Frábært landsþing hjá Frjálslyndum og Fréttir, frjálst og óháð?

Landsþing FF var um helgina og þvílíkur munur frá síðasta þingi, því að samheldnin og ánægjan var nánast með ólíkindum. Samstaðan og styrkurinn sem við sýndum á þessu þingi mun að mínu mati fleyta okkur langt í komandi kosningabaráttu. Mig langar að óska nýrri stjórn til hamingju með sitt kjör, Guðjóni Arnari Kristjánssyni formanni, Ásgerði Jónu Flosadóttir varaformanni, að ógleymdri Eyjakonunni, Hönnu Birnu Jóhannsdóttur ritara. Einnig var mikið um endurnýjun í miðstjórn flokksins og sérstaklega ánægjulegt að meirihlutinn í miðstjórninni eru sýnist mér konur og óska ég þeim til hamingju með það. Einnig kom fram á þessu þingi í fyrsta skipti, nýr þingmaður FF Karl V. Matthíasson, ræddum við nokkrum sinnum saman og er ég mjög ánægður með þessa viðbót við flokkinn og kannski er koma Karls í FF skýrasta dæmið um þá aumlegu stefnu sem hans fyrri flokkur hefur varðandi fiskveiðistjórnunina. Einnig var sérstaklega ánægjulegt að sjá Magnús Þór Hafsteinsson stíga fram og lýsa því yfir, að þrátt fyrir að hann væri ekki í forystuhlutverki í komandi kosningum, þá muni hann að sjálfsögðu halda áfram að berjast af fullum kröftum fyrir FF, enda er stefna flokksins sú eina rétta og ætlaði þakið að rifna af húsinu af fagnaðarlátum við lok ræðu hans.

Stykkishólmur er staður, sem ég mæli með að fólk heimsæki, hótelið þar er alveg meiriháttar flott og þjónustan góð og voru dæmi um það, að sumir hefðu dansað og sungið fram undir morgunn, en ég þakka fyrir mig.

Það er hálf aumlegt að fara inn á síðuna eyjafréttir.is og lesa þar fréttina um kosningu okkar Frjálslyndra, því ekki bara er nýr ritari rang feðruð, heldur er formaðurinn skýrður upp á nýtt, en svona til gamans, þá renndi ég yfir allar greinar og öll nöfn sem tengjast íhaldinu á vefnum, eða öðrum flokkum og viti menn, ekki ein einasta villa í einu einasta nafni og svo segja sumir fréttamenn að þeir séu óhlutdrægir og hlutlausir í allri sinni umfjöllun, því að ef svo er þá eru þetta ansi mikil mistök hjá fréttamanni á þessari síðu og ekki laust við að það læðist að manni að þetta sé gert viljandi, enda held ég að fáir eyjamenn upplifi þennan vef sem einkvað frjálst og óhlutdrægt. En þetta er því miður ekki fyrsta og sennilega ekki síðasta skiptið sem við í FF erum rang feðruð, rangnefnd eða uppnefnd af ritstjórum þessarar síðu.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Samheldni? Já eflaust.. kannski ekki skrítið þegar meirihlutinn voru 3 fjölskyldur og vinir og áhangendur þeirra.

Úrslit kosninganna og þá á ég við fjöldi atkvæða til vissra frambjóðanda ... var undarleg.

Það mætti halda að úrslitin hefðu verið ákveðin fyrir löngu síðan ... það er nú það.

ThoR-E, 15.3.2009 kl. 21:57

2 Smámynd: ThoR-E

Ef ég má bæta við.

Ég varð fyrir vissum vonbrigðum með ýmislegt. Sérstaklega varaformanninn, en það er mikið af góðu fólki í flokknum.

ThoR-E, 15.3.2009 kl. 21:58

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Ace? kv.

Georg Eiður Arnarson, 15.3.2009 kl. 22:46

4 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Vonandi gengur ykkur vel í Suðurkjördæminu, með endurnýjað mannval á lista, en ég fagna nýjum varaformanni og ritara.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 16.3.2009 kl. 02:09

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl Guðrún MARÍA, takk fyrir það . Þín var saknað á landsþinginu , en ég vona svo sannarlega að þú verðir með næst . kv .

Georg Eiður Arnarson, 16.3.2009 kl. 08:45

6 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Sæll Georg

og takk fyrir síðast helgin var alveg frábær hjá okkur. Góður andi og málefnalegur algjör baráttuandi. Frábærir einstaklingar kosnir til trúðastarfa.

Ég óska okkur til hamingju með árangurinn og samstöðuna það er það sem andstæðingar okkar óttast.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 16.3.2009 kl. 13:57

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir það Ragnheiður og sömuleiðis góðar kveðjur vestur frá okkur hér í Eyjum .

PS, þú meinar að sjálfsögðu "trúnaðarstarfa "

Georg Eiður Arnarson, 16.3.2009 kl. 15:01

8 identicon

Blessaður Georg.

Las pistilinn þinn um þingið í Stykkishólmi og skoðanir þínar á eyjafrettum. Ritstjóri vefsins er frændi þinn Júlíus Ingason. Ekki dettur mér í huga að þær prentvillur sem voru í umfjöllun  hans um þingið í Stykkishólmi, hafi verið gerðar af ásettu ráði. Hann á það til að vera ekki alltaf með nöfn á hreinu og í þessu tilviku var alveg örugglega um mistök af hans hálfu, sem voru reyndar leiðrétt á sunnudeginum. Mæli með því að þú hafi samband við hann og ræðir þessu mál í botn, í stað þess að vera með samsæriskenningar gagnvart honum.

Gísli Valtýsson (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 18:50

9 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæll Gísli, ég reyndi ítrekað að ná í Júlíus en hann svaraði ekki . Varðandi samsæriskenningar þínar þá tel ég Júlíus vera með betri mönnum á Fréttum . Ég var ánægður með leiðréttinguna en það hefði aðeins kostað eitt símtal til mín eða eina heimsókn inn á XF síðuna til að fá þessi nöfn rétt . Vonandi verður betur vandað til verks í framtíðinni .

Ég vil líka benda á ágæta grein hjá Grétari Mar (á blogginu) þar sem hann er að leiðrétta annan frétta mann í öðru blaði . Það á ekki að vera hlutverk okkar sem eru í framboði að standa í slíku enn þetta er ótrúlega algengt . kv .

Georg Eiður Arnarson, 16.3.2009 kl. 20:22

10 Smámynd: Ragnheiður Ólafsdóttir

Sæll aftur Georg auðvitað átti þetta að vera til trúnaðarstarfa, þessar nýju konur í stjórn er duglegar og kraftmiklar og vinna örugglega með grasrótinni í flokknum, það er það sem hefur vantað, því miður en það er starf varaformanns og ritara að efla tengslin við flokksmenn.

Ragnheiður Ólafsdóttir, 16.3.2009 kl. 22:55

11 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Já Goggi furðuleg nafnabreglan hjá fréttamönnum þegar Frjálslyndir eiga í hlut.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 18.3.2009 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband