Heilaþvottur..........

............er það orð sem mér sennilega hefur oftast dottið í hug á þessu ári. Tökum sem dæmi auglýsingar fjölmiðla vegna þessarar nýjustu Íslensku sjónvarpsþátta sem hafa tröllriðið fjölmiðlum í alt sumar og ég hugsa að ef þær mínútur sem búið er að eyða í auglýsingar vegna Fangavaktarinnar í alt sumar yrðu lagðar saman, þá yrði sá tími sennilega töluvert lengri heldur serían í heild sinni. Merkilegt þótti mér líka að heyra þá auglýsinga hjá Stöð 2 aðeins þremur dögum eftir frumsýningu fyrsta þáttar Fangavaktarinnar, að þáttaröðin væri þegar orðin vinsælasta þáttaröð stöðvarinnar frá upphafi. Ekki mjög trúverðugt og virkar á mig eins og hálfgerður heilaþvottur, en reyndar finnst mér þessi sería mun betri en hinar fyrri, en sá reyndar mjög lítið úr hinum.

Enn er verið að sýna Stelpurnar á Stöð 2 og mér varð það á fyrir hálfum mánuði síðan að horfa á einn slíkan þátt, en upplifði þennan gamanþátt á mjög undarlegan hátt, því að ég skildi hreinlega ekki einn einasta brandara og þótti það hálf furðulegt, hvað menn nenna að endast í að framleiða slíka þvælu, en það er nú svo, einhverjir hafa sjálfsagt gaman af þessu, en merkilegt hvað við eigum allt í einu orðið fáa góða leikara, því að það eru nánast sömu leikararnir í öllum þessum Íslensku þáttaröðum. 

Heilaþvottur var kannski eðlilega það orð sem mér datt oftast í hug þegar maður las greinar og viðtöl eftir marga frambjóðendur s.l. vor, að maður tali nú ekki um það þegar ungt og efnilegt fólk, jafnvel undir kosningaraldri er að skrifa stuðningsyfirlýsingar við einhvern af hinum stóru flokkum og það skín greinilega í gegn, hver höfundurinn raunverulega er.

Í sjálfu sér er hægt að nota orðið heilaþvottur um svo margt. 

Nýjasta nýtt er barátta bæjarstjórans okkar fyrir hönd útgerðarmanna í Vestmannaeyjum til varnar núverandi kvótakerfi og í það er látið skína stöðugt, að það skipti lykilatriði fyrir alla eyjamenn að þessir núverandi útgerðarmenn haldi aflaheimildum sínum frekar en einhverjir aðrir. Um það má að sjálfsögðu deila, en fyrir mitt leyti þá ætla ég að enda þessa hugleiðingu á þennan hátt: Það voru svo sannarlega hörkuduglegir útgerðarmenn og sjómenn sem gerðu eyjarnar að þeirri byggð sem þær eru í dag og svo sannarlega er útgerðin lífæð okkar eyjamanna. Ég heldi hins vegar að ef menn vilji sjá raunveruleikann í núverandi kvótakerfi, þá gætu menn t.d. horft á bíómyndina Hafið, skoðað dóma þar sem jafnvel skilnaðir verði til þess að menn neyðist til að selja. Menn gætu líka borið saman á netinu leiguverð á aflaheimildum og fiskverð, bæði verðlagsstofuverð og það verð sem er á mörkuðunum. Sé þetta allt lagt saman, þá er sú mynd sem bæjarstjórinn okkar og sumir útgerðarmenn, draga upp af núverandi kvótakerfi kannski ekki eins fögur og þeir vilja sumir hverjir meina, en gagnvart fólki sem ekki skilur þetta, þá heitir þetta heilaþvottur.

Meira seinna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta aulýsinga herferð á skjá einum er bara rugl og peningaeiðsla útí loftið juju vissulega má auglísa þætti og bíómyndir sem eru að koma út en það eru takmörk fyrir öllu eg sjálfur persónulega horfi ekki á fangavaktina útaf því að eg er hreinlega kominn með nóg af þessu bulli :P einsog u sagðir pabbi minn að eflaust hafa eitthverjir gaman af þessu en það mun ekki vera eg :P

Svavar Þór og er -> Georgsson (IP-tala skráð) 12.10.2009 kl. 22:55

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Georg, það var mikið að einhver sagði eitthvað af viti í mín augu, ég er nú svo hjartanlega sammála þér.

Ég gæti verið að skjóta mig í löppina með því að vera sammála þér, en þú veist hvernig það er hér í bæ.

Er búið að vera fiskirí?

Kær kveðja.

Helgi Þór Gunnarsson, 14.10.2009 kl. 11:07

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

sæll Helgi , já þetta er búið að vera ágætt ca 20 tonn í september  en minna að undanförnu enda týðin versnað . kv .

Georg Eiður Arnarson, 14.10.2009 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband