4.9.2009 | 23:09
Róðrar, kreppan, lundinn og strandveiðar
Þó aðeins sé kominn 4. sept, þá hef ég nú þegar róið þrisvar á nýja fiskveiðiárinu og fiskað rúm 5 tonn, en slagurinn um kvótann er þegar byrjaður enda mikill niðurskurður í aflaheimildum.
Það var hálf óhugnanlegt að horfa á fréttirnar áðan og þennan gríðarlega niðurskurð hjá Landspítalanum og kannski má segja sem svo að þarna séu fyrstu merki þess sem minn flokkur benti á s.l. vor, að ef við aukum ekki tekjurnar með því t.d. að auka aflaheimildir, þá verður niðurskurðurinn einfaldlega mun erfiðara og harðari.
Það vakti athyglina mína í vikunni, að mínu mati, furðuleg umfjöllun um lundann þar sem það virtist koma öllum á óvart, hversu lítið væri af pysju. Þetta er algjörlega í samræmi við það sem ég spáði, þarna er lundinn að bregðast við ætisskorti og á meðan þessir svokölluðu lundarannsóknarmenn eyða tímanum í að þvælast um í lundabyggðum með klósett snigil með myndavél framan á og hugmyndum um að safna fjármunum til kaupa á tækjum til þess að mæla rakastig í lundaholum og harðri baráttu gegn því að hér séu veiddir nokkur þúsund lundar, þá drepst pysjan úr hungri í hundraða þúsunda tali án þess að nokkuð sé gert. Það hefur einnig vakið sérstaklega athygli mína á sjónum að undanförnu, að þessir fáu lundar sem ennþá eru að reyna að koma sinni pysju á legg, sækja mikið inn í fjöru sem er algjörlega í samræmi við það sem ég hef sagt áður, við þurfum að hefja alvöru makrílveiðar við eyjar og að loka fjörunni fyrir snurvoð.
Töluverð umræða er hér í eyjum um þessar svokölluðu strandveiðar. Flestir tala um þetta á neikvæðan hátt, þ.e.a.s. að ákveðnir aðilar hafi leigt frá sér allar aflaheimildir og skrá svo báta sína í strandveiðarnar til að fiska þar utankvóta. Vissulega er hægt að finna dæmi um slíkt, en miðað við það sem ég hef séð þá er yfirgnæfandi meirihluti þeirra báta sem stunduðu þessar veiðar í sumar fyrst og fremst kvótalausar útgerðir og/eða leiguliðar. Það eina sem þarf að breyta í þessu kerfi til þess að allir Íslendingar njóti jafnræðis, er að breyta þessum 800 kílóum í þorskígildi.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg.
Góður pistill, takk fyrir.
kv.Guðrún María.
Guðrún María Óskarsdóttir., 5.9.2009 kl. 00:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.