Annasamir dagar og lundinn er ljúfastur fugla

Það hefur verið frekar lítill tími til að blogga að undanförnu, en margt er búið að gerast. Er búinn að róa 4 sinnum og fiskað liðlega 10 tonn. Var í sjóstönginni um síðustu helgi í sennilega eitthvað besta veðri í sjóstöng í mörg ár, enda var fiskiríið ágætt. Sjómannadagshelgin hins vegar fór í beitningu hjá mér, enda þurfa leiguliðar að vinna helst alla daga til þess að dæmið gangi upp. Framboð á kvóta hefur einnig minkað mikið að undanförnu og um leið leigan hækkað verulega, sem gerir þetta enn erfiðara og maður svona veltir því fyrir sér í allri þessari umræðu um þessa svo kölluðu fyrningarleið, hvort menn ættu ekki að fara í það í alvöru að reyna að leysa úr öllum þeim fáránlegu göllum sem eru á núverandi kvótakerfi.

Ég hef ekki séð mikið af lunda að undanförnu, en þó hefur komið einn og einn dagur þar sem mikið er af lunda, þetta er í sjálfu sér eðlilegt enda varpið í fullum gangi. Reyndar bárust mér fréttir í vikunni af því, að lítið væri komið af eggjum í þær holur sem skoðað hefði verið í, og einnig leist mér frekar illa á þær fréttir sem lágu fyrir um síðustu mánaðarmót, að varp svartfuglsins hefði misfarist. Heyrði hins vegar í dag af þeim Súlnaskers mönnum, sem voru að koma úr sinni síðustu eggjaferð í skerið, að þeir væru þá búnir að hirða þá samtals 2500 egg, sem er í samræmi við væntingar, en merkilegt nokkuð, 10 dögum seinna en vanalega. Einnig tóku þeir eftir því að mikið líf væri að færast í lundabyggðina í skerinu. Nú þegar liggur frammi tillaga frá bjargveiðifélagi Vestmannaeyja um að ekki verði farið í lundaveiði fyrr en í fyrsta lagi frá og með 10 júlí, en það er svo bæjarstjórnarinnar að taka ákvörðun um það.

Fyrir mitt leyti lítur dæmið þannig út: Við munum ekki vita fyrr en um næstu mánaðarmót hvort að varpið tókst og hversu mikið það er. Í sjálfu sér mun heldur ekki koma í ljós fyrr en í seinnipartinn í ágúst, hvað mikið kemst á legg. Ég er algjörlega sammála því að ekki verði byrjað að veiða fyrr en í fyrsta lagi eftir 10. júlí og að málið verði endurskoðaða 25. júlí. Ég tel hins vegar að ákvörðun um slíkt eigi að taka hér í Eyjum, en nokkur atriði tel ég að séu mjög mikilvæg í umræðunni, lundastofninn á Íslandi telur nokkra tugi milljóna. Eitthvað af merktum lunda frá Vestmannaeyjum hefur nú þegar veiðst víða um land, sem bendir til þess að ungfuglinn sé farinn að sækja þangað sem meira æti er í boði. Þetta getur hins vegar breyst, en til þess að svo verði, þá er ég á þeirri skoðun að við þurfum að herða enn meira veiðarnar á makrílnum sem þegar er farinn að veiðast víða með suðurströndinni og síðast en ekki síst, þ.e.a.s. ef menn ætla sér að veiða lunda í Vestmannaeyjum í framtíðinni þá verðum við að losna við snurvoðina af uppeldissvæði sílisins og bendi á ágæta grein, sem ég birti hér á blogginu mínu um daginn og birtist á vef eyjafrétta í síðustu viku.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Ég er alveg sammála þér með snurvoðina, menn hafa ekkert framkvæmt í rannsóknum varðandi áhrifin á lífríkið, varðandi notkun veiðarfæra en auðvitað hangir allt saman í lífríkinu og þegar einn hlekkur rofnar eins og með sandsílið þá hefur það áhrif annars staðar.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 8.6.2009 kl. 01:01

2 Smámynd: þorvaldur Hermannsson

Sæll Goggi,Ekki lýst mér á lundaveiðina í sumar,verst með Pysjuna hún er svo skemmtilegur þáttur í lífinu í Eyjum,

En ef þér vantar beitningu þá getur þú sent nokkra dalla til mín hingað suður,ég skal hengja á ha ha.kv valdi

þorvaldur Hermannsson, 8.6.2009 kl. 01:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband