13.12.2009 | 21:42
Af tæknilegum mistökum
Svo langt síðan að ég skrifaði síðast og svo mikið búið að gerast, að ég leyfi mér að kalla þessa grein tæknileg mistök.
Eins og alþjóð veit, þá var það bæði fyrrverandi og núverandi þingmaður úr eyjum sem kom fyrst fram með þennan frasa, tæknileg mistök, en orðatiltækið lét hann hafa eftir sér eftir að hafa verið gripinn við þjófnað frá Íslensku þjóðinni, dæmdur sekur og stungið í steininn og hefur ekki enn séð ástæðu til að biðjast afsökunar á sínum tæknilegu mistökum. Ég hef reyndar s.l. ár tekið sérstaklega eftir því, að ótrúlega margir samflokksmenn hans kalla hann tæknileg mistök, og hefðu jafnvel ekki viljað sjá hann á þingi á meðan margir hinir dyggustu stuðningsmenn kalla hann fyrst og fremst blóraböggul og að margir aðrir, og þá sérstaklega úr öðrum flokkum, væru a.m.k. jafn sekir um sambærileg tæknileg mistök. Það hefur reyndar vakið sérstaka athygli mína þetta síðast liðið ár, þar sem öllum er nú orðið ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn ber stærstu og mestu ábyrgðina á hruni fjármálakerfi landsins, að enginn þeirra hefur vogað sér að kalla það tæknileg mistök.
Í fréttunum í kvöld voru sýndar ágætar myndir innan úr Bakkafjöru af stórbrimi, ég ætla rétt að vona það, að á næstu árum munum við aldrei heyra þessi orð, tæknileg mistök, hvorki um framkvæmdina, útreikningana, landgræðsluna og svo framvegis. Ég tel þó enn að þó að þessu verði ekki breytt úr þessu, þá væri það svo sannarlega engin tæknileg mistök ef helsta samgönguæð eyjamanna í dag væri þjónustuð með stærra og gangmeira skipi. Merkilegt nokkuð að enn er til fólk hér í eyjum, sem heldur því fram að þó að alt færi á versta veg í Bakkafjöru, þá verði þó alltaf hægt að sigla til Þorlákshafnar. Ótrúlegt, því að ég spái því að það muni ekki líða langur tími frá því að farið verði að nota Bakkafjöru, þar til búið verði að nýta ferjulægi Herjólfs í Þorlákshöfn í annað.
Ég hafði nokkuð gaman af upphrópi Huldu í Vatnsdal, þar sem hún auglýsti eftir V-listanum og ágætu svari þeirra á Fréttum með tveggja síðna viðtali við oddvita V-listans, Páll Scheving þar sem Palli segir m.a. að hann sé kannski ekki nógu blóðþyrstur að mati sumra og að störf hans í bæjarstjórn hafi fyrst og fremst snúist um hagsmuni bæjarbúa allra, frekar en einhverskonar pólitík og á öðrum stað, að hann sé hugsanlega jafn mikill krati og sjálfstæðismaður, þetta hljóta að vera tæknileg mistök hjá Páli vini mínum.
Úr sjávarútveginum er ýmislegt að frétta, en þó ekki. Því miður virðist núverandi sjávarútvegsráðherra vera á sama hraða og öll ríkisstjórnin þ.e.a.s. á hraða snigilsins, á meðan stór hluti þjóðarinnar berst í bökkum, en kannski má segja sem svo að þessi fáránlega umræða um Icesave spili þar stærsta hlutverkið og ég fyrir mitt leyti er að verða nokkuð sammála þeirri skoðun, að Icesave snúist í raun og veru fyrst og fremst um nokkurs konar pólitík, þar sem að stærsti möguleiki minnihlutans á að núverandi meirihluti falli, felist einmitt í því máli, þar held ég að engin tæknileg mistök séu í gangi, heldur fyrst og fremst úthugsuð pólitík og þó svo að ég eins og flest allir, ef ekki allir Íslendingar, séu á þeirri skoðun að Icesave sé eitthvað sem við ættum ekki að borga, þá hef ég velt því töluvert fyrir mér að undanförnu, hvort að það sé þess virði að láta öll mál dragast út af þessu eina, enda eru ansi margir betur menntaðir en ég farnir að tala um það, að þegar upp verði staðið þá munum við sennilega aldrei borga neitt af þessum útrásarskuldum og vegna hvers? Jú, þetta voru allt saman tæknileg mistök.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Georg, veistu Georg nokkuð hvað Herjólfur eða það að segja skipstjórarnir á Herjólfi hafa oft lent í vanræðum við innsiglinguna í Þorlákshöfn? Ég er nú að leysa af sem háseti þarna og eru skipstjórarnir mjög ræðnir við okkur áhöfnina um Þorlákshöfn og Bakkafjöru, og það kom mér á óvart hvað þeir hafa oft lent í vandræðum í Þorlákshafnarinnsiglingunni, ég er ekki viss um að Land-Eyjahöfn verði nokkuð verri.
Georg, mig langar að benda þér á að fara inn á "Eyjan" og kjósa um "ICESAVE"
Kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 13.12.2009 kl. 23:50
Sæll Georg.
Ég er nú á því að það verður svipað að sigla í Bakkafjöru í slæmu veðri og í Þorlákshöfn. Ölduduflið í fjörunni á náttúrulega eftir að ráða því hvort siglt verður eða ekki. Sem er reyndar mun nákvæmari mæling en er í dag með Þorlákshöfn (þ.e.a.s. Surtseyjarduflið og Bakkaduflið). En vindáttin segir líka ýmislegt um hvort verður siglt þarna líka. Ekki alveg sama viðmið á vindáttum og í Þorlákshöfn.
Sjálfur hefði ég viljað stórskipahöfn norðan við eyju með nýjum Herjólfi sem gengi 18-20 mílur í 2ja tíma siglingu.
Athuga verður líka að um og yfir 90% allra farþega með Herjólfi eru á leið á höfuðborgarsvæðið í hverri siglingu. Það er staðreynd skv. könnun sem hefur verið gerð með farþegum Herjólfs.
En skipið getur farið inn fyrir garða í Bakkafjöru á 15 mílna hraða og þá ertu strax kominn í skjól gagnvart öldugangi sem er kostur. Það geturu t.a.m. ekki í Þorlákshöfn vegna þess að þegar þú hefur beygt fyrir tunnuna verður þú að vera kominn á það litla ferð að þú getir beygt í átt að bryggjunni, og ekki máttu halda áfram...
Ég skil þínar pælingar og efasemdir mjög vel en þetta verðum við að sætta okkur við.
Kostirnir voru tveir og annar var valinn. Eins og gengur og gerist í lífinu. Yfir sumartímann verður Bakkafjara algjör bylting, ef að næst að fjölga erlendum túristum hérna, sem ég vona svo sannarlega að verði. Auðvitað verður líka að hugsa um fólk sem finnst betra að keyra lengur en sigla lengur.
P.S. Hef í sjálfu sér ekkert á móti Bakkafjöruhöfn og vil ekki kalla mig andstæðing hennar. Ég sjálfur hefði bara kosið annan kost hefði hann verið í boði.
Kveðja, Brynjar Smári Unnarsson.
Brynjar Smári Unnarsson (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 03:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.