Sjóstöng og kvótakerfið

Það fór hálf illa, sjóstöngin í dag, enda þó að klukkan sé orðin 17 núna, þá eru ennþá 15 metrar á höfðanum. Búið að fresta þessu þangað til í fyrramálið, en veðurspáin er eitthvað skárri á morgun.

Á textavarpinu er núna frétt sem fjallar um hugmyndir LÍÚ um breytingar á kvótakerfinu vegna nýju ríkisstjórnarinnar. Tillagan gengur út á það að stöðva alla leigu á aflaheimildum, en gegn fyrningarleiðinni. Þessi hugmynd myndi hins vegar að sjálfsögðu gera út af við allar kvótalausar útgerðir á landinu, svo nú verður forvitnilegt að sjá hvort að þessar nýafstöðnu kosningar verði kannski til þess (allavega ef þessar hugmyndir ganga fram) að ég og hundruðir sjómanna og útgerðarmanna í sömu sporum allt í kringum landið, þurfum kannski að flýja land. Ekki er ég viss um að hagsmunir þjóðarinnar liggi þar, en það verður bara að koma í ljós hvaða hugmyndir núverandi ríkisstjórn hefur, en kannski má segja sem svo að þessi hugmynd LÍÚ sé lýsandi dæmi um það, hversu útgerðarmenn eru tilbúnir að ganga langt til að tryggja sig og sína á kostnað heildarinnar.

Meira seinna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Þetta er  alveg satt, þetta er klíka sem mundi labba fram af bjargi til að verja hagsmuni sína.þú flytur þá til Borgarinnar.Hér er fínt að vera Goggi,ég hef aldrei haft það betra.kv

þorvaldur Hermannsson, 9.5.2009 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband