21.3.2009 | 23:00
Fjölmennur fundur í Grindavík og verðtrygging
Góður fundur í Grindavík í gær og kosningabaráttan þar með hafin. Flestar spurningar voru að sjálfsögðu um kvótakerfið, en mér fannst almennt vera góður hljómur um hugmyndir okkar Frjálslyndra og mæli með því að fólk kíki í heimsókn til Grindavíkur, enda hef ég alltaf átt vissar taugar þangað.
Það er svolítið merkilegt að fylgjast með Steingrími J. hjá Vinstri grænum, lýsa því yfir að hann vilji fella niður verðtrygginguna. Sama dag er viðtal við Bjarna Ben. hjá Sjálfstæðisflokknum, þar sem hann lýsir þessu sama yfir, svo enn einu sinni eru stóru flokkarnir að taka upp málflutning okkar Frjálslyndra, enda höfum við barist fyrir þessu máli í fjölda mörg ár. Nú vantar bara að þessir sömu menn og flokkar fari að taka upp hugmyndir Frjálslyndra varðandi breytingar á kvótakerfinu, en það læðist að manni grunur um að ekki fylgi alveg hugur máli, enda þessir aðilar komnir í bullandi kosningabaráttu, en þó er það ánægjulegt að menn skuli taka upp hugmyndir Frjálslyndra, enda enginn vafi á því, að hugmyndir Frjálslynda flokksins og stefnuskrá eru það lang besta sem er í boði í dag, enda erum við ekki að finna upp einhverja stefnu núna, heldur erum við að vinna eftir sömu stefnuskrá og hefur verið í gildi hjá okkur árum saman.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg.
Gangi þér vel í baráttunni.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 22.3.2009 kl. 01:40
Sæll Georg, hefur nokkurn tíman verið að marka pólitíkus rétt fyrir kosningar? ég bara spyr? Nei og hefur aldrei verið frá því að pólitík var fundinn upp fyrst, þannig að ég er mikið að hugsa um það þessa daganna að taka ekkert mark á því sem þið frambjóðendur eruð að lofa, því þið getið ekki staðið við það sem þið lofið, og er ég að hugsa um að eyðileggja kjörseðilinn minn er ég er kominn inn í kjörklefa einn með Guði, amen eftir efninu.
kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 22.3.2009 kl. 21:53
Sæll Helgi, greinin mín svarar þessu hjá þér enda ekki ný stefnumál hjá FF . Varðandi pólitíkusa og frambjóðendur þá er ég alveg sammála þér, því þó ég sé í framboði þá tel ég mig ekki vera mikinn pólitíkus enda aldrei lært að ljúga . kv .
Georg Eiður Arnarson, 22.3.2009 kl. 23:30
Gott að fundurinn var góður.Frjálslyndir haga ekki stefnumálum sínum eftir vindi.
Hanna Birna Jóhannsdóttir, 23.3.2009 kl. 03:37
Sæll Georg, þetta svar hjá þér er mjög gott, aldrei að vita nema það skili ykkur atkvæði.
Kær kveðja frá Áshamrinum.
Helgi Þór Gunnarsson, 23.3.2009 kl. 20:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.