8.5.2009 | 22:35
100.000 tonn, mútur, Bakkafjara og sjóstöng
Það var svolítið merkilegt að sjá ályktun skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðanda í vikunni inni á Eyjamiðlunum, sem og viðtalið við skipstjórann á Vestmannaey, þar sem í fyrsta skiptið var tekið undir þær skoðanir okkar Frjálslyndra um að óhætt væri að bæta við 100 þús. tonnum af þorski til hagsældar fyrir land og þjóð. Menn hefðu kannski átt að hafa þetta í huga þegar menn gengu til kosninga um daginn, enda sýnist mér enginn annar flokkur vera með slíkar hugmyndir, kannski eðlilega því að Frjálslyndi flokkurinn er eini flokkurinn sem hefur þó þekkingu og reynslu á sjávarútvegsmálum, enda gríðarlega margir Frjálslyndir sem starfa við fiskveiðar.
En hvaða þýðingu höfðu kosningaúrslitin fyrir þjóðina? Margir hafa sagt við mig að þeir séu mjög óhressir með lélega útkomu okkar Frjálslyndra. Svar mitt við því er einfalt, menn hefðu kannski átt að hugsa út í það fyrir kosningar. Nokkrir hafa sagt við mig að þeir skilji ekkert í því, hvers vegna Framsóknar flokkurinn fær svona fína kosningu. Svar mitt við því er að hluta til kemur það til vegna þess að margir Sjálfstæðismenn, sem ekki treysti sér til að kjósa sinn flokk og tengjast núverandi kvótakerfi að einhverju leiti, hljóti að hafa kosið Framsókn. Þar fyrir utan, þá gerðu Framsóknarmenn það sem þeir gera fyrir hverjar kosningar, mokuðu peningum í auglýsingar t.d. voru þeir með stundum 8-10 síður í Fréttablaðinu, en mér er sagt að ein síða þar kosti hátt í 500 þúsundir og nokkuð augljóst, að litlir og peningalausir flokkar geta aldrei keppt við slíkt, en tek annars undir með þeim, sem sögðu þetta við mig:"Furðulegt að fólk skuli láta blekkjast af Framsóknarflokknum" en að öðru leyti óska ég Eygló Harðar að sjálfsögðu til hamingju með sinn árangur.
Það stefnir allt í að vinstri stjórn verði mynduð núna um helgina og verður spennandi að sjá, hvort að þeir flokkar standi við kosninga loforð sín um breytingar á kvótakerfinu, en eins og ég hef sagt áður, þá hugnast mér ekki þessi svokallaða fyrningarleið. Reyndar er risinn upp mikill grátkór útgerðarmanna, eða eins og einn góður vinur minn orðaði það í dag við mig:" Hvað fyndist þér um það, að þú værir búinn að kaupa þér hús og svo kæmi ríkið og tæki það af þér?" Þetta er að sjálfsögðu ekki sambærilegt, en fyrir mitt leyti þá er alls ekki sama hvernig kerfinu verður breytt og kannski má segja sem svo, að lykil atriðið sé að allir gallarnir verði sniðnir af núverandi kerfi, en ég hef í sjálfu sér ekki mikla trú á því að þessi nýja Ríkisstjórn geri það.
Það vakti athygli mína að við þar síðustu blogg færslu mína kom athugasemd sem sagði að ég hefði sennilega fengið betri kosningu ef ég hefði ekki verið í svona hatrammri baráttu geng Bakkafjöru. Þetta þótti mér nokkuð merkilegt,(hefði reyndar þegið atkvæðin frá öllum þeim sem eru á móti Bakkafjöru, það er verst að þá væri ég sennilega kominn á þing) enda tel ég mig ekki hafa verið í neinni slíkri herferð og vona svo sannarlega að hafnarmannvirkið heppnist og verði sú samgöngubót sem við öll óskum okkur. Hitt er svo annað mál, að ég fjallaði mikið og lengi um Bakkafjöru. Margt af því sem ég skrifaði var haft eftir öðrum, en það breytir samt ekki því að mín persónulega skoðun er sú, að Bakkafjara hafi verið lakasti kosturinn af þeim 3 sem voru í umræðunni, en endurtek bara þetta, vonandi verður þetta bara í lagi.
Á morgun er innanfélagsmót Sjóve í sjóstangveiði. Reyndar er hífandi rok eins og er en á að lægja þegar líður á morgundaginn. Annað kvöld verður síðan boðið í heljar veislu á Fjólunni og í næstu viku byrjar einn af mínum uppáhalds tímum ársins því þá byrjar eggjatakann.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll vinur.
Gangi þér vel í sjóstangaveiðinni í dag. Verð með þér í huganum.
Kveðja til Vestmannaeyja,
Grétar Mar
Grétar Mar Jónsson, 9.5.2009 kl. 09:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.