Meira seinna

Kosningaúrslitin í morgun voru okkur Frjálslyndum gríðarleg vonbrigði. Persónulega finnst mér það alveg með ólíkindum að öll þessi sjávarþorp við suðurströndina skuli hafna því að hafa sjómann á þingi. En það er nú svo, við vissum fyrirfram að róðurinn yrði mjög erfiður, enda hefur neikvæð umræða um flokkinn verið nánast vikulega í fjölmiðlum í allan vetur. Það sem eftir stendur samt hjá mér er ánægjan yfir því, að hafa fengið að ferðast um suðurlandið og kynnast öllu því fólki sem ég kynntist í kosningabaráttunni. Mig langar að þakka öllum þeim sem tóku slaginn með okkur, sem og einnig þeim sem komu og heilsuðu upp á okkur. Reyndar voru ansi margir sem sögðu við mig í nótt, að nú ætti ég að segja við fjölmiðla: "Okkar tími mun koma" en ætla að sleppa því og orða þetta með mínum hætti:" Meira seinna."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Ég var að svara Óla bloggvini mínum áðan og sagði honum að ég hefði samúð með honum, í þessu efni, og sama get ég sagt við þig, en þeirri hinni sömu samúð er ekki til að dreifa af minni hálfu í garð forystumanna flokksins og fleiri innan hans sem eftir sátu þegar ég yfirgaf hann.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.4.2009 kl. 01:36

2 identicon

Heill og sæll Georg.

Úrslit kosninganna hljóta að vera nokkur vonbrygði fyrir þig og er það vel skiljanlegt,þú og Grétar Mar hefðu kanski átt að hugsa meira um kosningar þegar þið hömuðust á móti hafnargerð í Bakkafjöru .en ég veit um fólk sem hefði kosið ykkur ef þið hefðuð ekki verið svona neikvæðir ú í þessar stórkostlegu samgöngubætur sem við sjáum nú að eru að verða að veruleika

sumarkveðja Sigurður Þórarinsson

Sigurður Þórarinssn (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 00:01

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sæl bæði tvö og afsakið hvað ég svara seint.

Guðrún María, takk fyrir samúðina, en ég óska þér annars til hamingju með að hafa á sama hátt og Margrét Sverrisdóttir á sínum tíma skaðað þau góðu málefni sem við í Frjálslynda flokknum höfum barist fyrir svo lengi.

Sæll Sigurður, það er rétt, úrslitin eru mikil vonbrigði, en ég verð þó að leyfa mér það að efast um að skoðanir mínar eða Grétar Mars á Bakkafjöru hafi haft þar mikil áhrif, enda svaraði ég þessari spurningu í ýtarlegu viðtali í Fréttum tveimur dögum fyrir kosningar og get svo sem sagt mína skoðun enn og aftur hér: Ég tel að eyjamenn hefðu átt að fá að kjósa um okkar framtíðar samgöngumál. En tek annars undir mér þér, vonandi verða þetta stórkostlegar samgöngubætur.

Kveðja

Georg Eiður Arnarson, 3.5.2009 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband