12.5.2009 | 23:44
Sjóstöng og Áfram ÍBV
Það var ekki fyrr en á Sunnudaginn sem lokksins lægði og fóru þá 5 bátar með samtals 16 veiðimenn á sjóstöng , tíminn var líka styttur því sumir þurftu að ná Herjólfi Kl 1600 . veiðin var svona lala en samtals tæp 1500 kg . Aðeins veiddust 7 tegundir sem er óvenjulegt en þar af komu stærstu fiskar í 3 tegundum um borð hjá mér . Maturinn um kvöldið á Fjólunni var alveg meiriháttar og get ég mælt með hlaðborðinu þar , en ég þakka fyrir mig og mína .
ÍBV spilaði sinn fyrsta leik í vikunni í úrvalsdeildinni og tapaði fyrir Fram 2-0 . í umfjöllun um leikinn kemur fram að okkar menn hafi verið betri framan af en gefið eftir í restina en þessi úrslit gera leikinn á morgunn gegn Blikum enn mikilvægari fyrir vikið , það hlýtur að vera takmark okkar að hirða öll stig sem eru í boði á heimavelli . Áfram ÍBV .
Meira seinna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.