar listinn var tilkynntur í útvarpinu, en hann hafði þá verið samþykktur á fundi í bænum. Sá reyndar seinna að reynt hafði verið að hringja í mig. Annars fór ég á sjó bæði í gær og í fyrradag, fiskiríið var mjög gott, ca. 5,5 tonn á 24 bala, mest langa og enn er vaðandi loðna allt í kringum eyjar.

En vegna þess að ég er kominn í framboð og skipa annað sæti Frjálslynda flokksins í suðurkjördæmi, þá langar mig að rifja upp aftur sögu, sem ég sagði í jólasnepli okkar frjálslyndra fyrir síðustu jól og heitir einfaldlega Draumur trillukarlsins.

Það var eitt sinn ungur maður í Vestmannaeyjum sem hafði gengið með þann draum í maganum að fara í útgerð, enda höfðu bæði afi hans og langafi verið þekktir útgerðarmenn í Eyjum, svo ungi maðurinn keypti sér trillu og byrjaði að róa. Útgerðin gekk svona upp og niður framanaf, en frá fyrsta degi gekk ágætlega að fiska, en sagan hefst sem sé á fögrum vordegi. Ungi maðurinn fer niður á bryggju, veðurspáin er góð og útlitið eftir því, svo ungi maðurinn setur í gang og leggur frá bryggju og siglir út höfnina, en þegar út fyrir klettsnefið kemur bregður unga manninum við, því við honum blasir sjón sem hann hafði aldrei séð áður. Eftir að hafa fengið að kynnast briminu og ofsanum í veðrinu allan veturinn, blasti við spegil sléttur sjórinn og tilfinningin var svo sterk, að sem snöggvast brá fyrir í huga unga mannsins mynd úr gamalli, góðri bók sem hann las spjaldanna á milli á sínum yngri árum, þar sem m.a. segir frá manni, sem eftir því sem sagan segir, gekk á vatni. Ungi maðurinn hristi þetta af sér, steig út úr stýrishúsinu, kannski til að virða þetta betur fyrir sér, en líka til að hlusta. Ekki heyrðist neitt brimhljóð, en í staðinn fyrir lágvært malið í vélinni kom nánast ærandi gargið í fuglinum. Ungi maðurinn leit upp eftir Ystakletti, allur fuglinn sestur upp og allt iðandi af lífi, og fann hvernig þessi sýn snerti hann á sama hátt og eitthvað sem hefur mikil áhrif á okkur. Fór hann síðan aftur inn í stýrishús og lagaði stefnuna, steig síðan út til að virða þetta allt saman betur fyrir sér og var að horfa á eyjarnar í austri, þegar skyndilega fyrsti geisli sólarinnar kom eins og elding austan við jökul. Birtan var svo ofboðsleg að það dugði unga manninum ekki að bera hendini fyrir og lokaði hann því augunum, en í huga unga mannsins kom algjörlega ósjálfrátt þessi litla ósk einhvern veginn svona: Bara ef, bara ef ég gæti fengið að lifa og starfa í friði, ég verð aldrei ríkur en hugsanlega, með hörku og dugnaði, get ég sér fyrir mér og mínum. Ungi maðurinn hristi þetta nú fljótt af sér og hugsaði með sér: Ætli það verði ekki einhver bankastjórinn, eða þetta nýjasta kvótakerfi sem gerir út af við einhverja svona draumóra. Hann lagaði stefnuna á bátnum betur, en var síðan litið til baka á Heimaey sem fjarlægðist óðum, þá kom þessi viðbót: Og þó, hér á einhverjum fallegasta stað í heiminum, hér gæti ég svo sannarlega hugsað mér að bera beinin. Aftur hristi ungi maðurinn af sér þessar hugleiðingar og tautaði með sjálfum sér:" Vonandi á ég þó nokkur góð ár eftir" og hélt sína leið.

Eins og gefur að skilja, þá þekkti ég þennan unga mann mjög vel og þekki hann kannski ennþá betur í dag, en draumur trillukarlsins lifir enn í dag og þegar við horfum á allar þær hörmungar sem dunið hafa yfir okkur síðustu mánuði og sjáum svo sömu stóru flokkana sem bera ábyrgðina á þessum hörmungum óska enn og aftur eftir því að fá nýtt umboð til að stjórna, þá er aldrei eins mikilvægt og nú að við skoðum þann möguleika að gefa nýjum flokkum og nýju fólki tækifæri á að taka við og fyrir mitt leyti, þá mun ég berjast fyrir draumi trillukarlsins.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll. Það er mikill styrkur fyrir Frjálslynda flokkinn að fá menn eins og þig í framboð. Vegni okkur öllum vel í baráttunni. Ég hef svo gaman að þessari sögu þinni vegna þess að maður finnur lyktina af sænum. Ég er nú kominn af sjómönnum tel mig vita mæta vel hvað þú ert að tala um, sé þetta fyrir mér.

Bestu kveðjur

Helgi

Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.3.2009 kl. 19:41

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir það Helgi . kv .

Georg Eiður Arnarson, 9.3.2009 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband