ÍBV, spilling? og níu erfiðir dagar

Óska ÍBV strákunum til hamingju með góðan leik í dag þó að úrslitin hafi svo sannarlega verið gríðarleg vonbrigði. Betra liðið vinnur ekki alltaf, en fyrir mitt leiti fannst mér það vera viss sigur að geta sagt eftir leikinn, að við vorum svo sannarlega betri aðilinn í leiknum.

Það vakti athygli mína grein í Fréttum sem bæjarstjórinn okkar skrifar og kallar: Dylgjur álitsgjafa.

Töluverð umræða hefur verið í bænum um mannaráðningar meirihlutans og í sjálfu sér ekkert óeðlilegt í framhaldi af þeim málum, sem komu upp og tengdust Sjálfstæðis flokknum fyrir kosningarnar í síðasta mánuði, að fólki detti fyrst í hug orð eins og spilling, en í sjálfu sér finnst mér ekkert óeðlilegt í raun og veru við það að fólk sem skipi meirihluta ráði til starfa á vegum bæjarins, fólk sem það þekkir og treystir best. Hins vegar er alltaf spurning, þegar tengslin eru jafn náin og koma fram í grein bæjarstjórans. Hins vegar held ég að það myndi nú í raun og veru engu máli skipta, hvaða meirihluti ætti í hlut, að sjálfsögðu smitast það aðeins inn í mannaráðningar. Dapurlegast er þó, ef satt er, að bæjarfulltrúar í meirihlutanum hafi ekki séð ástæðu til að víkja til hliðar á meðan ákvarðanir um hvern ætti að ráða til starfsins voru teknar. Vonandi er þetta ekki rétt, en maður neitar því ekki að orðið spilling kemur upp í hugann. Og merkilegt nokkuð, hversu mörg mál tengd þessum ákveðna stjórnmálaflokki hafa komið upp síðustu mánuði.

Síðustu 9 dagar hafa verið gríðarlega annasamir hjá mér og skiptast þeir í 5 daga í eggjum og 4 dagar á sjó. Fiskiríið var með ágætum, eða tæp 8 tonn. Eggjatakan er svona meira áhugamál, en reyndar tíndi ég óvenju lítið í ár eða aðeins um 300 egg og hef oft tekið meira. Man sérstaklega eftir einu ári fyrir mörgum árum síðan þegar ég stundaði eggjatöku grimmt í Heimakletti og þá sérstaklega Dufþekju og náði ég einu sinni að fara yfir 2000 egg yfir eggjatímann. Alltaf sér maður eitthvað nýtt á hverju ári sem vekur athygli mans, t.d. var ég að klifra suður í Litla-höfða um daginn og er að koma að hreiðri þar sem sitja tveir fýlar. Í fyrstu hélt ég að þar væri ekkert egg, enda er það oft þannig að kvenfuglinn rekur karlfuglinn í burtu eftir að eggið er komið í hreiðrið, en eftir því sem ég nálgaðist þetta hreiður betur, þá sé ég að fuglinn sem situr í hreiðrinu verður svolítið órólegur, sem endar með því að hann fer úr hreiðrinu og flýgur burt, en hinn fuglinn sest í hreiðrið. Efir að hafa fengið tvær góðar spýjur frá fuglinum, þá flýgur hann líka burt og fékk ég þar eitt egg. Þegar ég fór að hugsa um þetta eftir á, þá þykir mér nokkuð augljóst að þarna hafði kvenfuglinn leyft karlfuglinum að liggja aðeins á, en tekið síðan við þegar hætta steðjaði að, enda karlinn flúinn. Þetta minnti mig á spurningu sem ég fékk í kosningabaráttunni í síðasta mánuði, þar sem ég var spurður um skoðanir Frjálslynda flokksins á málefnum feðra án forræðis og ég velti því fyrir mér, hvort við ættum ekki einmitt  að taka dýrin okkur stundum til fyrirmyndar og leyfa körlunum stundum að liggja á?

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Góður pistill Georg.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 24.5.2009 kl. 03:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband