19.5.2009 | 14:01
Það drýpur smjör af hverju strái í Vestmannaeyjum
(ég nýkominn úr eggjum með 100 egg)
Í gamla daga var stundum talað um Vestmannaeyjar sem stórt forðabúr, sérstaklega yfir sumarmánuðina. Í dag er hins vegar nýtingin á þessu aðeins smámunur á við það sem áður var, enda ekki mikill áhugi hjá ungviðinu að fá sér egg þegar pizzur og ýmislegt annað sambærilegt er í boði.
Það er svolítið merkilegt að fylgjast með umræðunum um auðlindina þar sem útgerðarmenn reyna að telja okkur trú um það, að það sé best fyrir okkur öll að þeir haldi áfram að fara með auðlindina eins og þeim sýnist, og að það muni skaða byggðir landsins ef kerfinu verður breytt. Ég tek það skýrt fram að ég er ekki alls kostar sammála þessari svokölluðu fyrningarleið, en hvað um allan þann skaða sem núverandi kerfi ber ábyrgð á og hvernig gengur að byggja upp þorskstofninn í núverandi kerfi? Er ekki rétt að skoða aðrar leiðir og sleppa því að kalla úlfur, úlfur?
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ætlarðu ekki að senda egg í verslanir í Borginni kv valdi
þorvaldur Hermannsson, 19.5.2009 kl. 17:25
Heill og sæll Georg það er ekki laust við að maður fái vatn í munninn þegar maður sér þessi egg í fötunni.
Ég er sammála þér um þessa umræðu um auðlindina, samt er það kannski ekki undarlegt að menn reyni að halda í það sem þeir hafa keypt á undanförnum árum fyrir mikla peninga.
kær kveðja
Sigmar Þór Sveinbjörnsson, 19.5.2009 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.