Lifrarsamlag Vestm., kosningar 2010 og essasú?

Ef ég man rétt, þá var það 1986, sem vinur minn Jóhann Jónsson keypti Lifrarsamlagið, en báðir vorum við að vinna þá í Vinnslustöðinni og æxluðust málin þannig hjá mér eftir sumarfrí, að mig langaði að breyta til og þar sem Jóa vantaði mann, þá varð það úr að ég réð mig í vinnu í niðursuðudeild Lifrarsamlagsins veturinn 86/87. Það var svolítið annar bragur á þessu þá, enda um 20 manns í vinnu þá og vinnutíminn hjá mér oft ansi langur, eða frá 6 á morgnana til 10-11 á kvöldin 6 daga vikunnar. Bæði var þá soðin niður hrogn, síld og lifur og mikið að gera, en því miður fjaraði hratt undan fyrirtækinu sl. áratug. Reyndar skilst mér að markaður fyrir lifur sé gríðarlega góður, en eftir að aðgerð á fiski færðist úr stöðvunum út á sjó, þá hefur stærsta vandamálið verið fyrst og fremst skortur á lifur og magnið varla dugað til að halda uppi vinnu fyrir einn mann. En mér skilst að fyrir nokkru síðan, eftir mikla baráttu hjá Jóa, þá hafi Vinnslustöðin eignast fyrirtækið en Jói séð um reksturinn. En ég samhryggist vini mínum Jóa innilega yfir þessum hörmulegu endalokum Lifrarsamlagsins, en skrifa þessar línur vegna þess að á þessu eina ári sem ég vann þarna á þessum tíma, þá fékk ég mikinn áhuga á niðursuðu og langar að velta þeirri hugmynd upp, hvort að þetta sé ekki akkúrat rétti tíminn fyrir t.d. Vinnslustöðina og hugsanlega einhverja fjársterka aðila að byggja þarna nýja og öfluga niðursuðuverksmiðju, sem gæti þá hugsanlega boðið upp á nýjungar bæði innanlands og erlendis. Ég veit að Jói hafði uppi stórar og miklar hugmyndir, en vantaði fyrst og fremst fjármagn til að fylgja þeim eftir.

Það er hálf undarleg umfjöllum í bæjarblaðinu Fréttum í gær, þar sem fjallað er um komandi bæjarstjórnarkosningar næsta vor, m.a. er minnst á þau þrjú framboð sem voru fyrir kosningarnar 2006 og þar á meðan Frjálslyndir og óháðir. Þar á eftir er ágætis umfjöllum um alla flokka, nema að sjálfsögðu Frjálslynda og það þrátt fyrir að ekki sé mjög langt síðan að ég sagði einum af ritstjórum Frétta, að Frjálslyndir stefndu að sjálfsögðu að framboði næsta vor. Við Frjálslynd erum að sjálfsögðu í sömu sporum og aðrir flokkar, erum byrjuð að þreifa fyrir okkur fyrir nokkru síðan, en í dag er ómögulegt að segja um, hvort að framboðið verði Frjálslyndir, Frjálslyndir og óháðir eða Frjálslyndir í samstarfi við einhverja aðra flokka. Einhverjar þreifingar hafa átt sér stað, en ekkert hefur verið ákveðið.

Sem formaður bæjarmálafélags Frjálslynda flokksins í Vestmannaeyjum, þá langar mig að skora á

Eyjamenn sem hafa kjark, hug og þor að láta í sér heyra, því hjá okkur eru allir velkomnir og ég beini þessari spurningu sérstaklega til ungs fólks að hætti heitustu auglýsingar landsins í dag: Ert þú kannski næsti bæjarfulltrúi í Bæjarstjórn Vestmannaeyja, eða eins og segir í auglýsingunni:"Essasú?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sæll Georg.

Með formannslausan flokk gengur illa Georg, svo mikið er víst, en sannarlega átt þú erindi í bæjarmálin í Eyjum og þú mátt til með að drífa þig í framboð til þess.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 17.10.2009 kl. 01:34

2 Smámynd: Hanna Birna Jóhannsdóttir

Tek undir með Guðrúnu um framboð, en að flokkurinn sé formmannslaus  tek ég ekki undir. Ég tel að Guðrún sé enn að berjast fyrir stefnu okkar Frjálslyndra, og eigi því þar heima.

Hanna Birna Jóhannsdóttir, 17.10.2009 kl. 14:33

3 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Sammála Hönnu að öllu leiti , ég veit hinsvegar ekki hvort að ég fari í framboð en á miðað við þann fjölda Eyjamanna sem gekk í Frjálslynda flokkinn í vor þá verður okkur ekki mikill vandi að bjóða fram næg eru málefnin .

Georg Eiður Arnarson, 17.10.2009 kl. 15:35

4 identicon

Þetta með niðursuðuna á lifur þá er í Grindavík farið að kaupa lifur dýrum dómi til niðursuðu og menn farnir víst að hafa ágætt uppúr þessu. En þeir kaupa ekki nema heila lifur og hún verður að fara í grisjur og kæld í körum og þau verða vera lítil og dagamerkt. Sjómennirnir þurfa að hafa smá fyrir þessu en þetta skilar sér í gríðarlegum peningum að mér skilst. Og afhverju ættum við sjómenn ekki vilja auka aflaverðmætið okkar með því að hirða lifur. Þeir í Grindavík eru að kaupa þessa lifur á góðan pening og eru að skila dýru hráefni út í heim. Og hvað vantar okkur mest jú góða íslenska framleiðslu út í heim. Þegar ég var á Guðrúnu VE á línu þá var öll lifur hirt og vorum við oft með 5 kör af lifur eftir vikutúr. Þetta er ágætis búbót í vasann fyrir eitt handtak aukalega í aðgerðinni. Ég legg til að við förum að hirða lifur grimmt og byggjum þetta upp aftur. Sagði einhver nei? Hver eru rökin fyrir því að hirða ekki lifur? Hver eru rökin fyrir því að vilja ekki gera meira verðmæti úr hverjum fisk sem veiðist? Hver eru rökin fyrir því að vilja ekki fá meira fyrir sinn snúð fyrir vinnuna ? 

Kveðja Birkir Ingason 

Eyjamaður og skipstjórnarnemi. 

Birkir Ingason (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 12:45

5 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

 Sæll Birkir og afsakið að ég svara ekki fyrr en ég var á sjó . þetta er rétt hjá þér með lifrina og til skammar að hún sé ekki hirt en mér er sagt að enginn trollbátur í eyjum hirði lifrina bæði vegna þess að útgerðin hefur ekkert út úr því og vegna þess að slíkt kosti aukapláss um borð sem oft er þá tekið af plássi fyrir fisk.

það er vel þekkt að kvótalausar útgerðir eins og Guðrún VE reyni að hífa upp tekjurnar með því að hirða alt eins og til dæmis lifur en kannski dæmigert að Guðrún er farin héðan og kemur aldrei aftur.

Ég þekki vel til lifrarvinslunar í Grindavík en þar er líka enn mikil aðgerð á fiski í landi og víða á suðurnesjunum . Kv .

Georg Eiður Arnarson, 19.10.2009 kl. 20:21

6 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Drangavík, Brynjólfur, Gullberg, Stígandi, Gandí. Þetta eru þeir bátar sem ég veit fyrir víst að hirða lifur.

Kær kveðja. 

Helgi Þór Gunnarsson, 19.10.2009 kl. 20:27

7 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Takk fyrir það Helgi , ég vissi þetta ekki en þetta er samt ekki hálfur flotinn okkar og þetta mætti að sjálfsögðu vera allir bátarnir . kv .

Georg Eiður Arnarson, 20.10.2009 kl. 06:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband