16.6.2009 | 12:15
Þeir á Náttúrufræðistofu Suðurlanda halda því fram að lundastofninn í Eyjum sé hruninn, ég er þessu ekki sammála og set inn nokkrar myndir máli mínu til stuðnings
Þegar maður horfir á þetta svona virðist ekki vera mikið að sjá
En með myndavélalinsunni lítur þetta út svona og er öll Stakkabótin gjörsamlega þakin af lunda og stór spurning, hvort að Erpur og félagar ættu ekki að fara og fá sér linsur
Þessi mynd er kannski ekki góð, en svona litu allar brekkur út allt frá Lambaskorum að Litlahöfða
Svona leit þetta út á klettabrúnunum
Þessi var líka skemmtileg
Þessi kvaddi með orðunum:"Save the puffins" en svo heyrðist mér hann segja: "Strákar, er einhver matur eftir"?
Meira seinna
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Fallegir eru þeir Lundarnir.
Ragna Birgisdóttir (IP-tala skráð) 16.6.2009 kl. 12:23
Það er dálítið líkt með líffræði spekinganna þegar kemur að þorskinum og lundanum. Um nokkurt árabil hafa fiskifræðingar verið skelfingu lostnir vegna viðkomu þorskstofnsins og lagt mesta áherslu á að friða smáþorsk. Nú um nokkurt skeið hafa sjómenn talið sig sjá merki þess að ætiskortur sé áberandi á grunnslóð og sandsílið hefur skort um nokkurra ára bil. Þessi skortur á síli hefur valdið ófrjósemi kríu og lunda ásamt eflaust fleiri fuglategundum auk þess að hafa áhrif á seiði fiska á grunnslóð.
Þegar grasbrestur veldur skorti á heyjum á haustdögum þá fjölgar bóndinn ekki fé. Hann slátrar öllum gimbrum og fækkar jafnvel ánum. Þetta þykja ekki vísindi í sveitum en er talið flokkast undir heilbrigða skynsemi. Fiskifræðingar og fuglafræðingar vara við fækkun á fóðrum þegar fóðurskortur er staðreynd.
Merkileg eru þessi vísindi líffræðinnar!
Árni Gunnarsson, 16.6.2009 kl. 14:37
Góðar myndir. Kveðjur til þín og þinna.
Grétar Mar Jónsson, 19.6.2009 kl. 09:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.