Síld, loðna, vor og kosningar

Það var svolítið merkilegt að sjá Kap vera við síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn í dag, en mér skilst að þetta sé fyrst og fremst til fjáröflunar fyrir ÍBV og er það bara gott ef svo er.

Setti færarúllurnar upp hjá mér í dag og fór út fyrir til að prófa. Ekki var fiskiríið merkilegt enda vaðandi loðna allt í kringum Eyjar og ótrúlegt að Hafró skyldi ekki vera enn við mælingar, en þeir myndu víst ekki finna loðnuna þó hún birtist í baðkarinu hjá þeim. Það hefði ekki verið slæmt fyrir fjárhag Eyjamanna að fá að veiða eins og 50-100 þús. tonn, en þetta er víst búið í ár.

Það er virkilega orðið vorlegt í Eyjum, rigning alla daga og farið að bera á grænum lit á flestum túnum. Eitthvað segir mér þó að páskahretið muni ekki láta standa á sér frekar en undanfarin ár. Tvennt er mest spennandi framundan að mínu mati, það eru aðeins 4 vikur í að lundinn komi og 5 vikur í kosningar. Á föstudag fer ég upp á land og munum við Frjálslyndir nema land í Grindavík með opnum fundi þar um kvöldið, svo nú má segja sem svo að kosningabaráttan sé hafin.

Meira seinna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, þú segir nokkuð með stjórnvöld sjávarmála hér hjá okkur, þetta sýnir bara hvað þeir er úr takt við veruleikan, mig langar að óska þér til hamingju með stöðu þinnar innan FF, það er bara vonandi að ykkur gangi vel í næstu kosningum.

Kær kveðja frá Áshamrinum.

Helgi Þór Gunnarsson, 19.3.2009 kl. 11:52

2 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir það Helgi . kv .

Georg Eiður Arnarson, 19.3.2009 kl. 14:33

3 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Já ég skal trúa því að sérstakt hafi verið að sjá sildveiðar í höfninni.

Var að hugsa um hve tryggir Eyjamenn eru að viðhalda bátanöfnunum, og Kap gott dæmi um það.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 19.3.2009 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband