6.7.2009 | 22:15
Frábær helgi og lundinn
Skemmtileg helgi að baki, þar sem á tímabili var fullt út út dyrum á laugardagskvöldið í Blíðukró. Einnig átti ég ánægjulegt ættarmót og í raun og veru eina sem vantaði til að klára helgina með stæl, er að ekki hefði verið dæmd rangstæða þegar ÍBV skoraði sigurmarkið gegn FH, en strákarnir okkar stóðu sig annars eins og hetjur.
Mikið er búið að gerast í lundamálum eyjamanna síðan ég skrifaði um þau síðast og einmitt núna er lundi að flykkjast upp austur í Heimakletti og er staðan því nú þegar orðin svipuð og í fyrra, þ.e.a.s. lundinn kemur á nokkurra daga fresti, sem er vísbending um það að hann þurfi að fara langt eftir æti, en vonandi lagast það þegar líður að næstu mánaðarmótum, annars er hætt við því að illa geti farið fyrir pysjunni eins og í fyrra.
Það er svolítið merkilegt að lesa skrif sumra sem tjáð hafa sig um lundann og þá sérstaklega þessa svokölluðu verndarsinna, sem býsnast einhver ósköp yfir því að hér sé verið að veiða hugsanlega nokkur þúsund lunda, en taka ekki undir orð manna (eins og mín m.a.) sem eru óhressir yfir því að ekkert sé verið að gera til að koma í veg fyrir að hér verði samskonar stórslys og á síðasta ári, þegar a.m.k. 500.000 lundapysjur drepast úr hungri. Ótrúlegt, en satt. En það er þó ánægjulegt að í nýjasta viðtalinu sem ég hef séð við Erp, þá orðar hann þetta loksins þannig að veiðar hafi að sjálfsögðu lítið að segja, en að menn þurfi að leggja meiri tíma og peninga í að rannsaka fæðuvandamál lundans.
Þessi ákvörðun um að leyfa veiðar í 5 daga mun að öllum líkindum, miðað við ástandið eins og það er núna og eða svipað og í fyrra verða til þess, að sennilega verður í mesta lagin hægt að veiða 1-2 daga af þessum 5, nema að sjálfsögðu að einhverjar óvæntar sílistorfur birtist hér við bæjardyrnar, en ég er ekki of vongóður um það og enda þetta því enn og aftur á þessum sömu orðum: Það þarf að reka snurvoðina burtu úr fjörunni.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
sæll goggi. hjartanlega sammála þér með snurvoðina. gekk á Sæfell og út í Litlahöfða, bæði í gær og í dag, og sá að það sat mikið uppi af fugli go það var þéttsetið á sjónum neðan við bergin. ég er búinn að fara sömu leið nokkrum sinnum í sumar og þetta er það langmesta sem ég hef seð af fugli. vonandi er eitthvað að rætast úr fæðumálum lundans og að hann komi einhverju á legg í lok sumars. kveðja. st. geir
st.geir (IP-tala skráð) 10.7.2009 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.