Sandsíli

Sandsílabanar

Maður er nefndur Aðalsteinn Agnarsson, 58 ára, fæddur og uppalinn á Hjalteyri við Eyjafjörð.  Faðir hans, Agnar Þórisson ól hann upp á trillubátum, en Þórir, afi Aðalsteins var alinn m.a. upp á hákarlaskipum.

Aðalsteinn, eða Alli, var til fjölda ára einn af skakmönnum Íslands og reri m.a. frá Vestmannaeyjum.  Án þess að á nokkurn sé hallað er Alli án nokkurs vafa einn af bestu handfæramönnum landsins.  Hann hefur ekki sótt sjóinn til nokkurra ára, en hugurinn er þar enn.

Aðalsteinn kom við á skrifstofu LS fyrr í dag og skildi eftir sig eftirfarandi texta, undir fyrirsögninni „Sandsílabanar“:

„Sandsílið hrygnir í nóvember til desember á 50 metra dýpi.  Það límir eggin við sandbotn og þar þurfa þau að vera í 4 mánuði, eða fram í apríl til að klekjast út.

Snurvoðaflotinn dregur veiðarfæri sín yfir þessi svæði og losar eggin frá botninum svo þau farast.  Snurvoðin losar líka loðnueggin frá sandbotninum.  Þau lifa það ekki af.  Síðan kemur loðnuflotinn á vorin og skefur sandbotninn og gengur alveg frá sandsílaeggjunum.  Við skulum ekki tala um hvernig nótin leikur loðnueggin þegar loðnan er að hrygna.  

Í samtali við Val Bogason, fiskifræðing í Vestmannaeyjum sagðist hann hafa skoðað mikið í ýsumaga í mars 2009 og fundið sama og ekkert af sandsílaeggjum.  Ýsan er því saklaus.

Aðalsteinn Agnarsson“.

Við þetta er að bæta að á vef Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings er athyglisverð umfjöllun um málið.  Slóðin er:

http://esv.blog.is/blog/esv/entry/174583/

Sandeel2.jpg

Sandsíli

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Mér til ánægju fékk ég hringingu frá honum um daginn, einfaldlega vegna þess að ég hafi bloggað um sandsílið á sínum tíma í tengslum við fjölgun mávanna, og hann gúgglaði mig i þessu efni.

Það er með ólíkindum að Hafrannsóknarstofnun skuli ekki hafa fundið þetta út og bent stjórnvöldum á annmarka þessa.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 30.5.2009 kl. 23:52

2 Smámynd: Arnar Bergur Guðjónsson

Sæll Georg.

Langaði að segja þér frá því að ég var að draga grásleppunet um daginn, fékk nokkra þorska í trossuna og þeir voru fullir af sandsíli.

en þarna eru aldrei neinir snurvoðabátar eða loðnubátar.

Arnar Bergur Guðjónsson, 31.5.2009 kl. 00:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband