19.12.2009 | 23:34
Framhald af síðustu grein (vegna athugasemda um Bakkafjöru)
Vegna anna á sjónum alla þessa viku hafði ég ekki tíma til að svara athugasemdum við síðustu færslu, sem að beindust fyrst og fremst að Bakkafjöru og ætla ég því að svara því með nýrri grein og taka stöðuna eins og ég sé hana í dag, en ég vil taka það skýrt fram að ég er alls ekki í neinni baráttu gegn Bakkafjöru og vona svo sannarlega að hún verði lyftistöng fyrir Eyjarnar.
Hvort innsiglingin í Bakkafjöru verður eitthvað verri heldur en í Þorlákshöfn er eitthvað sem enginn veit, en við verðum bara að vona það besta. En ef við skoðum stöðuna, þá var lagt upp með það á sínum tíma að Bakkafjara væri númer eitt, styttri sigling sem er vissulega rétt, svo framalega sem það sé fært. Númer tvö, að þessi leið væri hættuminni heldur en hin langa sigling til Þorlákshafnar, sem er vissulega rétt en miðað við að 90 % farþega eru að fara á höfuðborgarsvæðið, þá er Bakkafjara svo sannarlega mun verri kostur og sennilega það mikið verri kostur að það er ekki mælanlegt. Í þriðja lagi var talað um lægri fargjöld, en miðað við stöðuna á ríkiskassanum í dag, þá er nokkuð ljóst að svo verði ekki og nokkuð augljóst, miðað við síðustu bensín og olíuhækkanir að með Bakkafjöru þá muni það kosta okkur eyjamenn að öllum líkindum helmingi meira að komast til og frá höfuðborgarsvæðinu. Inni í þessum tölum eru að sjálfsögðu ekki öll þau störf sem munu vera lögð niður vegna styttri siglingar, en nú þegar höfum við fengið nasasjónir af því. Eitt enn, við sjáum reglulega myndir af uppgræðslu af svæðinu við Bakkafjöru, en við þurfum ekki nema að horfa til lands þegar hvassar landáttir eru, til þess að sjá það með eigin augum, hversu litlu sú uppgræðsla breytir varðandi sand og moldrok í Bakkafjöru og eitt enn, ég minni á orð Gísla Viggóssonar sem svar við spurningu sem hann fékk í Höllinni á sínum tíma: "Það verður aldrei hægt að nota núverandi Herjólf í Landeyjarhöfn." En nú hefur hins vegar verið ákveðið að nota hann samt.
Varðandi það sjónarmið sem við ítrekað höfum séð koma fram hjá bæjarstjórninni í Vestmannaeyjum, þá er það einfaldlega staðreynd að því oftar sem bæjarstjórinn segir að Bakkafjara verði mikil lyftistöng fyrir Vestmannaeyjar, sem að við að sjálfsögðu vonum öll, þá munu fleiri trúa því. Þetta er ekki ósvipað og með útrásarvíkingana sem sögðu öllum, beint og óbeint, að þeir væru algjörir snillingar það oft að við fórum að trúa því, þó að við vissum betur. Vonandi verður Bakkafjara ekki sambærilegt klúður og þar.
Varðandi undirskriftarsöfnun um Icesave, þá fékk ég sms frá Indefence hópnum, þar sem skorað var á mig að skrifa undir hjá þeim, sem ég hef ekki gert og mun ekki gera, enda staðfestir það það sem ég sagði í grein minni, það eru ákveðnir flokkar sem eru núna í minnihluta að reyna að nota þetta Icesave í einhvers konar pólitískri refskák, en hvernig niðurstaðan og afleiðingarnar af þessum samningum verða, því er einfaldlega hægt að svara með því að segja: Nei, við viljum ekki borga. Núverandi meirihluti hins vegar mun þurfa að svara fyrir sínar ákvarðanir á þessu máli í næstu kosningum.
Meira seinna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Facebook
Athugasemdir
Sæll
Þú hefur tæplega fengið sms frá InDefece hópnum varðandi þetta, því að við höfum engin slík sent. Hafir þú fengið sms um þetta hefur það verið frá einhverjum áhugasömum einstakling.
Jóhannes Þ. Skúlason (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 02:25
"en miðað við að 90 % farþega eru að fara á höfuðborgarsvæðið, þá er Bakkafjara svo sannarlega mun verri kostur og sennilega það mikið verri kostur að það er ekki mælanlegt."
Geturu rökstutt þetta? Hvernig er þessi kostur verri?
Viktor Smári (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 11:01
Nákvæmlega Viktor Smári, hvernig getur þetta verið verri kostur?? Ef við tökum sambærilegt dæmi, þegar Akraborgin fór milli rvk og akranes þá var einnig hægt að keyra leiðina þangað, var það þá mun verri kostur að keyra leiðina?? Samt völdu þá flestir að fara keyrandi þessa leið, svo yfirgnæfandi var það val að hætt var rekstri ferjunnar!!! Ætlar einhver að segja mér það að ef hægt væri að keyra alla leiðina milli eyjar og rvk að flestir myndu taka ferjuna væri hún í boði???
Andri (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 13:42
Takk fyrir athugasemdirnar , ég hef ekki tíma núna en stefni á að svara þessu öllu í kvöld . kv .
Georg Eiður Arnarson, 22.12.2009 kl. 14:42
Sæll Jóhannes ,eftirfarandi sms fékk ég sent í gegnum ja.is " Áskorun á forseta Islands:tjodaratkvædagreidslu um ny Icesave lög. www.indefence.is
Senda afram.
Hvaðan sem þetta kemur, þá hef ég ekki áhuga.
Kveðja
Georg Eiður Arnarson, 22.12.2009 kl. 19:13
Sælir Viktor og Andri
Svarið við spurningu Viktors er mjög einfalt: Þetta snýst um hvor leiðin er hættulegri. Á 50 árum hefur enginn látist af slysförum í Herjólfi, en á Suðurlandsvegi skipta mannslífin og slysin hundruðum saman og þess vegna segi ég að Bakkafjara sé mun verri leið heldur en Þorlákshöfn, en vonandi verður þetta bara í lagi. Ég persónulega væri tilbúinn til að sigla til Þorlákshafnar, þess vegna á minna skipi ef það gæti sparað eitt mannslíf. Ef það er eitthvað fleira þá er meira en velkomið að svara því, en tek það fram að ég er löngu hættur að velta þessu Bakkafjörudæmi fyrir mér, en mér finnst það alltaf dapurt að horfa á þennan þvælufréttaflutning af hálfu bæjarstjórans.kv.
Georg Eiður Arnarson, 22.12.2009 kl. 19:20
Sæll Georg, mig langar að fræða þig um eina banaslysið sem var um borð í Herjólfi 1988, er ungur maður féll útbyrðis, en þetta gerðist í seinniferð á fimmtudegi fyrir þjóðhátíð.
Og svo er svolítið skondið að sjá þessi rök fyrir því að það sé hættulegt að keyra milli Bakka og Reykjavík, það er líka hættulegt að keyra milli Þorlákshafnar og Reykjavíkur, hvað er með þá sem keyra austur í sumarbústaði eins og ég og Elliði, við erum þá í áhættuhóp.
Helgi Þór Gunnarsson, 22.12.2009 kl. 20:12
Fólk keyrir frá ísafirði til reykjavíkur, frá akureyri til reykjavíkur, frá höfn í hornafirði til reykjavíkur osfrv, fólk keyrir frá bakka til reykjavíkur en svo allt í einu er það bara svo lífshættulegt að keyra frá landeyjarhöfn til reykjavíkur að það þarf að halda úti herjólfi til þorlákshafnar!!! Hvernig er það, verður ekki bara að gera út skip frá eyjum til að ferja fólk til reykjavíkur, akureyrar osfrv, helst bara láta skipið koma við á öllum stöðum landsins svo eyjamenn þurfi ekki að taka upp bíllykil og stefna sér og sínum í voða!! kannski við getum líka fengið fólk frá selfossi, hveragerði , höfn í hornafirði og fleiri stöðum á austurlandinu til að fara yfir það með okkur hvernig við skulum keyra þessa "stórhættulegu" leið sem fólk þaðan keyrir jafnvel á hverjum degi!!
Andri (IP-tala skráð) 22.12.2009 kl. 20:32
Sæll Helgi, ég man vel eftir því þegar ungi maðurinn lést, en það var ekki af slysförum heldur var hann ofurölvi og kastaði sér í sjóinn.
Varðandi rökin fyrir slysunum, þá er það einfaldlega staðreynd að slys umborð í ferjum eru margfalt sjaldséðari heldur en í ökutækjum og þar fyrir utan, eins og þú veist er langtum lengra að keyra frá Bakka í bæinn heldur en frá Þorlákshöfn. Þú hlýtur að skylja þetta, lengri akstur, meiri slysahætta.
Kveðja
Georg Eiður Arnarson, 22.12.2009 kl. 20:35
Andri (ip-tala skráð), þú hefur svo sannarlega rétt fyrir þér, allflestir geta ekið án þess að lenda í slysum.
Georg, það hafa orðið líka smá slys um borð í Herjólunum þrem, en þetta tiltekna slys 1988 var svo sannarlega slys, drengurinn ætlaði ekki í sjóinn, hann var að sýna sig, og hrasaði út fyrir.
Kær kveðja.
Helgi Þór Gunnarsson, 22.12.2009 kl. 22:12
Sæll Helgi ,þetta snýst ekki um það hvort fólk kunni að aka eða ekki heldur það að Bakkafjöruleiðin er einfaldlega of dýru verði keypt og mun skaða byggðina í Eyjum . Ég sagði það strax 2005 við hefðum átt að byrja þá að berjast fyrir nýju gangmeira skipi sem gæti farið þetta á 11/2 tíma nú er það of seint . EKKI LÁTA HEILAÞVO YKKUR STRÁKAR . kv .
Georg Eiður Arnarson, 22.12.2009 kl. 23:45
Sæll Georg
Alltaf er ég sammála þér með Bakkafjöru, enn ekki með ástands Lundans. Var að finna þetta á setur.is. Og ég held kannski að þú hefur áhuga á að rengja þessa skýrslu.
Annars vil ég óska þér og fjölskyldu gleðilegra jóla.
Pálmi Freyr
Pálmi Freyr Óskarsson, 23.12.2009 kl. 01:53
Sæll Georg
Ég er líka hættur að nenna að þrasa um þetta eins og þú, en ég verð alltaf að verða ósammála þér með þennann akstur. Ástand vega á suðurland og hættan við að keyra suðurlandsundirlendið er annað mál og kemur styttingu siglingingar og aukinni ferðatíðni milli lands og eyja ekkert við. Sama hvernig þú reynir að tengja þetta. Akstur er alltaf hættulegri per farþega sé tekið mið af hlutfalli og geri ég mér grein fyrir því. En farist Herjólfur með fullt skip af fólki að þá erum við að tala um dánartölur fólks sem ferst í bílslysum á öllu landinu í rúm 20 ár. Svona get ég endalust leikið mér að tölum Georg minn og ég gef ekki mikið fyrir svona tölfræði. Hún er nefninlega þannig í eðli sínu að það er alltaf hægt að leika sér með þetta fram og til baka. Ég er í hópi ungu kynslóðarinnar, og það hefur bara sannað sig að hún vill keyra í mun meira mæli heldur en var hér áður. Það sem við eigum að gera nú þegar þetta kjördæmi okkar opnast upp á gátt, er að taka þátt í báráttu annara sunnlendinga um bættar vegaframhvæmdir á suðurlandi, og hætta að vera með þennann hroka um að ríkið eigi að halda okkur frá hættulegum vegum suðurlands. Við erum ekkert merkilegri en aðrir sunnlendingar eða aðrir íslendingar sem þurfa að keyra þennann veg daglega. Ég er sammála þér með mannslífin. Eitt mannslíf er einu mannslífi of mikið í umferðaslysi, en báráttan gegn þeim er úr annari umræðu og annari baráttu. Ég veit það vel Georg að við verðum aldrei sammála um ágæti þessara framhvæmda, en ég hef reynt að gæta mín á að vera ekki að kasta hlutum á borð við það sem þú skrifar um fargjöldin hérna fram óábyrgt. Þú hefur ekkert fyrir þér í því að förgjöldin komi til með að vera eins og þau er nú í þorlákshöfn. ekki frekar en ég eða aðrir.
Hvað varðar rútuferðir frá landeyjahöfn, sem margir Bakkafjöruandstæðingar hafa haft miklar áhyggjur af, að þá segi ég bara eitt. Það er að koma 2010, fjandinn hafi það ef menn geta ekki leyst þau mál að þá er illa komið fyrir okkur sem þjóð. Með allt þetta efnahagshrun sem við stöndum frammi fyrir og lausn á stærstu kreppu sem skekið hefur ísland, að þá er ljóst að ef ráðamenn okkar geta ekki sett upp rútuáætlun fyrir eins og hálfs tíma akstur niður í landeyjahöfn, að þá nokkuð ljóst að Ísland nær sér aldrei upp úr kreppuni og við verðum gjaldþrota hehehe.
Jæja þetta er orðinn þokkalegasta langloka hjá mér, ég vona það svo heitt og innilega að þetta komi til með að verða heillaskref fyrir alla vestmannaeyjinga sem og aðra landsmenn. Eina ógnin við þessa höfn er að mínu mati kreppan sjálf og þá skiptir engu hvort um höfn í landeyjum er að ræða eða bara Þorlákshöfn. Auknar álögur á öllum gjöldum, koma til með að hækka fargjöld og annað, hvort sem farið verður í 30 mín siglingu eða eitthvað lengra, það virðist því miður ekki flúið.
Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla Georg
og ég held áfram að vera ósammála þér á nýju ári. ;)
Friðberg Egill Sigurðsson (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 17:04
Sæll Pálmi minn og gleðilega hátíð og takk fyrir linkinn.
Ég er búinn að lesa skýrsluna og sé að eins og vanalega heldur Erpur því fram að mikill pysjudauði hafi verið 2005 og það þrátt fyrir að hann hafi ekki hafið rannsóknir fyrr en 2007. Á sama hátt talar hann ekkert í lausnum á ástandinu, eða eins og ég hef ítrekað bent á, það þarf að gefa sílinu og fuglinum tækifæri með því að friða fjöruna fyrir snurvoð og það þarf að hefja stórtækar makrílveiðar við suðurströndina. Einnig langar mig að benda þér á, að nýlega var mér sagt frá því að töluvert sé farið að veiðast af lunda fyrir norðan land, sem er merktur hér í eyjum en Erpur hefur ekki séð ástæðu til að minnast á það.
Kveðjur
Georg Eiður Arnarson, 25.12.2009 kl. 23:14
Sæll Egill og gleðilega hátíð.
Það er kannski ágætt að við erum sammála um að vera ekki sammála, en vonandi rætast allar óskir okkar um Landeyjarhöfn. Ástæðan fyrir þessari umfjöllun um hvor leiðin er hættulegri er einfaldlega sprottin af þeirri fáránlegu hugmynd, sem menn hafa hingað til kallað Norska áhættumatið þ.e.a.s. Norskt fyrirtæki fékk töluverða fjármuni greidda fyrir það að finna það út, að siglingaleiðin Vestmannaeyjar-Þorlákshöfn væri sex sinnum hættulegri heldur en siglingaleiðin Vestmannaeyjar-Landeyjarhöfn. Þessu hafa ég og margir svarað með því að benda á það, að þriggja tíma sigling á móti hálftíma siglingu er að sjálfsögðu 6 á móti 1 og hefði að sjálfsögðu ekki þurft neitt erlent fyrirtæki til að reikna það út. Dæmið lítur að sjálfsögðu mun verra út við styttri siglinguna ef vegunum er bætt við, en þetta er allt saman að sjálfsögðu aukaatriði. Vonandi verður þetta bara í lagi. En til gamans, þá langar mig að benda þér á, að núna öðru hvoru megin við áramót ætla ég að skrifa grein þar sem ég geri upp árið 2009 og hvernig ég sé fyrir mér árið 2010 og þá sérstaklega hvaða tækifæri ég tel að muni hugsanlega koma með Landeyjarhöfn.
Kveðja
Georg Eiður Arnarson, 25.12.2009 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.